Document Actions

Vistaskipti norrænna og rússneskra þingmanna

Sendinefnd þingmanna úr Norðurlandaráði undir forystu Sivjar Friðleifsdóttur, formanns velferðarnefndar, heimsækir Pskov og Pétursborg dagana 16.-20. maí næstkomandi.

13/05 2011
Siv Friðleifsdóttir
Ljósmyndari
Foto: Magnus Fröderberg/norden.org

Í júní heimsækir síðan hópur rússneskra þingmanna frá Dúmunni í Moskvu og svæðisþingum í Norðvestur-Rússlandi Kaupmannahöfn og Stokkhólm. Samskipti Norðurlanda og Rússlands eru með öðrum orðum í góðum farvegi.

Dagskrá norrænu sendinefndarinnar hefst í Pétursborg, þar sem gestir heimsækja upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar og ræða við nokkra af samstarfsaðilum skrifstofunnar.

Í Pskov mun sendinefndin hitta ríkisstjórann og Boris Polozov, formann svæðisþingsins, og aðra þingmenn, en þingið hefur séð um skipulagningu dagskrárinnar.

Norræni hópurinn mun einnig heimsækja háskólann, spunaverksmiðju og Puskinogorsky-svæðið.

Í júní heimsækir síðan hópur rússneskra þingmanna frá Dúmunni í Moskvu og nokkrum svæðisþingum í Norðvestur-Rússlandi Kaupmannahöfn og Stokkhólm. Í vor fóru fram hringborðssamræður rússneskra og norrænna stjórnmálamanna í Múrmansk og í Arkhangelsk fyrir fulltrúa ungliðahreyfinga.

Samstarf Norðurlanda og Rússlands er með miklum ágætum um þessar mundir.

Upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Pétursborg

Tengiliðir

Torkil Sørensen
Sími +45 33 96 04 46
Tölvupóstur ts@norden.org

Tengt efni
  • Livlig rundbordssamtale i Murmansk (News Item)

    Atomenergi er ikke blevet et mindre varmt emne efter ulykken på Fukushima værket i Japan, så der var livlig debat på en nordisk-russisk rundbordssamtale i Murmansk 28. – 29. april.