Rosa Thorsen er fædd árið 1966 í Nuuk á Grænlandi.
Hún útskrifaðist sem blaðamaður í Nuuk árið 1996. Hún hefur meðal annars starfað hjá grænlenska ríkisútvarpinu KNR, sem fréttamaður KNR í Kaupmannahöfn, verið spyrjandi á ráðstefnu um Grænland og framtíð ríkjasambandsins sem haldin var á Kristjánsborg og skrifað fyrir dagblöðin Sermitsiaq og Grønlandsposten.
