Wallmark bregst hart við ókeypis heróíni í Danmörku
Sænski þingmaðurinn Hans Wallmark, sem einnig á sæti í Norðurlandaráði hefur brugðist hart við því að nýlega hefur verið opnuð heilsugæslustöð fyrir heróínfíkla þar sem hægt er að fá heróínsprautur án endurgjalds. Hann sendir nú fyrirspurn til dönsku ríkisstjórnarinnar um það hvort þetta samræmist stefnu um fíkniefnalaus Norðurlönd.
"Hvernig gengur Norrænu ráðherranefndinni að samræma og samstilla baráttuna og forvarnir gegn fíkniefnaneyslu á Norðurlöndum?" spyr Hans Wallmark.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
"Telur danska ríkisstjórnin að heróín-heilsugæslustöðvar þar sem hægt er að fá ókeypis sprautur og fíkniefni samræmist stefnu um fíkniefnalaus Norðurlönd?" spyr Hans Wallmark, fulltrúi í borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs, í bréfi til dönsku ríkisstjórnarinnar.
Á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi 2009 beindi Norðurlandaráð þeim tilmælum til ríkisstjórnanna að stefnt yrði að því að fíkniefnasala yrði bönnuð með öllu á Norðurlöndum. Wallmark bendir á að tilboð danskra stjórnvalda til heróínfíkla geti leitt til þess að samband náist við fíkla, en dreifing á heróíni til fólks ókeypis geti á engan hátt stuðlað að því að gera að fíklana óháða eiturlyfjaneyslu.
"Hvernig gengur Norrænu ráðherranefndinni að samræma og samstilla baráttuna og forvarnir gegn fíkniefnaneyslu á Norðurlöndum?" spyr Wallmark í bréfinu.
Í fyrra sendi Hans Wallmark fyrirspurn til dönsku ríkisstjórnarinnar um hvort ríkisstjórnin væri fylgjandi því að lögleiða hasssölu. Þá fékk hann skýrt svar um að ríkisstjórnin gerði það ekki. Wallmark hefur áhyggjur af áhrifum, sem ákvörðunin getur haft í sænska hluta Eyrarsundassvæðisins og leggur áherslu á að ákvarðanir sem teknar séu um fíkniefni hafi áhrif á öllu svæðinu.
Hans Wallmark situr á þingi fyrir Hófsama samstöðuflokkinn og er auk þess fulltrúi í Norðurlandaráði.
Tengiliðir
Hans Wallmark
Tölvupóstur
hans.wallmark@riksdagen.se
