Sósíaldemókratar héldu 35. flokksþing sitt um daginn. Göran Persson var endurkjörinn formaður flokksins, en hann lenti líka upp á kant við þingið eftir hrokafull ummæli sem hann neyddist til að draga til baka. Bosse Ringholm varaforsætisráðherra á yfir höfði sér ákæru vegna gruns um skattalagabrot fótboltafélagsins sem hann var eitt sinn formaður í. Leiðtogi Vinstriflokksins Lars Ohly hefur beðist afsökunar opinberlega og er hættur að kalla sig kommúnista.
Til vinstri snú! Allir flokkarnir, sem eitt sinn mynduðu hægri vænginn í dönskum stjórnmálum, hafa nú breytt um stefnu eftir nákvæmum fyrirmælum æðstu manna í flokkunum. Vinstri (sem þrátt fyrir nafnið er hægriflokkur), Danski þjóðarflokkurinn og Íhaldsflokkurinn hafa allir sveigt stefnuna til vinstri. Vinstri vill jöfnuð, Íhaldsflokkurinn vill ekki vera eins borgaralegur og áður og Danski þjóðarflokkurinn ekki eins óvinveittur útlendingum Þetta minnir á...
Ísland veit stundum ekki alveg hvort það á að haga sér eins og smáríki eða stórveldi. Nýjasta dæmið um þetta er vandræðagangurinn, sem kom upp í tengslum við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem vakið hefur nokkra furðu hjá ríkisstjórnum hinna norrænu ríkjanna.
Finnar ganga að kjörborði í janúar og kjósa sér forseta. Allir vita að Tarja Halonen verður endurkjörin, hún er einfaldlega vinsælasti frambjóðandinn. Kosningarnar skipta engu að síður miklu máli fyrir almenning og stjórnmálaflokkanna, ekki vegna þess að forsetinn sé svo valdamikill heldur vegna þess að hann er þjóðkjörinn í beinum kosningum.
Á innan við þremur vikum hafa sprottið fram tveir nýir stjórnmálaflokkar í Svíþjóð sem bjóða munu fram í þingkosningunum, á sama tíma er einn af rótgrónu flokkunum að liðast í sundur vegna innbyrðis deilna. Nýliðarnir, Feministiskt Initiativ og Junilistan valda óvissu og taugatitringi í stjórnmálalífinu. Sökum þess að flokkarnir tveir geta haft afgerandi áhrif á niðurstöður kosninganna á næsta ári.
Það er ekki eingöngu skipt um ríkisstjórn í Noregi í haust. Stjórnarfyrirkomulagið breytist jafnframt og verður í fyrsta skipti í 20 ár skipuð ríkisstjórn sem er með meirihluta þingmanna Stórþingsins á bak við sig. Bundnar eru miklar vonir við stjórnina.
Davíð Oddsson, maðurinn sem ætlaði að verða leikari eða leikskáld en varð stjórnmálamaður, yfirgefur senn hið pólitíska leiksvið eftir að hafa leikið aðalhlutverk í 23 ár. Hann hefur staðið í sterkasta sviðsljósinu lengur en flestir aðrir stjórnmálaleiðtogar, ekki bara á Íslandi eða á Norðurlöndum, heldur í Evrópu. Þetta eru stærstu tíðindin í íslenzkum stjórnmálum nú í haust, ásamt dómsmálinu gegn stjórnendum alþjóðafyrirtækisins Baugs Group og andláti Reykjavíkurlistans.
Enn er ár þar til kosningar fara fram en baráttan þegar í algleymingi, allt er breytt í stjórnmálum í Svíþjóð. Eftir að hófsamir hófu að breytast og fóru að líkjast einhverju sem líkist jafnaðarmönnum flykkjast kjósendur til hinna nýju hófsömu, eins og þeir nefna sig. Kjósendur eru langþreyttir á Göran Person hversu blíðmáll sem hann hefur verið.
Í sumar snerist opinber umræða í Finnlandi um tvö stórmál; vega- og járnbrautarkerfið og fjölda sveitarfélaga í landinu. Í fjárlaganefndinni beindist öll athyglin að samgöngumálum, en önnur mál fengu nánast enga umfjöllun áður en þau voru afgreidd.
Það er mikill uppgangur í norsku efnahagslífi. Sameinuðu þjóðirnar staðhæfa að Noregur sé besta land í heimi að búa í. Þrátt fyrir það töpuðu ríkisstjórnarflokkarnir stuðningi næstum þriðja hvers kjósanda og var sópað út úr ríkisstjórnarskrifstofunum. Á þessu er einföld skýring: Olíuríkidæmið.
Við Danir höfum haldið fána siðprýðinnar hátt á loft og lengi getað státað af því að vera í efstu sætunum í alþjóðlegum siðferðismælingum. Hvað varðar tillitssemi við náungann er Danmörk einnig í fremstu röð og þegar mælt var stig siðspillingar reyndust Danir jafnframt með þeim bestu.
Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur eignazt nýjan leiðtoga. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, var kjörin formaður Samfylkingarinnar á landsfundi í maí, með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Ingibjörg fékk þannig tvo þriðjuhluta atkvæðanna en Össur Skarphéðinsson, svili hennar, sem verið hefur formaður flokksins frá árinu 2000, fékk aðeins þriðjung.
Í Evrópu verður haldin röð tónleika til stuðnings baráttunni gegn HIV og alnæmi. Tónleikaröðin ber yfirskriftina 46664 og voru hinir fyrstu í röðinni haldnir í Tromsø í Noregi. Þar sem ljóst var að ríkisstjórnin hygðist ekki styrkja tónleikana, fékk leiðtogi Verkamannaflokksins, Jens Stoltenberg, Framfaraflokkinn til liðs við sig til að fá málið í gegnum Stórþingið. Þess vegna var Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra púaður niður er hann mætti á senuna í Tromsø. Kosningabaráttan er hafin í Noregi.
6. júní var í fyrsta sinn haldið upp á þjóðhátíðardag Svía sem helgan dag. Ákvörðuninni um að fella í þess stað niður annan í hvítasunnu hefur verið mótmælt af ýmsum aðilum. Jafnframt fær Svíþjóð toppeinkunnir á alþjóðlegum lista og flestir Svíar segjast vera stoltir af landi sínu og þjóðerni.
Myrkar hugsanir um aðsteðjandi ógn sækja fast að Evrópubúum. Þar er um tvenns konar tilhneigingar að ræða. Hvorar tveggja rista djúpt og eru áhyggjuefni. Með sama hraða og verkamenn missa vinnu og verktakar fara halloka þróast almenningsálit sem virðist í sögulegu samhengi ógnvænlegt. Það finnur sér farveg í myndun lýðhyggjuflokka af ýmsu tagi. Kvíði vegna opinna landamæra í stækkaðri Evrópu kyndir undir æ fleiri efasemdum og gagnrýni á opnun og alþjóðahyggju.
Í danska framlagi þessa mánaðar er fjallað um stjórnarskrá Evrópusambandsins (ESB) sem sett hefur verið í bið, nýtt skipulagskort yfir sveitarfélög og ömt í Danmörku frá 2007 og lýðræðislegar breytingar á réttarreglum. Því miður eru manndráp og blóðpeningar tilefni þess síðastnefnda. Dómsmálaráðherra telur sáttaumleitan við lausnir deilna góða viðbót við almennar réttarvenjur. En nánustu bandamenn ríkisstjórnarinnar í Danska þjóðarflokknum eru ekki sammála.
Norska Stórþingið bætir úr gömlu óréttlæti og samþykkir lög sem færa Sömum umráðarétt yfir landsvæði sem er á stærð við Danmörku. Borgarstjórn Oslóar ætlaði á sama tíma að neita því að samafánanum yrði flaggað í Osló á þjóðhátíðardaginn 17. maí. Sósíalíski vinstriflokkurinn (SV) hefur jafnan stutt við bakið á hópum þeirra er minna mega sín í samfélaginu, en það var Hægriflokkurinn ásamt Verkamannaflokknum sem tryggðu meirihluta fyrir Finnmerkurlögunum. Það eru þingkosningar í Noregi í haust.
Undir lok vorþings Alþingis var á dögunum helst deilt um vegamál. Ástæðan er að mestur hluti fjárveitinga til vegamála fer venju samkvæmt til dreifbýliskjördæma en minnst rennur til höfuðborgarsvæðisins, þótt þar búi flestir og þar sé meirihluti bíla. Að þessu sinni mótmæltu ýmsir forystumenn bæjarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ólafur Þ. Stephensen greinir deilumálið og skýrir hvernig valdahlutföll á Alþingi eru að breytast.
Komið hefur til meiriháttar deilna á finnskum vinnumarkaði í vor sem snerta fyrst og fremst pappírsframleiðslu. Deilurnar snerust raunar ekki svo mjög um vinnutíma og hærri laun, heldur var þar mun fremur um valdabaráttu milli stéttarfélaga og vinnuveitenda að ræða. Það stríð er háð á leikvangi hnattvæðingar og mun færast í aukana í stækkaðri Evrópu.
Deilur um sinnulausu flóttamannbörnin eru nú ofarlega á baugi í pólitískum umræðum í Svíþjóð. Eftir að Spánverjar tóku sig til og lýstu yfir því að ólöglegum innflytjendum yrðu gefnar upp sakir var þráðurinn tekinn upp á ný varðandi sinnulausu flóttamannabörnin. Enn er ekki pólitískur meirihluti fyrir almennri sakaruppgjöf í Svíþjóð en búist er við að það verði eitt aðalmálið í baráttunni fyrir kosningarnar 2006.