Document Actions

Villa í spurningu um Norðurlandaráð í dönsku innflytjendaprófi

Danskt dagblað hefur bent á villu í prófi sem lagt er fyrir umsækjendur um danskan ríkisborgararétt. Við spurningu um Norðurlandaráð eru þrír rangir svarmöguleikar en enginn réttur. Neyðarlegt að mati margra stjórnmálamanna.

09/06 2010
Jan-Erik Enestam

Norðurlandaráð getur t.d. lagt til að norrænu ríkisstjórnirnar samþykki ákveðna stefnu. Ef ríkisstjórnirnar vilja gera hana að lögum, er hún sett fram sem tillaga frá ríkisstjórninni til þingsins, segir Jan-Erik Enestam, framkvæmdastjóri ráðsins, enn fremur í svari sínu um danska prófið.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Danska dagblaðið Politiken birti 9. júní frétt um spurningu um Norðurlandaráð í innflytjendaprófi í Danmörku.

27. spurningin í prófinu er svohljóðandi: "Danmörk á aðild að Norðurlandaráði. Hvert er hlutverk Norðurlandaráðs?"

Af þremur mögulegum svörum er hið rétta samkvæmt ráðuneyti innflytjendamála að ráðið veiti norrænu þingunum ráðgjöf.

- En Norðurlandaráð setur fram tillögur og ábendingar til ríkisstjórnanna segir Jan-Erik Enestam, framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs í frétt Politiken.

Málið kom upp stuttu eftir að fram kom í fjölmiðlum að dönsk yfirvöld vísa úr landi norrænum ríkisborgurum sem njóta félagslegrar aðstoðar, en það er liður í kröfu þeirra um að erlendir ríkisborgarar geti séð sér farborða.

Enn er ekki ljóst hvort þetta er í samræmi við norrænan samning um félagslega aðstoð.

Og nú hefur komið í ljós að víða er pottur brotinn í dönskum ráðuneytum þegar kemur að norrænum málefnum.

- Það er neyðarlegt að það séu villur í jafn mikilvægu skjali og innflytjendaprófið er. Hugsið ykkur afleiðingarnar fyrir þann einstaklng sem vantar eitt rétt svar til þess að standast það, en fellur á spurningu þar sem ekki er gefinn upp réttur svarkostur, segir Bente Dahl hjá mennta- og menningarnefnd Norðurlandaráðs.

Bente Dahl,sem einnig hefur fjallað um brottvísanir norrænna ríkisborgara frá Danmörku, ætlar að taka málið upp við Birthe Rønn Hornbech ráðherra innflytjendamála.

- Við verðum að leiðrétta þetta eins fljótt og auðið er, jafnvel þó skaðinn sé skeður, bætir hún við.

Samkvæmt Politiken er Henrik Dam Kristensen fulltrúi í borgaranefnd Norðurlandaráðs einnig afar ósáttur og segir hann málið "afar neyðarlegt".

- Spurt er um Norðurlandaráð, sem nær aldrei er annars nefnt í fjölmiðlum, og svo gerð svona mistök. Það er kjánalegt að semja innflytjendapróf á þann hátt að þeir sem þreyta það þurfi að hafa upplýsingar sem þessar á takteinum til að ná því, segir hann.

Nánari upplýsingar:

Politiken  BT   TV2  Jyllands Posten  Ritzau Dagens Nyheter

Tengiliðir

Tina Bostrup
Sími +45 33 96 04 52
Tölvupóstur tib@norden.org

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Tengt efni
  • Bente Dahl kritiserer den danske regerings udvisninger af nordiske statsborgere (News Item)

    I over 50 år har der været fri bevægelighed i Norden. Norden var den første region i verden, der indførte pasfrihed - længe før Schengen-samarbejdet blev opfundet. Den frie bevægelighed i Norden og det tætte samarbejde med vores nordiske naboer er regeringen nu ved at ødelægge, siger Nordisk Råds medlem Bente Dahl (R), der kritiserer den danske regerings udvisning af nordiske statsborgere.

  • Borgara- og neytendanefndin (Samtök)

    Borgara- og neytendanefndin fjallar um málefni sem snerta réttindi borgaranna og neytenda auk meginþátta sem snerta lýðræði, mannréttindi, jafnrétti o.fl. og sem tengjast starfsvettvangi hennar.

  • Um Norðurlandaráð

    Norðurlandaráð var stofnað 1952. Í ráðinu sitja 87 þjóðkjörnir fulltrúar, frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum.