Thomas Larsen
Thomas Larsen fæddist árið 1964 og útskrifaðist frá Blaðamannaháskóla Danmerkur árið 1988. Hann starfar sem ritstjóri og stjórnmálaskýrandi hjá dagblaðinu Berlingske Tidende, en er einnig áberandi sem stjórnmálagagnrýnandi í dönsku útvarpi og sjónvarpi, m.a. er hann fastráðinn stjórnmálaskýrandi í sjónvarps- og útvarpsfréttum.
Hann hefur einnig starfað sem aðstoðarritstjóri og stjórnmálaskýrandi hjá fréttatímariti Berlingske Tidende og verið blaðamaður hjá fréttatímaritum viðskiptablaðsins Børsen, dagblaðinu Jyllands-Posten og Det Fri Aktuelt.
Thomas Larsen hefur ritað og verið meðhöfundur nokkurra umtalaðra ævisagna stjórnmálamanna, þar á meðal ævisögu Poul Schlüter, Niels Helveg Petersen,Uffe Ellemann-Jensen, Auken, Mogens Lykketoft og Anders Fogh Rasmussen. Hann er auk þess höfundur bókarinnar um stofnanda RCT/IRCT, Inge Genefke – Persónulýsing eldhuga.
Thomas Larsen heldur fyrirlestra um stjórnmál ogfréttamennsku í skólum og stofnunum og stýrir námskeiði hjá endurmenntun Blaðamannaskólans, DJE, auk þess að stýra sérfræðinganefnd hjá viðskipta- og stjórnmálafræðistofnun Viðskipaháskólans í Kaupmannahöfn. Árið 1995 hlaut hann Marshall Memorial styrkinn og árin 1999-2000 var hann John S. Knight styrkþegi í Stanford háskólanum í Bandaríkjunum.
- Eitrað skattamál með áhrifamiklum afleiðingum.
- Thomas Larsen
- 19/08 2010
- Sósíaldemókrataflokkurinn með Helle Thorning-Schmidt í broddi fylkingar átti fastlega von á því fyrir sumarleyfi að komast að völdum í ríkisstjórn. Síðan hefur eitrað skattamál laskað mjög traust á flokksformanninum og gefið ríkisstjórninni undir forystu Lars Løkke Rasmussen færi á að halda völdum.
- Danski þjóðarflokkurinn setur dagskipan
- Thomas Larsen
- 03/06 2010
- Endurreisnaráætlun sem ætlað er að styrkja danskt efnahagslíf á næstu árum inniheldur ýmis ákvæði sem að áliti gagnrýnenda beinast eindregið að innflytjendum. En gagnrýnin er veikburða því að Danski þjóðarflokkurinn hefur unnið baráttuna um stefnu í útlendinga- og samþættingarmálum.
- Bankar – aftur í eðlilegt horf
- Thomas Larsen
- 14/04 2010
- Eftir mikla óróatíð eru dönsku bankarnir að komast aftur í eðlilegt horf og losna við stórfelld inngrip hins opinbera eftir efnahagskreppuna. Eftir er þó að gera út um laun bankastjóranna.
- Frá Kaupmannahöfn til Mexíkó
- Thomas Larsen
- 04/02 2010
- Mexíkó á að vera í forystu fyrir loftslagsráðstefnunni COP 16 og reyna að ná fram metnaðarfullu alþjóðlegu samkomulagi um loftslagsmál sem rann út í sandinn í Kaupmannahöfn. Gestgjafarnir biðu alvarlegan álitshnekki vegna skipulagslausra og ruglingslegra umræðna. Heldur hefur þó dregið úr gagnrýninni á samkomulagið.
- Orrustan um Afganistan
- Thomas Larsen
- 17/12 2009
- Eitt mál stendur upp úr varðandi utanríkis- og öryggismálastefnu Dana: Hversu lengi ætla Danir að halda áfram að styðja hernaðarþátttöku Danmerkur í Afganistan? Hingað til hafa kjósendur stutt þátttökuna og pólitísk samstaða hefur ríkt um málið. En það hriktir í samstöðunni.
- Fátækleg tækifæri
- Thomas Larsen
- 26/11 2009
- Félagslegur ágreiningur í norrænum velferðarþjóðfélögum nútímans birtist á annan hátt en í stéttskiptu þjóðfélagi fyrri tíma. Allir eiga til hnífs og skeiðar og enginn er á götunni. En ekki hafa allir sömu tækifæri í lífinu.
- Erfitt verður að borga fyrir velferðina
- Thomas Larsen
- 21/10 2009
- Vegna versnandi efnahagsástands verður erfiðara að fjármagna velferðina í framtíðinni. Í Danmörku vita stjórnmálamenn hvað til þeirra friðar heyrir. Og þeir vita nokkurn veginn hvaða meðöl gagnast. En þeir þora ekki að fylgja læknisráðunum út í ystu æsar af ótta við að fæla frá kjósendur.
