- Info
Viðburðir
-
Norræn námstefna um meginþróun á norðurskautssvæðinu
-
Dagsetning
29/05 2012
til 29/05 2012
-
Nýjar hugmyndir um hvernig má innleiða niðurstöður Megatrends verkefnisins í pólitíska stefnumörkun.
-
Norræn ráðstefna um neytendarannsóknir: Neysluvenjur skoðaðar
-
Dagsetning
30/05 2012
til 01/06 2012
-
Markmiðið með ráðstefnunni er að safna saman vísindamönnum af öllum sviðum til að skoða neysluvenjur: Hvernig eru neysluvenjur skilgreindar í ólíkum aðstæðum? Hvaða áhrif hefur síbreytilegur heimur á neysluvenjur og neytendur? Hverjar eru helstu fræðilegu tilgátur og aðferðir nú og í framtíðinni?
-
Nordic Seed Capital Summit 2012
-
Dagsetning
30/05 2012
til 30/05 2012
-
Nordic Seed Capital Summit er hluti af Nordic to Global Initiative, sem miðar að því að styðja þróun og alþjóðavæðingu ungra nýsköpunarfyrirtækja á Norðurlöndum.
-
Karlmennska á breytingatímum – karlar, jafnrétti og lífsgæði
-
Dagsetning
31/05 2012
til 01/06 2012
-
Nýir tímar, nýjar lausnir? Hvað er að vera strákur eða karl í dag? Hvernig er hægt að segja að konur og karlar séu karlmannlegar? Hvernig þróast hið „karlmannlega rými" í þjóðfélagi með auknu jafnrétti?
Á ráðstefnunni verða kynntar nýjar rannsóknir á körlum og hvað telst karlmannlegt, kynferði og valdi, heilbrigði og lífsgæðum. Megináhersla ráðstefnunnar er á rannsóknir með áherslu á aukna samþættingu karlmennskurannsókna í aðrar gerðir rannsókna, sérstaklega hvað varðar jafnrétti og lífsgæði. Hluti ráðstefnunnar fjallar um stefnumörkun, þar sem fjallað verður um dæmi um þróunarvinnu og raundæmi um notkun karlmennskusjónarmiða.
-
10. norræna ráðstefnan um mataræði haldin í Reykjavík, dagana 3. - 5. júní, 2012.
-
Dagsetning
03/06 2012
til 05/06 2012
-
Markmiðið með ráðstefnunni er að fylgjast með stefnum og straumum og skapa umræðuvettvang fyrir næringarfræðinga og aðra fagaðila sem vinna að málefnum sem tengjast mataræði og heilsu. Áhersla verður á nýjustu rannsóknir á sviði matvæla, mataræðis og heilsu á Norðurlöndum, en einnig á alþjóðavettvangi.
-
Norræn nýsköpunarráðstefna
-
Dagsetning
04/06 2012
til 06/06 2012
-
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem vinna með símenntun, markmiðið er að skapa umræðu milli stefnumótenda, símenntunarstofnana og aðila vinnumarkaðarins.
Á ráðstefnunni verður rætt um nýsköpun og sköpunarkraft í ljósi norræna velferðarlíkansins og frá sjónarhóli símenntunar.
Umsjón: Norræna tengslanetið um fullorðinsfræðslu
-
Hunting and Protecting of Marine Mammals – A Clash of Cultures?
-
Dagsetning
04/06 2012
til 05/06 2012
-
Ráðstefna í Færeyjum 4.-5. júní
-
„Drop by Drop" verðlaunaathöfn og umræður
-
Dagsetning
05/06 2012
til 05/06 2012
-
Hans hátign krónprins Friðrik mun heiðra sigurvegara „Drop by Drop" samkeppninnar með nærveru sinni á verðlaunaathöfninni. Christian Friis Bach, þróunarráðherra Danmerkur flytur opnunarræðu við pallborðsumræðurnar: Hvernig getum við stuðlað að sjálfbærum lausnum á sívaxandi vatnsvandamálum heimsins? Kim Nøhr Skibsted, Group Vice President, Grundfos verður meðal þátttakenda í umræðum um sjálfbærar lausnir á vatnsnotkun og hvernig norrænu ríkin geta stuðlað að bættri vatnsnýtingu á alþjóðavettvangi.
-
Norræn strandmenningarráðstefna
-
Dagsetning
06/06 2012
til 08/06 2012
-
Markmiðið með ráðstefnunni er að efla þekkingu og meðvitund um menningarsögulegt fiskmeti . Það er stjórnarnefnd um strandmenningu sem hefur umsjón með ráðstefnunni.
