Document Actions
Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.

Birgir Guðmundsson

Stjórnskipan og stöðugleiki
Birgir Guðmundsson
15/12 2004
Vænta má að tvennt verði einkar áberandi í umræðum á Íslandi í kringum áramótin, efnahagsmál og lýðræði. Fjárlög, sem afgreidd voru af Alþingi í byrjun mánaðarins, hafa verið gagnrýnd nokkuð af stjórnarandstöðunni. Endurspeglar umræðan á þingi áhyggjur ýmissa í þjóðfélaginu af stöðugleika efnahagslífsins. Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd til að endurskoða stjórnarskrá landsins og verður valdsvið forseta m.a. skoðað, en það var tilefni mikilla deilna síðastliðið sumar.
Sárin sleikt eftir kennaraverkfall
Birgir Guðmundsson
11/11 2004
Grunnskólakennarar á Íslandi hafa verið í verkfalli í tvo mánuði og lauk því ekki fyrr en Alþingi greip í taumana með lagasetningu. Verkfallið hefur haft alvarlegar afleiðingar og óvíst hvenær þjóðfélagið nær að jafna sig að fullu. Aðrar stéttir munu hugsanlega krefjast aukinna launahækkana, sem gæti leitt til launasprengingar og stofnað efnahagsstöðugleikanum í hættu. Kennaradeilan hefur skyggt á önnur stórtíðindi af vettvangi þjóðmálanna, eins og t.d. ólöglegt samráð olíufélaganna þriggja. Ætla má að þau fái meiri athygli nú.
Vetrarlegt á vinnumarkaði
Birgir Guðmundsson
27/10 2004
Mikil bjartsýni ríkir meðal Íslendinga um kjör sín og hefur væntingavísitala Gallups sjaldan verið hærri. Ýmis teikn eru þó á lofti um að brátt muni draga úr bjartsýni manna. Sérstaklega gætu átök, sem nú eru á vinnumarkaði, og hugsanleg verðbólga sett strik í reikninginn. Verkfall kennara hefur nú staðið vel á annan mánuð. Hefur pólitísk umræða í landinu að miklu leyti snúist um það. Samhliða þeirri umræðu hafa menn deilt um hlutverk verkalýðsfélaga, félagafrelsi og lágmarkskjör.
Íslenskur ráðherrakapall
Birgir Guðmundsson
30/09 2004
Samkvæmt stjórnarsáttmála mun Davíð Oddsson hætta sem forsætisráðherra í september og Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra taka við. Nýlega batt Davíð Oddsson enda á vangaveltur um það hvað hann hyggst taka sér fyrir hendur er hann tilkynnti að hann myndi setjast í stól utanríkisráðherra. Mörg mál eru hins vegar óleyst í samskiptum stjórnarflokkanna og spennandi verður að fylgjast með framvindu mála, eftir að þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hafa stólaskipti.
Efnahagur og kjaramál í brennidepli
Birgir Guðmundsson
29/09 2004
Halldór Ásgrímsson, nýr forsætisráðherra Íslands, hefur nýlega haft stólaskipti við Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Stólaskiptin voru liður í samkomulagi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks þegar flokkarnir mynduðu þriðju samsteypustjórn sína í röð vorið 2003. Ólíklegt er að nýi forsætisráðherrann fái að sitja lengi á friðarstóli. Efnahags- og kjaramál geta reynst honum þung í skauti. Jafnframt hefur staðið nokkur styr um ráðherraskiptin milli flokkanna hinn 15. september.
Þjóðaratkvæði og forsetakosningar
Birgir Guðmundsson
23/06 2004
Í fyrsta skipti í 60 ára sögu lýðveldisins hefur forseti Íslands neitað að staðfesta lög sem meirihluti Alþingis hefur samþykkt. Hin svokölluðu fjölmiðlalög verða því lögð undir þjóðaratkvæði. Málið hefur valdið miklum deilum á Íslandi. Bæði hafa menn deilt um sjálf fjölmiðlalögin en jafnframt um valdsvið forseta og Alþingis. Ekkert útlit er fyrir að deilunum linni í bráð.
Fjölmiðlar í forgrunni
Birgir Guðmundsson
26/05 2004
Spurningin um eignarhald á fjölmiðlum og leiðir til að tryggja sem fjölbreyttasta fjölmiðlaflóru á Íslandi hefur síðustu vikur þróast upp í eitt eldfimasta deilumál sem fram hefur komið lengi í íslenskum stjórnmálum. Mörgum þykir að raunar ótrúlegt hvernig mál, sem allir íslenskir stjórnmálamenn voru sammála um að þarfnaðist gagnrýninnar skoðunar fyrir sex mánuðum síðan, hefur nú að valda svo miklum óróa í íslensku samfélagi sem raun ber vitni.
Stefnan mörkuð á vinnumarkaði
Birgir Guðmundsson
24/03 2004
Frumvarp um aukin lífeyrisréttindi æðstu embættismanna ríkisins sem lagt var fram í desember vakti mikla gremju verkalýðshreyfingarinnar og virtist ætla að setja kjarasamninga í uppnám. Ísköld skynsemishyggja varð þó ofan á og nýgerður samningur atvinnurekenda og stærstu samtaka ófaglærðra verkamanna er talinn tryggja stöðugleika í efnahagsmálum næstu árin.
Febrúarátök landsfeðra
Birgir Guðmundsson
01/02 2004
Í febrúarmánuði beindist athygli íslensku þjóðarinnar að stjórnarskránni og stjórnskipunarmálum. Tilefni þessa voru óvenjuleg orðaskipti milli forseta Íslands og forsætisráðherra í kjölfar hátíðahalda vegna 100 ára afmælis heimstjórnar á Íslandi. Þessi deila hefur ekki síst vakið athygli þar sem forsetakostningar eru framundan og forsetinn og forsætisráðherra eru gamlir pólitískir fjendur.

 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)