Document Actions

Vinningshafar í samkeppninni Nordic Built Challenge

Eftir nákvæma skoðun hafa dómnefndir landanna fimm í samkeppninni Nordic Built valið 20 vinningshafa - 4 á hverja byggingu og land. Samtals bárust 171 tillaga í samkeppnina. Vinningshafar hljóta 300.000 norskra króna í verðlaun og fara áfram í annan hluta samkeppninnar.

08/04 2013
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

„Markmiðið með samkeppninni Nordic Built er að styrkja stöðu Norðurlandanna fimm hvað varðar sjálfbærar byggingar. Þess vegna erum við mjög ánægð með gæði tillagnanna sem bárust", segir Trine Pertou Mach nýsköpunarráðgjafi hjá Nordisk Innovation og verkefnisstjóri Nordic Built samkeppninnar.

Yfirlit yfir 20 norræna vinningshafa

Um Nordic Built samkeppnina

Nordic Built samkeppnin er opin, þverfagleg hönnunarsamkeppni um endurnýjun bygginga á Norðurlöndum. Markmiðið með samkeppninni er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á sjálfbærum, hagnýtum og viðráðanlegum endurnýjunarleiðum fyrir byggingar á Norðurlöndum, þar sem grunnreglur Nordic Built Charter sáttmálans eru nýttar.
Verðlaunahafar Nordic Built samkeppninnar fá ráðgjafasamninga við fasteignaeigendur og tækifæri til að framkvæma verkefni sín.. Auk þess taka þeir þátt í samkeppninni Nordic Built Challenge Award þar sem keppt er um eina milljón norskra króna.

Um Nordic Built

Nordic Built er svokallað fyrirmyndarverkefni sem sett var í gang í tengslum við nýja norræna framkvæmdaáætlun um nýsköpun og atvinnumál sem norrænu atvinnumálaráðherrarnir ýttu úr vör í október 2011. Verkefnið er fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni og Nordisk Innovation, sem einnig leggur sitt af mörkum við framkvæmd verkefnisins ásamt Norðurlöndunum fimm.


Nordic Built áætlunin verður framkvæmd í þremur áföngum á tímabilinu 2012-2014. Nánari upplýsingar: http://www.nordicbuilt.org

Tengiliðir

Malin Kock Nordisk Innovation (+47) 95 92 49 53 M.Kock@nordicinnovation.org