Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.
Lotte Hansen
-
Anders Fogh og Bush í hjólreiðatúr, en í Danmörku eru lesbíur í brennidepli
-
Lotte Hansen
-
21/06 2006
-
Stjórnmálamennirnir hafa sig ótrúlega lítið í frammi meðan þeir þinga á fullu við að koma öllu heim og saman í nýju velferðarumbótunum. Það fréttist ekki mikið af því. En réttur lesbía til tæknifrjóvgunar hefur um tíma verið um það bil að kljúfa stærsta stjórnmálaflokk Danmerkur, stjórnarflokkinn Vinstri. Forsætisráðherra eyðir ekki tímanum í þess háttar deilur, heldur fer í hjólreiðatúr með Bush Bandaríkaforseta í Camp David og fræðir hann um nokkur sannleikskorn á leiðinni.
-
Pólitísk vakning í staðinn fyrir samningapólitík
-
Lotte Hansen
-
24/05 2006
-
Eftir að Róttæki vinstriflokkurinn sleit flokkssamstarfinu við Sósíaldemókrataflokkinn hefur orðið gjörbylting í danskri pólitík. Það varð flokkspólitísk vakning: Einmitt þegar loforða- og samningapólitík vegnar einum of vel og Sósíalski þjóðarflokkurinn er meira að segja farinn að lofa fátækum ungmennum upphæð, sem nemur 12 þúsundum íslenskra króna, fara flokkarnir að standa á eigin fótum og hafna því að vera rígbundnir við annaðhvort vinstri eða hægri væng stjórnmálanna. Það eru ekki lengur aðeins tvær fylkingar í dönskum stjórnmálum, heldur eru nú sjö flokkar á Þjóðþinginu.
-
Uppgjör nálgast í stjórnmálum Danmerkur
-
Lotte Hansen
-
26/04 2006
-
Múhammeðsfárið er afstaðið og nú er tímabært að kasta tölu á hina særðu og gera upp stöðuna: Hver vann sigur og hver tapaði? Þeir sem bjuggust við að Múhammeðsfárið mundi ekki hafa varanleg áhrif á danska innanríkispólitík verða að minnsta kosti að snúa við blaðinu því að teikningarnar tólf hafa umbylt öllu pólitísku landslagi. Róttæki flokkurinn gerir hosur sínar grænar fyrir ríkisstjórninni, Danski þjóðarflokkurinn er sem yfirgefinn maki og enginn vill hafa neitt saman við Sósíaldemókrataflokkinn að sælda en gengi hans hefur verið slakt í skoðanakönnunum.
Sósíaldemókratar beina nú kröftum sínum að því að tefla fram nýrri drottningu. Hún heitir Ritt Bjerregaard.
-
Tjáningarfrelsi, en...
-
Lotte Hansen
-
22/03 2006
-
Þar með var það á enda, ...nei ekki Múhameðsfárið, heldur vopnahléið sem stjórnmálaflokkarnir veittu ríkisstjórninni svo hún hefði vinnufrið til að einbeita sér að lausn deilunnar vegna Múhameðsteikninganna. Forsætisráðherra sjálfur gaf rásmerkið um lok vopnahlésins þegar hann lýsti yfir að Múhameðsfárið hefði gert það að verkum að hann skipti hópum í samfélaginu í sauði og hafra. Þá fóru allir að jarma, og því lýkur væntanlega ekki um sinn því er tjáningarfrelsið ekki einmitt falið í því að bæði sauðir og hafrar jarmi hver með sinni snoppu? Sauðirnir jörmuðu af ánægju yfir því að vera sauðir og hafrarnir jörmuðu af því að þeir vildu ekki að sökinni væri varpað á þá.
-
Tólf teikningar sem móðguðu milljarð múslima
-
Lotte Hansen
-
22/02 2006
-
Svona fór um sjóferð þá. Þó að Dani greini mjög á um hvort yfirleitt hefði átt að birta teikningarnar sem nú eru orðnar bæði þekktar og alræmdar, þá er landsmenn þrumu lostnir yfir þeirri mynd sem „Múhameðsfárið“ hefur tekið á sig og yfir því hve mikið að vöxtum það er orðið.
-
Niðursoðin samningapólitík
-
Lotte Hansen
-
25/01 2006
-
Þar kom að því, nú eru stóru kameljónflokkarnir, Vinstriflokkurinn, Danski þjóðarflokkurinn og Sósíaldemókrataflokkurinn á miðjunni, allir farnir að iðka það sama! – þ.e. að beita spunarökum til að skýra stjórnmálastefnu sína. Á bak og burt eru pólitískar hugsjónir og hugmyndir um hvert þjóðfélagið skuli stefna. Eftir sitja baráttuaðferðir við að ná til miðjukjósenda. Um jólin sagði talsmaður Vinstriflokksins sig úr dönsku þjóðkirkjunni af því að nokkrir prestar gagnrýndu stefnu stjórnarinnar í málefnum nýbúa. Gagnrýni sem að hluta til var endurtekin af sænska dagblaðinu Aftonbladet nokkrum vikum síðar.
-
Nýjum velferðarboðskap hafnað
-
Lotte Hansen
-
14/12 2005
-
Velferðarnefndin, sem heitir þessu glæsilega nafni, lagði nýverið fram áætlun um hvernig Danir eigi að bregðast við því að við blasir að fjölmenn kynslóð fólks fer senn út af vinnumarkaðnum og fámenn kynslóð tekur við. Nefndin vill að fólk komi fyrr inn á vinnumarkaðinn og yfirgefi hann seinna, ásamt því að breyting verði gerð á sköttum, menntun og uppbyggingu húsnæðis- og vinnumarkaðarins. Þremur klukkustundum síðar hafnaði Anders Fogh Rasmussen flestum tillögum nefndarinnar 43 talsins.
-
Sósíaldemókratar settust í borgarstjórasætin
-
Lotte Hansen
-
16/11 2005
-
Sósíaldemókratar tóku stjórnina í fjórum stærstu bæjum Danmerkur, að einum undanteknum og um leið fékk flokkurinn næstum helming allra borgarstjóraembætta í landinu. Kosningabaráttan einkenndist af tali sem ýmist snerist um hryðjuverkaógn eða beindist að ákveðnum persónum en minna var um pólitíska forgangsröðun. Í þessari grein er kosningabaráttunni lýst, ásamt þeirri staðreynd að umræðan snerist mikið um hryðjuverkaógn.
-
Hægrivængurinn sem hvarf
-
Lotte Hansen
-
12/11 2005
-
Til vinstri snú! Allir flokkarnir, sem eitt sinn mynduðu hægri vænginn í dönskum stjórnmálum, hafa nú breytt um stefnu eftir nákvæmum fyrirmælum æðstu manna í flokkunum. Vinstri (sem þrátt fyrir nafnið er hægriflokkur), Danski þjóðarflokkurinn og Íhaldsflokkurinn hafa allir sveigt stefnuna til vinstri. Vinstri vill jöfnuð, Íhaldsflokkurinn vill ekki vera eins borgaralegur og áður og Danski þjóðarflokkurinn ekki eins óvinveittur útlendingum Þetta minnir á...
-
Dýrðarljóminn er byrjaður að dofna
-
Lotte Hansen
-
14/09 2005
-
Við Danir höfum haldið fána siðprýðinnar hátt á loft og lengi getað státað af því að vera í efstu sætunum í alþjóðlegum siðferðismælingum. Hvað varðar tillitssemi við náungann er Danmörk einnig í fremstu röð og þegar mælt var stig siðspillingar reyndust Danir jafnframt með þeim bestu.
-
Stjórnarskráin er ekki með lífsmarki, ömtin syngja sitt síðasta en réttarríkið lifir
-
Lotte Hansen
-
23/06 2005
-
Í danska framlagi þessa mánaðar er fjallað um stjórnarskrá Evrópusambandsins (ESB) sem sett hefur verið í bið, nýtt skipulagskort yfir sveitarfélög og ömt í Danmörku frá 2007 og lýðræðislegar breytingar á réttarreglum. Því miður eru manndráp og blóðpeningar tilefni þess síðastnefnda. Dómsmálaráðherra telur sáttaumleitan við lausnir deilna góða viðbót við almennar réttarvenjur. En nánustu bandamenn ríkisstjórnarinnar í Danska þjóðarflokknum eru ekki sammála.
-
Dýru fötin keisarans
-
Lotte Hansen
-
25/05 2005
-
Framlag Lotte Hansen í þessum mánuði fjallar um ládeyðu í dönskum stjórnmálum um þessar mundir. Um forsætisráðherra sem fannst að Danir hefðu átt að berjast gegn Þjóðverjum eins og Norðmenn. Og um söguna um H.C.Andersen-skrautsýningu sem klikkaði og kostaði meiri háttar útgjöld.
-
Framtíð með konur efst á tindi stjórnmála í Danmörku
-
Lotte Hansen
-
27/04 2005
-
... og nýjar pólitískar áherslur og áræði til að takast á við málefni aldraðra. Lotte Hansen greinir nýju stöðuna sem komin er upp í danskri pólitík eftir þingkosningarnar í janúar. Konurnar hafa orðið. Ein þeirra lætur einkum í sér heyra, þ.e. hinn nýi formaður Sósíaldemókrataflokksins, Helle Thorning-Schmidt, sem þorir að tala upphátt um eftirlaun og eftirlaunaaldur. Á sama tíma snýr hinn vinsæli flokkur, Radikale Venstre, hefðbundinni hægri-vinstri pólitík á haus.