Document Actions

September, 2011

Norrænu ríkin verða að tryggja breiða og samræmda styrki til landbúnaðarins

Umhverfisnefnd Norðurlandaráðs hefur sent framkvæmdastjórn ESB ályktun vegna endurskoðunar landbúnaðarstyrkja ESB. Við leggjum áherslu á að auka matvælaöryggi og tryggja fæðuframboð og viljum landbúnaðarstefnu sem eykur framleiðslu í öllum norrænu ríkjunum.

Eftir Ann Kristine Johansson, þingmann Jafnaðarmanna Svíþjóð og formann Umhverfisnefndar Norðurlandaráðs

Landbúnaðarstefna ESB verður endurskoðuð árið 2013 og standa samningaviðræður nú yfir í Brussel. Sem fulltrúar umhverfis- og atvinnumálanefnda Norðurlandaráðs teljum við að styrkir til landbúnaðar eigi í auknum mæli að gagnast samfélaginu í heild og efla sjálfbæra framleiðslu sem byggist á auknum fjölbreytileika.

Sem norrænir stjórnmálamenn gerum við okkur vel grein fyrir ábyrgð norænu ríkjanna staðbundið, svæðisbundið og á heimsvísu. Jafnframt teljum við að það sé mögulegt að endurskoða landbúnaðarstefnuna þannig að með henni verði matvælaframboð tryggt og hún hafi sem minnst skaðleg áhrif á umhverfið. Þetta er í stuttu máli kjarninn í sameiginlegum norrænum tillögum sem við höfum sent framkvæmdastjórn ESB, þeim fyrstu á sviði landbúnaðar nokkru sinni.

Við þurfum landbúnaðarstefnu sem eflir svæðisbundna þróun og tekur á úrlausnarefnum á sviði loftslagsmála. Og við þurfum að auka sameiginlegar rannsóknir og nýsköpun sem geta aukið framleiðni í sjálfbærum landbúnaði.

Hefðbundnir styrkir til landbúnaðar stuðla að aukinni framleiðslu stórra eininga en þeir deilast á fá býli sem oft eru ekki sjálfbær. Þetta mergsýgur jarðveginn, hefur skaðleg áhrif á umhverfið og minnkar framleiðslugetuna. Við teljum að það sé mikilvægt að styrkja minni býli, einnig til þess að tryggja fjölbreytni í framleiðslu, eins og við þekkjum frá verkefninu Ný norræn matargerðarlist, og tryggja áframhaldandi matvælaframleiðslu alls staðar á Norðurlöndum.

Samstarf um rannsóknir og nýsköpun milli landa ætti að vera miklu umfangsmeira, eins og við sjáum þegar á Norðurlöndum. Og aukið fjármagn til umhverfis- og loftslagsverkefna ætti að vera hluti af styrkjaáætluninni. Við viljum einnig fjölga styrkjum til að auka framleiðslu í sjálfbærum landbúnaði.

Að lokum teljum við að afnema eigi útflutningsstyrki til landbúnaðar og að landbúnaðarstyrki eigi að laga að stefnu um félagslega aðstoð. Í stuttu máli viljum við tryggja sjálfbært matvælaframboð með áherslu á staðbundna þróun og að tekið verði tillit til hnattrænnar ábyrgðar Norðurlanda og Evrópu.

Landbúnaðarstyrkir ESB eru mikilvægir okkur öllum, hvort sem við erum aðilar að ESB eða ekki og þessi ályktun fær stuðning frá stjórnmálamönnum norrænu ríkjanna fimm í umhverfis- og atvinnumálanefndum Norðurlandaráðs.

Þetta eru fyrstu sameiginlegu norrænu tillögurnar á sviði landbúnaðar sem sendar eru ESB og við munum nú vinna áfram í þjóðlöndunum og svæðisbundið að því að efla norrænar tillögur til framkvæmdastjórnarinnar til þess að tryggja breiða og samhæfða styrki til landbúnaðarins.

Tengt efni

 

Tengiliður

Tryggvi Felixson
Sími: +45 3396 0453
Tölvupóstur: