Document Actions
Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.

Kaa Eneberg

Fyrsti þjóðhátíðardagur Svía – en hverju er fagnað?
Kaa Eneberg
23/06 2005
6. júní var í fyrsta sinn haldið upp á þjóðhátíðardag Svía sem helgan dag. Ákvörðuninni um að fella í þess stað niður annan í hvítasunnu hefur verið mótmælt af ýmsum aðilum. Jafnframt fær Svíþjóð toppeinkunnir á alþjóðlegum lista og flestir Svíar segjast vera stoltir af landi sínu og þjóðerni.
Flóttamönnum gefnar upp sakir – hitamál í Svíþjóð
Kaa Eneberg
25/05 2005
Deilur um sinnulausu flóttamannbörnin eru nú ofarlega á baugi í pólitískum umræðum í Svíþjóð. Eftir að Spánverjar tóku sig til og lýstu yfir því að ólöglegum innflytjendum yrðu gefnar upp sakir var þráðurinn tekinn upp á ný varðandi sinnulausu flóttamannabörnin. Enn er ekki pólitískur meirihluti fyrir almennri sakaruppgjöf í Svíþjóð en búist er við að það verði eitt aðalmálið í baráttunni fyrir kosningarnar 2006.
Pólitískar umbyltingar í aðsigi
Kaa Eneberg
27/04 2005
Í Svíþjóð ríkir pólitískur glundroði. Ríkisstjórnarflokkur jafnaðarmanna nýtur nú minna trausts en nokkru sinni áður. Hægri flokkurinn er í sókn en jafnframt hafa fleiri smáflokkar verið stofnaðir sem hirða atkvæði frá Jafnaðarmannaflokknum. Nýju flokkarnir eiga rætur sínar að rekja til óvildar í garð ESB og femínisma.
Breyttar skoðanir á kjarnorku í Svíþjóð
Kaa Eneberg
23/03 2005
Eftir rúma tvo mánuði verður hinu umdeilda kjarnorkuveri í Barsebäck lokað. Andstæðingar kjarnorku kætast og þá ekki síst íbúar Danmerkur. Eftir er að sjá hvort Svíar leggja niður frekari umsvif á sviði kjarnorku eins og þjóðaratkvæðagreiðsla kvað úr um. Vistvæna valkosti skortir og enn er þetta pólitískt hitamál.
Skógarhörmungar og raforkuuppreisn í kjölfar óveðursins
Kaa Eneberg
23/02 2005
Fárviðrið í vetur leiddi til mikilla hörmunga fyrir sænskan skógarbúskap með ófyrirsjáanlegum afleiðingum sem seint mun sjást fyrir endann á. Víðtækt og langvarandi rafmagnsleysi hefur leitt til „raforkuuppreisnar“ með kröfum um traustara straumkerfi og skaðabætur til handa þeim sem þar biðu tjón. Um þetta fjallar Kaa Eneberg í febrúarpistli sínum.
Svíþjóð í sárum en gengi konungs aldrei verið meira
Kaa Eneberg
26/01 2005
Með skömmu millibili urðu Svíar fyrir tveimur meiriháttar þjóðaráföllum. Eftir flóðbylgjuna og tjónin af völdum óveðursins kom konungurinn fram, sem venjulega lætur lítið í sér heyra, og ávarpaði sænsku þjóðina af tilfinningu og innlifun. Honum tókst svo vel upp að ríkisstjórnin taldi sér ógnað og nú tala Svíar um að það jaðri við stjórnarskrárkreppu.
Ný femínistabylgja í Svíþjóð
Kaa Eneberg
15/12 2004
Í haust hefur verið mikið fjör eða jafnvel hiti í femínískum umræðum. Ofbeldi gegn konum, frádráttarbær heimilisstörf og klaufagangur jafnréttisráðherra hafa verið uppsláttarfréttir í fjölmiðlum. Rúsínan í pylsuendanum er flótti Gudrunar Schyman úr Vinstriflokknum og væntanleg áform um að vinna að sérstöku kvennaframboði í Svíþjóð.
