Document Actions
Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.

Jákup Magnussen

Hindranir á hliðarspori
Jákup Magnussen
28/08 2008
Í Færeyjum er hlutfall kvenna í atvinnulífinu lágt þegar litið er til einkageirans en þær eru áhrifameiri í menningarlífinu. Menningarlegar og félagshagfræðilegar ástæður eiga sinn þátt í að hamla þátttöku kvenna í efsta lagi samfélagsins. Hlutfall kvenkyns stjórnmálamanna á Lögþinginu hefur aukist og stúlkur eru í meirihluta í menntaskólum.
Óvænt Kyotosamþykkt veldur höfuðverk
Jákup Magnussen
25/10 2007
Í upphafi árþúsundsins var ekki eining innan ríkissambands Danmerkur (Danmörku, Færeyjum og Grænlandi) um Kyotosamninginn. Danmörk samþykkti Kyotosamninginn árið 2002 en Færeyjar hafa haft fyrirvara um samninginn. Það kom á óvart þegar meirihlutinn að baki færeysku landsstjórninni samþykkti Kyotosamninginn nú í lok september. Ákvörðunin gerir miklar kröfur til landsins. Það er svo sem ekki mikið mál varðandi það sem snýr að sjálfu landinu, en það sem snýr að siglingum er erfiðara viðureignar. Mikill hluti mengunarinnar á nefnilega rætur sínar að rekja til fiskiskipaflotans en fiskveiðar eru eina stóra tekjulind Færeyja. Þess vegna vilja frjálslyndir stjórnmálamenn og fulltrúar atvinnulífsins að landið fái undanþágur eða hagstæð sérákvæði. Á móti færa menn þau rök að við ættum að hafa verið með frá byrjun og að nú sé orðið of seint að hafa áhrif. Betra sé að byrja strax að uppfylla skilyrði samningsins í stað þess að bíða viðurlaganna; sektanna.
Olíuleit og nýir möguleikar varðandi raforku eru hitamál í Færeyjum
Jákup Magnussen
26/09 2006
Menn bíða og vona að brátt finnist auðugar olíulindir á hafsvæðunum í kringum Færeyjar. En það er þó ennþá óvíst hvort olían verður framtíðartekjulind Færeyja. Þrátt fyrir að það líti ágætlega út á pappírnum að 45% orkuframleiðslu á landi komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum (vatns- og vindorku), þá eru það einungis 3% af heildarorkunotkuninni. Svo mikið af orkunni á rætur sínar að rekja til olíunnar. Olía er jafnvel notuð til húshitunar. Það er ráðgert að auka framleiðsluna á grænni orku, meðal annars með því að nota vetni og með því að nota í auknum mæli hina umdeildu vatnsorku. En Færeyjar menga mikið. Skortur á stefnu og tölfræðilegum upplýsingum gerir það að verkum að erfitt er að fylgja Kyotosamningnum.

 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)