Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.
- Info
Margit Silberstein
-
Skattar ásteytingarsteinn fyrir kosningar á næsta ári
-
Margit Silberstein
-
21/10 2009
-
Skattastefna verður helsta deilumálið í kosningabaráttunni í Svíþjóð á næsta ári. Á þriggja ára valdatíma hefur samsteypustjórn hægriflokkanna lækkað skatta um rúma 80 milljarða sænskra króna. Og nýjar skattalækkanir, sem nema tíu milljörðum til viðbótar, eru á döfinni.
-
Taugatitringur fyrir Kaupmannahafnar-fundinn
-
Margit Silberstein
-
23/09 2009
-
Sá árangur sem næst á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn (COP15) í desember verður mælikvarði á velgengni Svía sem formennskuþjóðar í Evrópusambandinu. Það er Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra kappsmál að vel takist til á formennskutímanum og hann er staðráðinn í því að landa nýjum alþjóðlegum loftslagssáttmála í Kaupmannahöfn. En á sama tíma slær hann varnagla og hefur áhyggjur af því að of hægt gangi í samningaferlinu.
-
Svíþjóð ekki lengur stóri bróðirinn á Norðurlöndum
-
Margit Silberstein
-
26/08 2009
-
Á Norðurlöndum hefur löngum verið litið á Svíþjóð sem hinn sjálfsörugga stóra bróður. Ef marka má rithöfundinn og sagnfræðinginn Herman Lindqvist hefur samsetning sænsku þjóðarinnar og efnahagur breytt þeim valdahlutföllum. Sitthvað hefur breyst.
-
Formennska prófsteinn á leiðtogahæfileika Reinfeldts
-
Margit Silberstein
-
24/06 2009
-
Miklar væntingar eru gerðar til Fredrik Reinfeldts forsætisráðherra þegar Svíar taka við formennsku í Evrópusambandinu af Tékkum þann 1 júli. Ekki síst vegna þess að hann á að landa nýjum alþjóðlegum loftslagssáttmála þrátt fyrir fjármálakreppuna. Sjálfur varar hann við of miklum væntingum og segir mjög hafa dregið úr áhuga manna á loftslagmálum
-
Stórir árgangar fara á eftirlaun
-
Margit Silberstein
-
27/05 2009
-
Mestu kynslóðaskipti fyrr og síðar verða á sænskum vinnumarkaði á árinu 2015. Þá munu hundruð þúsunda launþega sem fæddir eru á fimmta áratug síðustu aldar fara á eftirlaun. Í fyrstu verður blóðtakan mest í opinbera geiranum hvað varðar mannauð, reynslu og þekkingu. Ef bjarga á velferðinni til framtíðar, þarf samkvæmt sænsku hagstofunni, að koma 300.000 manns út á vinnumarkað á ári hverju.
-
Hart deilt um menningu og margbreytileika í Svíþjóð
-
Margit Silberstein
-
29/04 2009
-
Menningarstefna er eldfimt deiluefni í Svíþjóð. Nýlega lagði nefnd á vegum ríkisins fram níu hundruð blaðsíðna skýrslu um ný stefnumið í menningarmálum og eiga þau að stuðla að margbreytni og endurspegla að í Svíþjóð býr fólk frá mörgum menningarheimum. Gagnrýnendur segja aukið skrifræði felast í tillögunni og auk þess verði innflytjendur settir til hliðar í hinu hefðbundna menningarlífi.
-
Aðild að NATO ekki á dagskrá
-
Margit Silberstein
-
25/03 2009
-
Allar götur frá því að Berlínarmúrinn féll hefur samstarf Svía og Atlantshafsbandalagsins orðið meira og nánara. Svíar taka þátt í tug NATO-æfinga á ári hverju. Aðild þeirra að NATO er þó ekki í augsýn. Sænski þjóðarflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem er fylgjandi fullri aðild að bandalaginu.
-
Bílakreppa og verndarstefna í kjölfar alþjóðavæðingarinar
-
Margit Silberstein
-
24/02 2009
-
Eftir að hin alþjóðlega fjármálakreppa skall á heyrast tónar þjóðernis- og verndarstefnu frá stjórnmálamönnum. Mona Sahlin, formaður jafnaðarmanna, leggur til að hætt verði að flytja út rafmagn til svæða utan Norðurlanda. Þetta myndi halda verðinu niðri heima fyrir, en rafmagn framleitt í Svíþjóð er þegar ódýrara en annars staðar í Evrópu. Ekki er langt síðan Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra skoraði á fólk að kaupa sænskt.
