Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.
- Info
Göran Djupsund
-
Norræn samvinna í þágu Evrópu?
-
Göran Djupsund
-
23/06 2005
-
Myrkar hugsanir um aðsteðjandi ógn sækja fast að Evrópubúum. Þar er um tvenns konar tilhneigingar að ræða. Hvorar tveggja rista djúpt og eru áhyggjuefni. Með sama hraða og verkamenn missa vinnu og verktakar fara halloka þróast almenningsálit sem virðist í sögulegu samhengi ógnvænlegt. Það finnur sér farveg í myndun lýðhyggjuflokka af ýmsu tagi. Kvíði vegna opinna landamæra í stækkaðri Evrópu kyndir undir æ fleiri efasemdum og gagnrýni á opnun og alþjóðahyggju.
-
Davíð berst við Golíat
-
Göran Djupsund
-
25/05 2005
-
Komið hefur til meiriháttar deilna á finnskum vinnumarkaði í vor sem snerta fyrst og fremst pappírsframleiðslu. Deilurnar snerust raunar ekki svo mjög um vinnutíma og hærri laun, heldur var þar mun fremur um valdabaráttu milli stéttarfélaga og vinnuveitenda að ræða. Það stríð er háð á leikvangi hnattvæðingar og mun færast í aukana í stækkaðri Evrópu.
-
Forsetakosningarnar pólitískt hitamál í Finnlandi
-
Göran Djupsund
-
27/04 2005
-
Eftir tæpa níu mánuði kjósa Finnar nýjan forseta. Enginn veit með vissu hvort núverandi forseti, hin vinsæla Tarja Halonen, gefur kost á sér. Hún hefur lofað að gefa svar við því með góðum fyrirvara. Margt hefur borið á góma í umræðunum fyrir kosningarnar, allt frá opinberu valdi forseta niður í skilnað forsætisráðherrans.
-
Hærri áfengisskattar í Finnlandi?
-
Göran Djupsund
-
23/03 2005
-
Fyrir ári voru áfengisskattar í Finnlandi lækkaðir svo um munaði. Undanfarið ár hafa Finnar og aðrir Norðurlandabúar beðið þess að reynsla fengist af þessari tilraun. En nú þegar hefur umönnunarráðherrann tekið sig til og lagt til að þeir verði hækkaðir á ný. Opinbert vald forseta hefur einnig komið til umræðu í Finnlandi og að hve miklu leyti beri að draga úr því.
-
Lýst eftir umræðum um forsetaembættið
-
Göran Djupsund
-
23/02 2005
-
Nú, þegar tæpt ár er eftir til næstu kosninga, beinist athyglin í æ ríkara mæli að forsetanum, bæði embættinu sjálfu og persónunni sem gegnir því. Hugmyndir hafa komið fram um að Finnar fái formlegri forseta með styttri setu í embætti og kjörinn af þinginu. Umræður eru þó á þá lund að lítil von virðist um breytingar, þar sem mönnum hættir til að stimpla grundvallarsjónarmið sem gagnrýni á núverandi forseta, hina vinsælu Halonen. Um þetta fjallar Göran Djupsund í febrúarpistli sínum.
-
Ólíkir heimar - um flóðbylgjuna í Svíþjóð og Finnlandi
-
Göran Djupsund
-
26/01 2005
-
Bæði fjölmiðlar og stjórnvöld hafa í janúar verið upptekin af hörmungunum af völdum flóðbylgjunnar í Asíu um jólin. Fjölmiðlar í Svíþjóð og Finnlandi fjölluðu á mjög ólíkan hátt um atburðina. En það er einnig munur á því hvernig stjórnvöld í löndunum tóku á málunum og þeirri gagnrýni sem þau urðu fyrir. Göran Djupsund hefur fylgst með fréttaflutningi fjölmiðla og viðbrögðum stjórnvöldum í Finnlandi og Svíþjóð.
-
Óvæntur lofsöngur um finnska utanríkisstefnu
-
Göran Djupsund
-
15/12 2004
-
Finnsk utanríkisstefna hefur verið í brennidepli í umræðum í Finnlandi í haust. Mörgum þótti athyglisvert þegar tveir samhljóða leiðarar birtust í blöðunum, sinn með hvorum flokkslit. Þetta á að sannfæra finnsku þjóðina um að utanríkistefnan sé með ágætum, þar verði hvergi vikið frá fyrri línu og að forseti og ríkisstjórn séu hjartanlega sammála um þá línu.
