Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.
- Info
Hans Kristian Amundsen
-
Mandela-æði í Noregi
-
Hans Kristian Amundsen
-
23/06 2005
-
Í Evrópu verður haldin röð tónleika til stuðnings baráttunni gegn HIV og alnæmi. Tónleikaröðin ber yfirskriftina 46664 og voru hinir fyrstu í röðinni haldnir í Tromsø í Noregi. Þar sem ljóst var að ríkisstjórnin hygðist ekki styrkja tónleikana, fékk leiðtogi Verkamannaflokksins, Jens Stoltenberg, Framfaraflokkinn til liðs við sig til að fá málið í gegnum Stórþingið. Þess vegna var Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra púaður niður er hann mætti á senuna í Tromsø. Kosningabaráttan er hafin í Noregi.
-
Söguleg lög og umdeildur fáni
-
Hans Kristian Amundsen
-
25/05 2005
-
Norska Stórþingið bætir úr gömlu óréttlæti og samþykkir lög sem færa Sömum umráðarétt yfir landsvæði sem er á stærð við Danmörku. Borgarstjórn Oslóar ætlaði á sama tíma að neita því að samafánanum yrði flaggað í Osló á þjóðhátíðardaginn 17. maí. Sósíalíski vinstriflokkurinn (SV) hefur jafnan stutt við bakið á hópum þeirra er minna mega sín í samfélaginu, en það var Hægriflokkurinn ásamt Verkamannaflokknum sem tryggðu meirihluta fyrir Finnmerkurlögunum. Það eru þingkosningar í Noregi í haust.
-
Utanríkisráðuneyti Noregs gagnrýnt harðlega
-
Hans Kristian Amundsen
-
27/04 2005
-
Niðurstöður óháðrar skýrslu sem gerð var um viðbrögð norskra stjórnvalda við flóðbylgjuhamförunum í Asíu eru harðar og hlífa utanríkisráðuneytinu ekki í neinu. Ákvörðunarfælni, viðbragðsáætlanir við hamförum skorti, engar æfingar höfðu verið haldnar og það vantaði búnað til að vinna úr miklu magni gagna. Þetta er meðal þess sem helst var gagnrýnt. Enginn Norðmaður lést vegna vangetu yfirvalda til að bregðast við hamförum, en það er líka hið eina jákvæða í skýrslunni.
-
Söguleg umskipti
-
Hans Kristian Amundsen
-
23/03 2005
-
Miðjuflokkurinn í Noregi hefur tekið ákvörðun. Hann ætlar að vinna með Verkamannaflokknum í kosningunum í haust og hann er hlynntur olíuborun í Barentshafi. Aukinn eignarréttur hins opinbera og andstaða gegn lækkun skatta sameinar „rauðgrænu“ flokkana fyrir kosningarnar.
-
Á milli Rússlands og Bandaríkjanna
-
Hans Kristian Amundsen
-
23/02 2005
-
Rússland og Bandaríkin hafa uppgötvað að hagsmunir þeirra fara saman á norðurslóðum, þar sem samnefnarinn er gas og olía, peningar og völd. Á hliðarlínunni stendur svo Noregur og margir spyrja nú hvort stefnuræða ríkisstjórnarinnar í málefnum norðursvæðanna verði nógu ákveðin til að aftur verði tekið tillit til Noregs í málefnum norðursins.
-
Mörgum spurningum ósvarað fyrir kosningarnar
-
Hans Kristian Amundsen
-
26/01 2005
-
Kosningabaráttan í Noregi er hafin, þótt kosningarnar séu ekki fyrr en í haust. Núverandi minnihlutastjórn stendur tæpt. Hægriflokkurinn lofar skattalækkunum og vill að Noregur gangi í ESB, en Kristilegi þjóðarflokkurinn vill halda ríkisstjórnarsamstarfi áfram, hafnar ESB-aðild og vill minni skattalækkanir. Á vinstri vængnum mynda Verkamannaflokkurinn, Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðjuflokkurinn bandalag. ESB er líka ásteytingarsteinn þessara flokka. Enginn vill taka eindregna afstöðu sem stendur.