-
Milljarðapakki ríkisins á að bjarga markaðshagkerfinu
-
Margit Silberstein
-
18/12 2008
-
Viðvörunum rignir yfir Svía í kjölfar fjármálakreppunnar. Á þremur mánuðum hafa nær 50. 000 launþegar fengið viðvörun um uppsögn. Þjóðarstoltið, bílaverksmiðjur Volvo og Saab, riða til falls. Kröfur eru uppi um að ríkið taki yfir bílaframleiðsluna. Því hafnar ríkisstjórn hægrimanna og hefur þess í stað lagt fram aðgerðaáætlun þar sem gert er ráð fyrir að jafnvirði 28 milljarða sænskra króna verði varið til að afstýra því að störf flytjist úr landi.
-
Fríverslun lífsnauðsyn ef gera á nýjan loftslagssamning
-
Margit Silberstein
-
20/11 2008
-
Sænska ríkisstjórnin væntir mikils af næsta Bandaríkjaforseta. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra ætlar á formennskutíma Svía í ESB að vinna að því að fá Barack Obama til að leggjast á árarnar svo koma megi nýjum sáttmála um aðgerðir í loftslagsmálum í höfn á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupamannahöfn í lok næsta árs. Sænski forsætisráðherrann á þó afar erfitt verkefni fyrir höndum eigi þetta að takast fyrir ráðstefnuna. En hann setur traust sitt á kosningaloforð Obama um að Bandaríkjamenn ætli að taka forystu í samningaviðræðum um nýjan loftslagssáttmála sem leysa muni Kyoto-sáttmálann af hólmi.
-
Atvinnuleysi eða skortur á vinnuafli - það er efinn
-
Margit Silberstein
-
15/10 2008
-
Eftir tvo mánuði taka gildi ný lög í Svíþjóð sem heimila fólki frá löndum utan Evrópu að koma til landsins í atvinnuleit. Væntingar eru um að þetta innstreymi á vinnuafli muni koma til móts við þarfir sænska vinnumarkaðarins til framtíðar, því sænska þjóðin verður sífellt eldri og unga fólkið hlutfallslega færra. En það sem gerist nú í kjölfar alþjóðlegrar fjármálakreppu er að sífellt fleiri eru að missa vinnuna.
-
Rússar setja varnarstefnu Svía í uppnám
-
Margit Silberstein
-
17/09 2008
-
Stríðið milli Georgíu og Rússlands hefur valdið uppnámi í sænsku ríkisstjórninni. Innrás Rússa mun draga dilk á eftir sér í stefnu Svía í varnarmálum. Að mati sænsku stjórnarinnar þarf að kanna enn betur stefnumið í öryggismálum í kjölfar átakanna í Georgíu. Það gæti leitt til þess að öryggis- og varnarmálastefnan verði endurskoðuð.
-
Jafnréttispólitík í dvala
-
Margit Silberstein
-
28/08 2008
-
Feður í Svíþjóð voru þeir fyrstu í heiminum sem öðluðust lagalegan rétt til þess að fá greitt fyrir að vera heima með ungum börnum sínum. En nú, 34 árum eftir að foreldraorlofið var innleitt, eru það sem fyrr konurnar sem nýta sér 80% af orlofinu. Að auki fá karlar enn hærri laun en konur fyrir sambærileg störf. Og konur eru einungis 18 prósent stjórnarmanna í skráðum fyrirtækjum í sænsku kauphöllinni.
-
Reinfeldt ætlar að landa alþjóðlegum loftslagssáttmála
-
Margit Silberstein
-
11/06 2008
-
Samstarfsstjórn hægriflokkanna í Svíþjóð, með Fredrik Reinfeld í broddi fylkingar, hefur gert umhverfis- og loftslagsmál að sínu helsta ímyndarmáli. Svíar munu fara með formennsku í Evrópusambandinu á næsta ári, á sama tíma og stefnt er að því að nýr alþjóðasáttmáli um aðgerðir í loftslagsmálum verði undirritaður á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Stjórnin er með metnaðarfull áform og stefnir að því að Svíar, sem formennskuþjóð, knýi fram samkomulag á fundinum.