Ódýrara áfengi til handa Svíum
Kaa Eneberg
24/11 2004
Þess er vænst í síðasta lagi vorið 2005 að sænska ríkistjórnin lækki svo um munar skatta á áfengi, á norrænan mælikvarða. Þar er meðal annars horft til þess að bjarga sænskri einkasölu ríkisins á áfengi sem hneykslismálin hafa dunið yfir. Mútukærur gegn verslunarstjórum og brot á samkeppnislögum ESB fara fyrir dómstóla.
Þjóðaráföll Svía
Kaa Eneberg
27/10 2004
Í haust hafa Svíar verið minntir á þau áföll sem riðið hafa yfir þjóðina. Þar ber til að nú eru tíu ár liðin frá Estoníu-slysinu, ár frá því að Anna Lindh utanríkisráðherra var myrt og einnig er Christer Petterson, sem grunaður var um morðið á Olof Palme, látinn. Morðrannsóknin hefur verið kölluð afkvæmi tímabils í eftirstríðssögu Svía sem einkenndist af mikilli tortryggni milli pólitískra andstæðinga; milli ríkjandi jafnaðarmanna og ýmissa ráðamanna.
Fleiri úrræði til að vísa flóttamönnum frá og senda þá heim
Kaa Eneberg
29/09 2004
Flóttamannastefnan í Svíþjóð tekur um þessar mundir stórfelldum breytingum. Hælisleitendum fækkar, sífellt fleirum er neitað um landvistarleyfi og margir flóttamenn fara huldu höfði af hræðslu við að verða vísað úr landi. Samtímis vara fjölmiðlar við afar lélegu andlegu ástandi barna flóttamanna sem eru stundum rúmföst vegna sinnuleysis og mötuð með sondu.
Sænsk fangagæsla í eldlínunni
Kaa Eneberg
28/08 2004
Kröfur um hertar reglur innan fangagæslunnar eru árangurinn af stórbrotnum strokum í sumar úr sænskum fangelsum. Dómsmálaráðherra Svía vill reisa öryggisfangelsi á meðan einn strokufanga varaði við því á umræðusíðu Dagens Nyheter, skömmu áður en hann strauk sjálfur, að öruggari fangelsi yrðu til þess að fleiri strykju.
Hrakfarir flokka og fjölmiðla
Kaa Eneberg
23/06 2004
Svíar flökkuðu milli sjónvarpsrása. Júnílistinn og landsliðið höfðu sigur. Flokkarnir, fjölmiðlar og Gallup töpuðu. Stjórnmálaskýrendur láta móðann mása en stjórnmálaforystan þegir.
Framhald umræðu um aðlögunarreglur
Kaa Eneberg
26/05 2004
Enginn skyldi ætla að Svíar taki alla atvinnuleitendur í sinn rausnarfaðm. Strax daginn eftir ósigurinn í atkvæðagreiðslunni á þinginu var skipuð rannsóknarnefnd með það að markmiði að hindra misnotkun á sænsku bótakerfi.
"Aðgerð niðurskurður" sænskra landvarna
Kaa Eneberg
24/03 2004
Landvarnir Svíþjóðar hafa lengi verið undir smásjánni og nú skulu þær enn rýrðar og endurskipulagðar. Allt til að spara peninga, en líka til að laga þær að baráttuni gegn hryðjuverkum og að alþjóðastarfsemi.
Siðfræði og siðgæði til umræðu í Svíþjóð
Kaa Eneberg
01/02 2004
Í Svíþjóð eru blikur á lofti vegna umræðna um svik, trúnaðartraust, siðfræði og siðgæði. Þar koma við sögu konungur, forstjórar, forsætisráðherrann og verkalýðsfélög. Umræðurnar hafa að undanförnu snúist að jöfnu um bónusþak og innflutning á vinnuafli. Hugtak á borð við “félagsmálaferðamennska” er í brennidepli og sápuveruleikinn er vopnið sem beitt er í sænskum umræðum.

 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)