Document Actions

Fjárhagsáætlun og fjármál

Upplýsingar um fjármál og fjárhagsáætlanir Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar

Norræna samstarfið sem fram fer í gegnum Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina kostar um 40 danskar krónur á ári á hvern Norðurlandabúa.

Framlag Norðurlanda til samstarfsins í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni er reiknað út frá vergri þjóðarframleiðslu landanna. Árið 2010 er hlutfallsgreiðsla landanna eftirfarandi:

Danmörk: 21,6 %

Finnland: 17,4 %

Ísland: 1,2 %

Noregur: 28,1 %

Svíþjóð: 31,7 %

Lykiltölur

Norræna ráðherranefndin fjárhagsáætlun 2010: 910,183 MDKK (910 183 000 danskar krónur)

Norðurlandaráð fjárhagsáætlun 2010: 30 MDKK (30.000.000 danskar krónur)