Ewa Björling norrænn samstarfsráðherra og viðskiptaráðherra Svíþjóðar
Björling lýsti eftir jafnvægi milli umhverfisins, fólks og atvinnulífs núna þegar ný tækifæri eru að verða til á Norðurskautssvæðinu. Málþingið Sjálfbær atvinnulífsþróun og nýting náttúruauðlinda var haldið í tengslum við þemafund Norðurlandaráðs og var sjónum beint að því hvernig norrænt samstarf getur stuðlað að sjálfbærri stjórnun náttúruauðlinda.
Árið 2013 fara Svíar bæði með formennsku í Norðuskautsráðinu og Norrænu ráðherranefndinni. Öll Norðurlöndin eiga aðild að báðum ráðum. Björling lagði áherslu á að samstarfsstofnanir eins og Norðurskautsráðið og Norræna ráðherranefndin gegndu mikilvægu hlutverki í því að tryggja að þróunin á Norðurskautssvæðinu væri í jafnvægi.
Meira frá Ewa Björling:Sjálfbær atvinnuþróun og stjórnun auðlinda á Norðurskautssvæðinu
Ewa Björling vísaði til þess að Norðurlönd hefðu safnað saman mikilli þekkingu um sjálfbærni, sem skipti miklu máli einnig fyrir önnur heimskautslönd. Dæmi um þetta er greining Norðmanna á vistkerfum, rannsóknir Íslendinga á fiskveiðum, og þekking Finna og Svía á sjálfbærri námuvinnslu sem orðið hefur til í gegnum sérfræðingatengslanetið NordMin.
Ný tækifæri eru að verða til í námuvinnslu á norðurslóðum, til að mynda vinnsla sjaldgæfra málma úr jörðu. NordMin var sett á laggirnar með það að markmiði að tengja saman fulltrúa norrænnar námu- og málmvinnslu til að styrkja samkeppnishæfni í námuvinnslu.
„Rannsóknir og þróun eru nauðsynleg. Við munum sjá mikla þróun námuvinnslu á Norðurskautssvæðinu og rannsóknir og þróun verður undirstaða norræna og alþjóðlega samstarfsins", sagði Magnus Ericsson frá Raw Materials Group, fulltrúi NordMIn.
Starf Norðurlandaráðs á Norðurskautssvæðinu var ástæðan fyrir því að námstefnan var haldin. Árið 2012 gagnrýndi Norðurlandaráð norrænu ríkisstjórnirnar harðlega fyrir aðgerðarleysi við að tryggja náttúruauðlindir á svæðinu.
Marit Nybakk, forseti Norðurlandaráðs, sagði í ræðu sinni á námstefnunni að Norðurlandaráð myndi halda áfram að tryggja umhverfisvernd, ekki síst með því að viðhalda skuldbindandi samningi sem miðar að lækkun hitastigs.
Forseti Norðurlandaráðs var, eins og Ewa Björling, áhugasamur um jafnvægið milli efnahagsmála, umhverfis- og félagslegra málefna.
„Mannfólkið er mikilvægt. Við sjáum í dag að ungar konur flytja burt. Við verðum að sjá til þess að boðið verði upp á áhugaverð störf og verðmætasköpun á Norðurskautssvæðinu. Við eigum ekki einungis að arðnýta auðlindir á þessum svæðum", sagði Marit Nybakk.
Thorvald Falch fulltrúi á norska samaþinginu var sammála Marit Nybakk og hafði áhyggjur af því að frumbyggjar á svæðinu myndu gjalda fyrir þann áhuga sem aðrir hefðu á atvinnutækifærum þar.
„Staða Sama í lýðræðissamfélagi okkar í dag byggir á því að Samar hafa haldið menningu og lífsstíl sínum sem frumbyggjar í 3000 ár. Einn meginþátturinn í réttinum til að taka ákvörðun um eigin mál er þátttaka í pólitískum ákvörðunum".
Falch minnti á að ríkið gæti ekki stjórnað án þess að hafa Sama og aðra frumbyggja með í ákvörðunartökunni.
„Byggt á ákvörðunarrétti um að taka ákvörðun um eigin mál, eiga Samar að eiga hlut í auðlindaþróuninni og virðisaukasköpun sem verður í þeirra heimabyggð. Spurningin verður samt alltaf: hvaða áhrif hefur þessi þróun á menningu Sama? Verðmætasköpun má ekki verða til þess að hefðbundið atvinnulíf Sama, sem skiptir miklu máli fyrir menningarvitund þeirra, lúti í lægra haldi", sagði Thorvald Falch.
Eftir fjörugar pallborðsumræður sem í tóku þátt umhverfissamtök og fulltrúar atvinnulífs, tók Dagfinn Høybråten framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar niðurstöður námstefnunnar saman.
„Norðurskautssvæðið er nú ofarlega á baugi. Loftslagsbreytingarnar hafa mikil áhrif á norðurskautssvæðinu, en með þeim koma einnig ný tækifæri. Norræna ráðherrnefndin vill að í þróun á Norðurskautssvæðinu verði maðurinn í brennidepli. Sem áheyrnarfulltrúar í Norðurskautsráðinu og í gegnum heimskautsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar , munum við halda áfram að styðja við þróunina á norðurskautssvæðinu þar sem tekið verður tillit til umhverfisverndar og samspils samfélags og atvinnulífs" sagði Høybråten að lokum.