-
Ágreiningur vex um velferðarmálin
-
Margit Silberstein
-
07/05 2008
-
Tekist verður á um velferðarþjónustu fram að næstu kosningum í Svíþjóð, ekki síst um heilbrigðis- og félagsmálin. Deilurnar eru þegar hafnar. Langir biðlistar eru á flestum sjúkrahúsum. Jafnaðarmenn saka hægristjórnina um að reka pólitík sem leiði til mismununar, þeir sem eigi peninga fái betri þjónustu en aðrir. Ráðamenn svara gagnrýninni með því að einkavæðing létti undir hjá hinu opinbera í rekstri heilbrigðiskerfisins.
-
Velferðin mælist meiri, en blikur eru á lofi
-
Margit Silberstein
-
02/04 2008
-
Í lok síðasta árs tóku Svíar stórt stökk upp á við í samkeppnishæfni, þeir fóru úr níunda sætinu í það fjórða á þessum afrekalista fremstu þjóða heims. En nú eru blikur á lofti. Samkeppnishæfni hefur minnkað í kjölfar þess að gengi dollars hefur lækkað. Og öllum að óvörum hefur Anders Borg fjármálaráðherra kynnt nýjar hagvaxtartölur sem eru mun lægri en hann hafði áður spáð fyrir um.
-
Hægristjórnin herðir löggjöf um móttöku flóttamanna
-
Margit Silberstein
-
06/03 2008
-
Það verður erfiðara í framtíðinni fyrir flóttamenn sem fengið hafa hæli í Svíþjóð að fá ættingja sína til landsins. Og íröskum flóttamönnum, sem áður hafa átt kost á landvistarleyfi, verður nú vísað aftur til síns heima. Svokallaður heimsendingarsáttmáli milli Svía og Íraka á að greiða fyrir því að senda megi íraska flóttamenn nauðuga úr landi.
-
Skólinn – pólitískur vígvöllur
-
Margit Silberstein
-
07/02 2008
-
Stefna borgarlegu flokkanna í menntamálum er ein af skýringunum á því að þeir fóru með sigur af hólmi í síðustu kosningum í Svíþjóð og jafnaðarmenn lutu í lægra haldi. Í kjölfarið hefur Mona Sahlin nýr leiðtogi jafnaðarmanna lagst í sjálfsgagnrýni og viðurkennt að menntastefna flokksins hafi verði óljós og að kjósendur hafi verið búnir að missa trúna á hana. Nú er verið að endurskoða menntastefnuna og það hefur leitt til harðra deilna meðal jafnaðarmanna.
-
Kosningaloforðin efnd en kjósendur bregðast
-
Margit Silberstein
-
19/12 2007
-
Ríkisstjórn hægriflokkanna í Svíþjóð er óvinsælli en nokkru sinni fyrr. Nýjustu skoðanakannanir sýna að 12.000 kjósendur hafa snúið baki við stjórninni á degi hverjum frá því hún tók við völdum. Forskot stjórnarandstöðunnar vex jafnt og þétt og fyrst og fremst vegna þess að fylgi Jafnaðarmanna rýkur upp – án þess að þeir þurfi að hafa nokkuð fyrir því. Stjórnspekingar og aðrir þjóðfélagsrýnar undrast þessa óvanalegu stöðu sem upp er komin í sænskum stjórnmálum og eiga erfitt með að finna eina alhliða skýringu á henni.
-
Siðferðisbrestir veikja sænsku stjórnina
-
Margit Silberstein
-
21/11 2007
-
Það rúma ár sem liðið er síðan stjórn borgaraflokkanna í Svíþjóð tók við völdum hefur verið ein löng martröð fyrir hófsama hægrimenn og Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra. Þrír ráðherrar flokksins hafa hrakist úr embætti og nú neyðist Reinfeldt til að reka aðstoðarmann sinn og nánasta samstarfsmann vegna hneykslis sem hófst með kossaflensi á krá. Að auki hefur æðsti embættismaður forsætisráðuneytisins orðið uppvís að því að kaupa svarta vinnu. Þetta grefur undan trausti almennings á Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra.