Document Actions
Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á sænsku.

Per Norvik

2005: Noregur fagnar og heldur hátíðlegt, Svíþjóð minnist
Per Norvik
15/12 2004
Árið 2005 eru liðin hundrað ár frá því að Noregur varð sjálfstætt ríki. Ríkjasamband Noregs og Svíþjóðar leið undir lok árið 1905 og verður þess minnst bæði í Noregi og í opinberum stofnunum Noregs erlendis. Stórþingið vill fagna atburðinum, en ríkisstjórnin fer varlegar og talar um að minnast beri atburðarins með hóflegum hætti. Menn vilja ekki spilla góðu sambandi við góðan granna með því að móðga hann að óþörfu. Í Svíþjóð munu menn minnast atburðarins en ekki halda upp á hann, segir utanríkisráðherra landsins, Laila Freivalds.
Skýrar víglínur í norskum stjórnmálum á kosningaári
Per Norvik
24/11 2004
Ríkisstjórnarflokkarnir og Framfaraflokkurinn hafa komist að samkomulagi um fjárlög fyrir árið 2005. Carl I. Hagen, formaður Framfaraflokksins, krefst þess ekki lengur að fá sæti í ríkisstjórninni. En það gætir ákveðinna efasemda hjá þeim sem styðja ríkisstjórnina. Og stjórnarandstöðuflokkarnir, Verkamannaflokkurinn, Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðjuflokkurinn, munu í fyrsta skipti sameinast undir rauð-grænum merkjum.
Fjárlagafrumvarp eykur á óeininguna í norskum stjórnmálum
Per Norvik
27/10 2004
Langt er síðan ríkt hefur jafnmikill ágreiningur milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu í Noregi og um þessar mundir. Tónninn er harður og kallar stjórnarandstaðan fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir 2005, sem m.a. inniheldur tillögur bæði um hækkun virðisaukaskatts og skattalækkanir, andfélagslegt. Kosningabaráttan er þegar hafin og hefur Alþýðusambandsins (LO) nú hafið mikla áróðursherferð sem er eins og að veifa rauðri dulu framan í ríkisstjórnarflokkana. Reikna menn með að þátttaka í kosningunum til Stórþingsins á næsta ári geti slegið öll met.
Deilur á mörgum vígstöðum ári fyrir kosningar í Noregi
Per Norvik
29/09 2004
Kosið verður til norska Stórþingsins á næsta ári og eru flestir Norðmenn nú þegar orðnir nokkuð uppteknir af kosningabaráttunni. Undanfarna mánuði hafa útnefningar Kristilega þjóðarflokksins á frambjóðendum sínum verið í sviðsljósinu. Formaður Kristilega þjóðarflokksins, Dagfinn Høybråten, er atvinnu- og félagsmálaráðherra en á ekki sæti á þingi. Á hann þá að bola Valgerd Svarstad Haugland burt sem þingmanni Akerhus til þess að hreppa sjálfur sætið? Önnur aðalspurningin sem kjósendur velta fyrir sér þessa dagana er hvort Verkalýðsflokkurinn sé tilbúinn til stjórnarsamstarfs við Sósíalísktíska vinstriflokkinn og Miðjuflokkinn, eigi hann kost á því.
Stækkun ESB hefur áhrif á daglegt líf Norðmanna
Per Norvik
28/08 2004
Þótt Norðmenn standi utan ESB hafa þeir þegar orðið varir við afleiðingar af stækkun sambandsins. Einkum mun þensla á vinnumarkaðnum í olíulandinu leiða til þess að möguleikar, sem frjáls vinnu- og verkkaupamarkaður í ESB og EES veitir, verði nýttir. Krafa um meiri vinnu fyrir óbreytt laun er þegar fyrir dyrum og samtök vinnumarkaðarins búa sig undir harðar viðræður. En í álitamálinu um aðild að ESB er þjóðin enn klofin í tvær næstum jafnstórar fylkingar. Því verður aðild að ESB tæplega brennandi málefni í væntanlegri kosningabaráttu.
Pólitísk útsjónarsemi í Noregi
Per Norvik
26/05 2004
Norskir stjórnmálamenn keppast við að benda á mikilvægi norræns samstarf fyrir Evrópustefnu Norðmanna. Eftir stækkun ESB hafa þeir líka lagt aukna áherslu á samstarfið um norðlæga vídd ESB. Heima fyrir reyna stjórnmálamenn að rugga ekki bátnum til að halda öllum möguleikum opnum fyrir kosningarnar árið 2005.
Pólitískt landslag Noregs tekur breytingum
Per Norvik
24/03 2004
Veikar minnihlutastjórnir, í líkingu við þá sem nú situr, hafa haft í för með sér að baráttuaðferðir stjórnarandstöðunnar í Noregi hafa breyst. Samkomulagið sem Verkamannaflokkurinn og ríkisstjórn Bondeviks gerðu með sér síðastliðið haust er gott dæmi um þetta. Stjórnarandstaðan hefur áttað sig á að það getur verið hagkvæmt at stuðla að því að ríkisstjórnin sé starfhæf – um skeið að minnsta kosti.
Ný átök um ESB líkleg í Noregi
Per Norvik
01/02 2004
Kosningar til Stórþingsins í Noregi verða á næsta ári. Það verða væntanlega enn eina ferðina átök um samband landsins við ESB. Þeir sem eru fylgjandi aðild, telja fjölgun aðildarríkja ESB um tíu nú í maí, renna stoðum undir mikilvægi þess að ganga í sambandið. Andstæðingar aðildar benda hins vegar á hversu vel Noregi hefur gengið utan ESB.

 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)