Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.
- Info
Lykke Friis
-
Hátíðarár hjá dönskum skólabörnum
-
Lykke Friis
-
23/03 2005
-
Stuttu eftir þingkosningarnar í febrúar boðaði danski forsætisráðherrann til nýrra kosninga hinn 27. september þar sem Danir velja um að samþykkja eða hafna nýrri stjórnarskrá ESB. Í ljósi fyrri ESB-kosninga og þeirra pólitísku mála, sem hæst ber um þessar mundir, spáir Lykke Friis fyrir um hvernig umræðan verður. „Tvö sígild verk og eitt ófyrirsjáanlegt“ hljómar eins og nafn á afþreyingarmynd á föstudagskvöldi, en þetta er einmitt það sem birtist í kristallskúlunni.
-
Samningapólitík og þingkosningar í Danmörku
-
Lykke Friis
-
23/02 2005
-
Þingkosningar í Danmörku bar brátt að og er nú lokið með sigri borgaralegu flokkanna. En hvað var það sem gerðist? Hvers vegna tókst jafnaðarmönnum ekki að ná aftur völdum? Lykke Friis lítur á niðurstöður kosninganna og skýrir þær. Samningapólitík og trúverðugleiki eru þau meginhugtök sem geta skýrt hvers vegna Vinstri tókst að halda völdum.
-
Gjafalausum jólum aflýst – Dönsk Evrópupólitík eftir stefnubreytingu á vinstri vængnum
-
Lykke Friis
-
26/01 2005
-
Stórt skref hefur verið stigið í umræðunni um Evrópusambandið (ESB) í Danmörku með þýðingarmikilli allsherjaratkvæðagreiðslu flokksmanna Sósíalska þjóðarflokksins (SF) um stefnu flokksins varðandi stjórnarskrá ESB. Þegar litið er á fyrri þjóðaratkvæðagreiðslur sést að þessi litli stjórnmálaflokkur hefur haft mikil áhrif á danska Evrópupólitík. Búast má við að stuðningur flokksins við stjórnarskrá ESB verði til þess að draga úr tortryggni Dana gagnvart ESB. Þjóðaratkvæðagreiðsla Dana virðist því nálgast og Danir verða að taka afstöðu til hugsanlegrar inngöngu Tyrklands í ESB.
-
Deilt um almannaþjónustu í Danmörku
-
Lykke Friis
-
15/12 2004
-
Mikið fjölmiðlafár hefur verið í haust í kringum ríkisreknu útvarps- og sjónvarpsstöðvarnar í Danmörku sem hafa tekjur sínar af afnotagjöldum. Framkvæmdastjóri Útvarps Danmerkur (DR), Christian Nissen, var rekinn undir vökulum augum fjölmiðla. Tæpri viku síðar sagði Jørgen Kleener stjórnarformaður DR, sem staðið hafði að brottrekstri Christians Nissens, af sér. Málið snýst um það hvernig reka beri almannaþjónustuútvarp og -sjónvarp í Danmörku í framtíðinni. Á DR, sem rekið er fyrir afnotagjöld, að fá að keppa við einkastöðvarnar?
-
Ást eða nauðungarhjónaband? Breytt skipan sveitarfélaga í Danmörku
-
Lykke Friis
-
24/11 2004
-
Í Danmörku stendur nú fyrir dyrum mesta endurskipan sveitarfélaga í meira en 30 ár. Mikilvæg verkefni á sviði heilbrigðis- og menntamála flytjast frá ömtum til sveitarfélaga. Auk þess verða sveitarfélög sameinuð í stórum stíl, sem mun hafa í för með sér að hart verður tekist á um hver skuli „giftast“ hverjum. Lykke Fris ræðir endurskipanina sem á að taka gildi 1. janúar 2007
-
Svar dönsku ríkisstjórnarinn við nýjum hryðjuverkahótunum
-
Lykke Friis
-
27/10 2004
-
Margir Danir óttast hryðjuverkaárás. Samkvæmt nýrri könnun Gallup telja sjö af hverjum tíu Dönum að búast megi við að Danmörk verði fyrir hryðjuverkaárás á næstu árum. Eftir árásina á World Trade Center í New York veitti þingið sem svarar tæpum 600 milljónum íslenskra króna í „hryðjuverkapakka“ til að efla viðbúnað gegn hryðjuverkum. Í ár kom síðan „skýrsla um veika bletti“ sem gerir grein fyrir öllum þeim hættum sem þjóðin stendur frammi fyrir. Þá vaknar spurningin: Hvenær er öryggi lands tryggt?
