Document Actions

Eva Franchell

September 2010: Kosningarnar snúast eingöngu um völd

Kosningabaráttan í Svíþjóð hefur snúist um kröfu hægribandalagsins um skattalækkanir og um kröfu rauðgrænu stjórnarandstöðunnar um aukna velferð. Nú, þegar nokkrir dagar eru til kosninga, bendir allt til þess að hægriflokkarnir fari með sigur af hólmi Allar skoðanakannanir sýna að hægristjórnin haldi velli.

17/09 2010

Enda þótt munurinn á fylkingunum tveimur sem berjast um völdin í Svíþjóð sé ekki mikill hefur rauðgræna stjórnarandstaðan lengi þurft að reka af sér slyðruorðið.
Og ef til vill hefur Fredrik Reinfeldt, leiðtogi hófsamra hægrimanna, verið of sigurviss. Þegar síðasta sjónvarpseinvígi þeirra Monu Sahlin lauk sýndu skoðanakannanir að hann hefði haft betur, en leiðtoga jafnaðarmanna tókst engu að síður að snúa fleiri kjósendur á sitt band.

„Fjölmiðlar á móti Sahlin”

Daginn eftir sjónvarpseinvígið birtist í menningarkálfi dagblaðsins Aftonbladet grein skrifuð af nafnlausum hópi blaðamanna frá hægriblöðunum undir fyrirsögninni: „Fjölmiðlar á móti Sahlin”

Blaðamennirnir vísuðu til rannsóknar sem fjölmiðlafræðingurinn Ester Pollack, hafði gert á forsíðufréttum stærstu dagblaðanna síðustu tvo mánuði. Hún sýndi að átján sinnum var fjallað um Monu Sahlin á neikvæðan hátt, en Reinfeldt forsætisráðherra fékk einungis fimm sinnum viðlíka umfjöllun.

Blaðamennirnir halda því fram að rekin hafi verið fordæmalaus áróðursherferð gegn Monu Sahlin.

Henrik Oscarsson, prófessor í stjórnmálafræði, staðhæfir jafnframt að fréttaflutningur stærsta dagblaðsins, Dagens Nyheter, hafi í aðdraganda kosninganna verið óheiðarlegur og ómálefnalegur.

Grein blaðamannanna olli miklu fjaðrafoki og fór sem eldur um sinu um netheima. Nú er spurt hvort sú mótmælaalda dugi Sahlin til að snúa vörn í sókn eða hvort Reinfeldt haldi velli.

Og enda þótt Reinfeldt virðist fullur sjálfstrausts er ekki víst að hann fari með sigur af hólmi í kosningunum.

Það gæti allt eins orðið Jimmie Åkesson, leiðtogi Svergiedemokraterna, sem hefur sópað til sín fylgi á síðustu vikum. Hann fær sífellt meiri umfjöllun í fjölmiðlum og samkvæmt skoðanakönnunum nær flokkur hans, sem kyndir undir útlendingahatri, einum manni á þing, niðurstaða sem aðrir flokkar hafa varað við.

Svíþjóð gæti því bæst í hóp þeirra Evrópuríkja sem eiga fulltrúa á sínu þjóðþingi sem reka fjandsamlega stefnu gegn útlendingum.

Undrast tillögu Dana

Flokkar til hægri og vinstri hafa lýst andúð sinni á stefnumálum Sverigedemokraterna. Fjölmiðlar hafa einnig sett flokkinn út í kuldann og ábyrgðarmaður útsendinga á sjónvarpsstöðinni TV4 neitaði að senda út óritskoðaða kosningaauglýsingu frá honum.

Það breytti engu að danskir stjórnmálamenn vildu senda kosningaeftirlitsmenn til Svíþjóðar. Þeirri tillögu svöruðu menn strax með háðsglósum og forundran.

Ólíkt danska þjóðarflokknum eru Sverigedemokraterna ekki óánægjuflokkur. Margir forystumenn flokksins koma úr hreyfingu hvítra kynþáttahatara. Þannig afhjúpaði Expo-blaðið á dögunum að margir flokksmenn tengjast starfsemi nasista.

