Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.
- Info
Björg Eva Erlendsdóttir
-
Ný ríkisstjórn á Íslandi
-
Björg Eva Erlendsdóttir
-
21/06 2006
-
Forsætisráðherra Íslands og formaður Framsóknarflokksins Halldór Ásgrímsson hætti óvænt í stjórnmálum í byrjun júní. Nýr forsætisráðherra er Geir H. Haarde formaður sjálfstæðisflokksins. Stórfurðulegar sviptingar í Framsóknarflokknum eru ástæða þess að ný ríkisstjórn, mynduð af sömu flokkum, með sömu stefnu hefur tekið við á Íslandi. Skipt var um marga ráðherra, þótt aðeins séu tíu mánuðir til næstu Alþingiskosninga.
-
Framtíðarhorfur íslensks efnahagslífs
-
Björg Eva Erlendsdóttir
-
24/05 2006
-
Íslenskt efnahagslíf hefur átt við veikindi að stríða síðustu mánuði. Eftir fall íslensku krónunnar um í byrjun mars, hefur verðbólgan rokið upp og efnahagslífið sýnt ýmis einkenni ójafnvægis. Deilt er um hvort sjúkdómseinkenni í íslensku efnahagslífið séu til marks um smávægilegt kvef eða hættulega flensu.
-
Bandaríkjaher yfirgefur Ísland
-
Björg Eva Erlendsdóttir
-
26/04 2006
-
Der har hersket uvished om Islands forsvar siden 15. marts i år, da de amerikanske myndigheder meddelte deres ensidige beslutning om at rejse fra Island med deres tropper. Óvissa ríkir um varnir Íslands frá því fimmtánda mars síðastliðinn, þegar bandarísk stjórnvöld tilkynntu einhliða ákvörðun sína um að fara með herlið sitt burt af Íslandi.
Ákvörðunin var tilkynnt í símtali til Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra. Hinumegin á línunni var Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. Íslenskum stjórnvöldum varð bylt við þar sem samningaviðræður stóðu yfir við Bandaríkjamenn um framtíð varnarsamningsins. Hvorki Íslendingar né Bandaríkjamenn hafa sagt honum upp. En það má gera, með átján mánaða fyrirvara.
-
Harðar deilur um vatn
-
Björg Eva Erlendsdóttir
-
22/03 2006
-
Stærsta pólitíska deilan á Íslandi þetta vorið er um eignarrétt á vatni. Ríkisstjórnin vill að sett verði ný lög um vatn og lagði iðnaðarráðherra frumvarpið fram á Alþingi fyrir jól. Lög um rennandi vatn, bráðnaða jökla, stöðuvötn, fossa, uppsprettur og íslenska rigningu. Tekið er á vatni í öllum sínum myndum. En stjórnarandstaðan er á móti setningu laganna og hefur spurningin um hver á vatnið staðið algjörlega föst á Alþingi Íslendinga í meira en tvær vikur. Samkomulag hefur nú náðst um að ljúka málinu. Ágreiningur um kjarna málsins stendur enn óleystur.
-
Valdabarátta á Íslenska Fjölmiðlamarkaðnum
-
Björg Eva Erlendsdóttir
-
25/01 2006
-
Fréttir fjölmiðla og stjórnmálaumræða á Íslandi hafa síðustu vikur snúist mest um fjölmiðlana sjálfa - stjórn þeirra og rekstur. Siðareglur fjölmiðla, völd fjölmiðla, skyldur fjölmiðla, eigendur fjölmiðla, rekstrarform fjölmiðla, meiðyrðalöggjöf – hvort gul pressa eigi rétt á sér og hvort lítið þjóðfélag þoli gula pressu.