-
Nýr stórskilnaður? Danmörk og stjórnarskrá ESB
-
Lykke Friis
-
29/09 2004
-
Hvernig á að fara að því að sigra í þjóðaratkvæðagreiðslu í Danmörku um stjórnarskrá ESB? Með langvinnum umræðum – eða með því að fresta öllum umræðum þangað til tveir mánuðir eru til stefnu? Um þetta skrifar Lykke Friis. Það verður ekki mikil umræða um aðalþema kosninganna. Bæði fylgjendur og andstæðingar virðast sammála um að málið snúist um hvort Danmörk skuli vera áfram í ESB eða ekki. Málið snýst um það hvort Danmörk eigi að gefa hjónabandinu nýtt tækifæri eða sækja um skilnað sem tryggi Danmörku þó ákveðin tengsl við fyrrverandi maka.
-
Frá brúðkaupi og silfurbrúðkaupi til skilnaðar?
-
Lykke Friis
-
28/08 2004
-
Nú er kominn tími til að grænlenskir og danskir stjórnmálamenn fari að brjóta heilann um hvernig grænlenska heimastjórnin skuli þróast í framtíðinni. Nefnd hefur skilað ítarlegri álitsgerð um málið. Þrjú mikilvægustu íhugunarefnin varða opinber útgjöld, hvernig hægt er að fá fleiri til að leggja fé af mörkum til samfélagsins og hvernig vænlegast er að byggja upp arðbært atvinnulíf. Og það er ljóst að Grænlendingar vilja ekki segja skilið við danska ríkjasambandið.
-
Bikarinn í höfn, en hvar voru áhorfendurnir?
-
Lykke Friis
-
23/06 2004
-
Poul Nyrup Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra, fór með sigur af hólmi í kosningum til ESB-þings í Danmörku, en hann fékk meira en 400 þúsund persónuleg atkvæði. Jafnaðarmenn fengu meira en 32% allra greiddra atkvæða og Poul Nyrup Rasmussen hlaut fleiri atkvæði en stjórnarflokkurinn Vinstri. En eins og í öðrum ESB-löndum var kosningaþátttakan minni en 50%.
-
Vor og Amor í lofti
-
Lykke Friis
-
26/05 2004
-
Vorið í Danmörku hefur verið í merki Amors með brúðkaupi krónprinsins. Haustinu mun fylgja pólitísk erfiðisvinna. Næsta „brúðkaup“ í Danmörku er miður rómantískt, þ.e. brúðkaup sveitarfélaga. Tillaga um að fækka sveitarfélögum og láta fáein héruð koma í stað 14 amta vekur miklar deilur, skrifar Lykke Friis.
-
Hvar á að draga mörkin? Um varnaráætlun og frekari stækkun ESB
-
Lykke Friis
-
23/03 2004
-
Lykke Friis segir frá nýrri stefnu í varnarmálum í Danmörku og deilum um áframhaldandi stækkun ESB. Spurningin um hvort til greina kemur að Tyrkland fái inngöngu í ESB setur svip á umræðuna fyrir kosningarnar til Evrópuþings í júní. Breytt staða í alþjóðamálum hefur líka gefið tilefni til tillögu um að tekin verði upp ný stefna í dönskum varnarmálum með svokölluðum alvörnum.
-
Frá Bombay til Bogense
-
Lykke Friis
-
01/02 2004
-
Í Danmörku er nú deilt um alþjóðavæðingu og um ESB. Danmörk mun á þessu ári glata allt að 30.000 störfum til láglaunasvæða, t.d. Indlands. „Bombay–deilan“ er algerlega óháð „Brussel-deilunni“ sem nú fer fremur hljótt. Umræðan um alþjóðavæðingu og velferðarríkið verða þó að líkindum í aðalhlutverki þegar Danir taka aftur að ræða aðildina að ESB.