Øssur Winthereig, f. 1958, var fréttastjóri Sjónvarps Færeyja í áratug og átti þannig þátt í að móta fréttamennsku í Færeyjum. Øssur Winthereig er menntaður blaðamaður frá Blaðamannaháskóla Danmerkur 1988. Árið 2004 kom út bókin „Skjótið blaðamanninn“ sem leiddi til þess að lögmaður Færeyja varð að víkja. Bókin sýndi fram á óreiðu í bókhaldi lögmannsins. Hann starfar nú sjálfstætt og er upplýsingaráðgjafi fyrir verkefnið: Manntal 2011.