21 frambjóðandi flokksins til sveitarstjórna, landsþinga og þings hefur jafnframt verið liðsmaður í nasistahreyfingunni Nordisk.nu.

Í vor sem leið lofaði Jimmie Åkesson að reka þá úr flokknum sem hefðu gerst brotlegir við lög. Og hann hefur klifað á því í kosningabaráttunni að allir þingframbjóðendur flokksins hafi mátt framvísa sakarvottorði áður en þeim var raðað á framboðslista.

Stóru flokkarnir hafa tekið þann pól í hæðina að taka ekki þátt í opinberum umræðum við frambjóðendur Sverigedemokraterna. Flokkurinn hefur var heldur ekki hafður með í lokaumræðum frambjóðenda hjá sjónvarpsstöðvunum.

Engu að síður voru það fjölmiðlarnir sem komu Jimmie Åkesson og liðsmönnum hans að lokum í sviðssljósið.

Kosningarnar – sápuópera í beinni útsendingu

Kosningarnar snúast um fjölmiðladramatík, kannski dæmigerða sænska dramatík og eru ef til vill bara tímanna tákn. Þær snúast ekki lengur um lýðræðislegt ferli, heldur hafa þær snúist upp í sápuóperu á besta útsendingartíma. Sjö stjórnmálaflokkar hafa skipað sér í tvær andstæðar fylkingar sem berjast til sigurs.

Í upphafi kosningabaráttunnar settu fjölmiðlarnir af stað nokkurs konar uppboð á kosningaloforðum; Hver ætlar að bjóða eftirlaunaþegunum mest? Hvenær eiga skólabörnin að taka fyrstu prófin?

Öll svör voru borin saman og stjórnmálaskýrendur skáru úr um það hvaða fylking fór með sigur af hólmi í hverri lotu. Auðvelt var að fylgjast með þessarri sápu í grafískum uppsetningum, töflum og netkosningunum, en illgerlegt var hins vegar að halda uppi málefnalegri umræðu um hugmyndafræði.

Kosningabaráttan varð að samkeppni sem lýst var án nokkurrar forsögu og algerlega úr samhengi við veruleika venjulegra kjósenda. Allt tal um samræður við kjósendur voru orðin tóm, áður en langt um leið voru þeir aftur orðnir venjulegir greiðendur afnotagjaldanna.

Valdabarátta setur svip sinn á kosningarnar

Þegar fjölmiðlarnir höfðu tekið fyrir öll málefni var ekkert annað eftir en úrslitalotan, lokabaráttan um völdin, og þá fyrst var flokksmönnum Sverigedemokratarna boðið að koma inn úr kuldanum í kastljós fjölmiðlanna. Flokkurinn getur nefnilega ráðið úrslitum um það hvaða fylking fær völdin.

Enn eru nokkrir kosningaþættir eftir í sjónvarpi og enginn vafi leikur á því að sápuóperunni lýkur á dramatískum hápunkti. Því fullyrða má að burtséð frá því hver ber sigur úr býtum þá snerust þessar kosningar mjög lítið um hugmyndafræði og mjög mikið um valdabaráttu.

Höfundurinn ber sjálfur ábyrgð á innihaldi greinarinnar

Anonymous says:
24/11 2010 00:18

Vad skönt att SD äntligen kom in i riksdagen! Det är tveklöst det bästa (eller minst dåliga) av de partierna som verkar i Sverige. Man får hoppas att detta betyder mera öppen, ansvarig, jordnära och framtidsinriktad politik - till skillnad från den ansvarslösa, kortsiktiga, svenskfientliga och populistiska politik som varit så sorgligt vanlig de senaste åren.

Jag tycker emellertid at SD:s invandringspolitik är alldeles för liberal - där ligger Svenskarnas Parti närmast mina åsikter. Men man får tro och hoppas att tongångarna kommer att skärpas så småningom.
Invandringen verkar vara det största problemet Sverige någonsin haft, så det behövs snabba och hårda tag om landet skall kunna räddas från undergången. Med lite tur och hårt arbete kommer man förhoppningsvis även att få arbetslösheten och brottsligheten ner till - och försvaret och välfärden upp på - nivåer det går att leva med.

Commenting has been disabled.

Tengiliður

Michael Funch
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden