Vilja styrkja stöðu norðurskautssvæðisins
Helgi Hjörvar forseti Norðurlandaráðs ítrekar að þörf sé á að styrkja stöðu Norðurskautssvæðanna. Hann situr nú níundu ráðstefnu þingmanna frá Norðurskautssvæðinu í Evrópuþinginu í Brussel.
- Við verðum að hafa að markmiði að styrkja enn frekar stöðu Norðurskautssvæðanna, einnig á vettvangi ESB, og ráðstefnan á Evrópuþinginu er gott tækifæri til þess, segir Helgi Hjörvar.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
- Við verðum að hafa það að markmiði að styrkja enn frekar stöðu Norðurskautssvæðisins, einnig á vettvangi ESB, og þessi ráðstefna í Evrópuþinginu er gott tækifæri til þess, segir Helgi Hjörvar í aðdraganda ráðstefnunnar sem verður haldin 13.-15. september.
Maria Damanaki fulltrúi i framkvæmdastjórn ESB, Lene Espersen utanríkisráðherra Danmerkur sem einnig er formaður Norðurskautsráðsins og Diana Wallis varaforseti Evrópuþingsins, verða allar frummælendur á ráðstefnunni, auk forseta Norðurlandaráðs.
- Mikilvægt er að við höldum áfram að byggja upp samstarf á norðurslóð. Norðurlandaráð vill viðhalda og styrkja góð tengsl við Bandaríkjamenn og Kanadamenn í vestri, Rússa í austri og önnur aðildarríki ESB segir Helgi Hjörvar.
Öll norrænu ríkin eiga aðild að Norðurskautsráðinu. Kanada, Rússland og Bandaríkin eru einnig aðilar. Fulltrúar Evrópuþingsins sitja einnig ráðstefnuna í Brussel. Landfræðileg lega Norðurlanda og sjálfstjórnarsvæðanna gerir það verkum að málefni Norðurskautssvæðanna vega æ þyngra á Norðurlöndum.
Tíunda ráðstefna þingmanna frá Norðurslóðum verður haldin á Íslandi árið 2012. Þar var fyrsta ráðstefnan einnig haldin árið 1993.
Tengiliðir
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
Torkil Sørensen
Sími
+45 33 96 04 46
Tölvupóstur
ts@norden.org