-
„ ...á feigðarflótta.“
-
Göran Djupsund
-
24/11 2004
-
Í Finnlandi er hætt við að ekki takist að ná fram miðstýrðum kjarasamningi. Mikið ber á milli hjá aðilum vinnumarkaðarins. Vinnuveitendur kjósa dreifðari samninga þar sem meira er um sveigjanleika og tillit tekið til staðhátta. Verkalýðsfélögin, en þar ríkir ekki full samstaða, vilja heildarsamning með almennum launahækkunum og breytingum á aðferðum og skilyrðum varðandi uppsagnir. Ríkisstjórnin, sem hefur skilið skattahlið fjárlaganna eftir opna í von um að viðræður leiði til miðstýrðs samnings og lítilla launahækkana, gæti beðið álitshnekki ef það mistekst. Að mati Görans Djupsund er orsakanna á því sem nú á sér stað í samningsgerð í Finnlandi að leita í þrýstingi á kerfisbreytingar í hefðbundnum norrænum velverðarþjóðfélögum vegna hnattvæðingar efnahagsmála.
-
Sveitarstjórnarkosningar endurspegla velferðarvandamál
-
Göran Djupsund
-
27/10 2004
-
Sveitarstjórnarkosningarnar í Finnlandi endurspegluðu þau vandamál sem Finnar eiga nú helst við að etja. Á margan hátt er þar um velferð að ræða og það að hafa ráð á henni. Ein aðgerð, sem verið hefur efst á baugi, er að sameina fámennari sveitarfélög til að minnka þannig rekstrarkostnað. En stjórnsýsluaðgerðir leysa ekki grundvallarvanda sveitarfélaga: íbúa sem komnir eru til ára sinna og brottfluttan vinnukraft.
-
Misræmi milli borgar og landsbyggðar –ekki bara hagþróun!
-
Göran Djupsund
-
29/09 2004
-
Ný rannsókn frá Tölfræðimiðstöðinni sýnir að finnsk sveitarfélög búa við afar ólíkar aðstæður. Þar höfum við dæmi um nokkra þéttbýlisstaði, einkum í suðurhluta Finnlands, þar sem þróunin er á góðu róli. Hins vegar eru dæmi um mörg sveitarfélög í strjálbýli þar sem þessu er þveröfugt farið. Atvinnuleysi er að meðaltali um 9% á landsvísu, allt niður í 4% í byggðakjörnunum en allt að 25% á þeim strjálbýlu svæðum sem harðast hafa orðið úti.
-
Pólitískar tilraunablöðrur yfir Finnlandi
-
Göran Djupsund
-
28/08 2004
-
Fjölmiðlar sem og stjórnmálamenn virðast lifa sínu eigin sumarlífi. Til marks um það eru fyrirbæri sem kalla má tilraunablöðrur og kenna við sumar. Fulltrúar atvinnuvega og atvinnulífs viðra oft á sumrin skoðanir sem eru á jaðri þess sem annars telst pólitískt gjaldgengt. Jarðsprengjur, kjarasamningar og jarðrækt hafa verið til skoðunar í Finnlandi í sumar.
-
Pólitísk reynsla gaf afrakstur
-
Göran Djupsund
-
23/06 2004
-
Þótt kosningaþátttaka hafi aukist um 10% er útlitið samt ekki rósrautt. Reyndir stjórnmálamenn höfðu betur í baráttunni við fræga fólkið. Eftir er að sjá hvort þetta fyllir finnsku þjóðina eldmóði.
-
Lægri áfengisskattar- aðferð sem dugar?
-
Göran Djupsund
-
26/05 2004
-
Áfengi er efst á baugi í Finnlandi um þessar mundir. Fjölmiðlar og stjórnmálamenn fylgjast af miklum áhuga með þróun mála eftir að áfengisskattar voru lækkaðir fyrir skömmu. Einnig er mikill áhugi á stefnumálum og framtíðarhorfum rauð-grænu ríkisstjórnarinnar.
-
Forsetinn lætur í sér heyra, stjórnmálaleiðtogar fljúga til Brussel
-
Göran Djupsund
-
24/03 2004
-
Tarja Halonen, forseti Finnlands, er í auknum mæli farin að taka þátt í pólitískum umræðum í landinu. Staða hennar er svo sterk að hún hefur efni á að lýsa opinberlega skoðunum sem eru bæði með og á móti stefnu ríkisstjórnarinnar. Hún hefur meðal annars látið í sér heyra um aðild Finnlands að Atlantshafsbandalaginu.
-
Hljóðlát togstreita í Finnlandi
-
Göran Djupsund
-
01/02 2004
-
Í Finnlandi heldur ríkisstjórnin upp á eins árs afmæli í friði og spekt, en undir yfirborðinu fer fram togstreita. Meðal annars er tekist á um stefnu Finnlands í málefnum ESB, en einnig um hver eigi að fara með forystu í flokkunum. Kjósendur og stjórnmálamenn þurfa að svara því hvort sé mikilvægara; að geta valið milli stjórnmálamanna, eða að geta valið milli stefnumiða.