- Norræn sókn í loftslagsmálum
- Thomas Larsen
- 24/09 2009
- Vegna stöðu sinnar gegna Danmörk og Svíþjóð hvort um sig mikilvægu hlutverki í þeirri viðleitni að fá þjóðir heims til að komast að metnaðarfullu samkomulagi á leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn. Það var ekki með ráðum gert, en fyrir sögulega tilviljun eru Danmörk og Svíþjóð í sérstöku aðalhlutverki við að fá þjóðir heims til að gera með sér allsherjarsamkomulag um loftslagsmál á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember.
- Nýir grannar á fjarlægum slóðum
- Thomas Larsen
- 27/08 2009
- Við loftslagsbreytingarnar á norðurskautssvæðinu eignast Danmörk brátt nágranna sem munu leita að möguleikum á flutningaleiðum og vinnslu hráefna af vaxandi áhuga. Það verður æ augljósara því meir sem íshellan bráðnar.
- Danir draga lappirnar
- Thomas Larsen
- 25/06 2009
- Erfiðlega gengur fyrir Lars Løkke forsætisráðherra að koma fram metnaðarfullum áformum um að losna við dönsku fyrirvarana gagnvart ESB. Eftir kosningarnar til Evrópuþingsins er komið á hreint að Danir vilja að vera í Evrópusambandinu. En það á að vera Evrópusamband sem ekki tekur sér of mikil völd.
- Hver á að annast sjúka og aldraða?
- Thomas Larsen
- 28/05 2009
- Í Danmörku reyna flestir stjórnmálamenn að hliðra sé hjá að svara þessum einföldu spurningum: Hver á að hjúkra sjúkum, annast aldraða og kenna börnunum að fáum árum liðnum. Á tímum fjármálakreppu og vaxandi atvinnuleysis þora stjórnmálamenn ekki að minnast á hið brýna úrlausnarefni sem tekur við að kreppu lokinni – það er að segja skort á vinnuafli.
- Framgangi danskra nýbúa miðar hægt og rólega
- Thomas Larsen
- 30/04 2009
- Opni maður danskt dagblað eða horfir á fréttir í sjónvarpinu ber mest á fregnum af ofbeldisfullum átökum milli mótorhjólagengja og innflytjendagengja í Kaupmannahöfn. En það er raunar fleira frásagnarvert: Aldrei áður hafa svo margir nýbúar verið í starfi, aldrei áður hefur svo margt ungt fólk úr innflytjendafjölskyldum verið að mennta sig – og aldrei áður hefur það hafa þeir tekið eins virkan þátt í samfélaginu og látið skoðanir sínar í ljós.
- NATÓ er hornsteinninn
- Thomas Larsen
- 25/03 2009
- Danskir stjórnmálamenn verða að ákveða hvernig málum skuli skipað í varnar- og öryggismálum í Danmörku nú þegar nýjar og margvíslegar ógnir steðja að í heiminum. Hornsteinninn verður áframhaldandi aðild að NATÓ en Danir sinna æ hættulegri hernaðaraðgerðum fyrir bandalagið – ekki síst í Afganistan.
- Norðurlönd eiga á hættu að missa forystuna
- Thomas Larsen
- 24/02 2009
- Norðurlönd hafa spjarað sig ótrúlega vel í alþjóðlegri samkeppni. Nú blasa við erfið viðfangsefni vegna versnandi efnahagsástands og aldurssamsetningar þjóðanna; fjölmennir árgangar aldraðra yfirgefa brátt vinnumarkaðinn og hætt er við að það komi niður á velferðarkerfinu. Fjárveitingar til rannsókna og umhverfisvænna tæknigreina eiga að styrkja stöðu Norðurlanda í samkeppninni.
- Fjármálakreppa frystir danskt efnahagslíf
- Thomas Larsen
- 18/12 2008
- Fyrir fáum mánuðum skorti vinnuafl og ótti við efnahagslega ofhitnun var aðalmálið í stjórnmálaumræðunni um efnahagsmál. Allt er breytt vegna fjármálakreppunnar: Ríkisstjórnin hefur orðið að skerast í leikinn með björgunaraðgerðum í fjármálageiranum og verður nú að örva efnahagslífið. Erfið ár eru framundan.
- Danmörk glatar sérstöðu sinni þegar Obama verður forseti
- Thomas Larsen
- 20/11 2008
- Milli George W. Bush fráfarandi forseta og Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Dana ríkir mikið traust og óvenju gott samband. Með nýrri stjórn Baracks Obamas ætti samband Bandaríkjanna og Danmerkur að komast í eðlilegt horf. Á sumum sviðum mun nýja stjórnin hafa bein áhrif á örlög Foghs og möguleika dönsku ríkisstjórnarinnar til að ná árangri á leiðtogafundinum um loftslagsmál árið 2009.
- Skortur á hug og hönd til starfa
- Thomas Larsen
- 15/10 2008
- Eftir því sem hættan vex á að atvinnuleysi aukist verður æ erfiðara fyrir stjórnmálamenn sem aðhyllast umbótastefnu að sannfæra Dani um að þeir skuli vinna meira. Sem stendur er útlit fyrir efnahagskreppan og niðursveifla valdi því að erfiðara reynist að leysa eitt brýnusta verkefni framtíðarinnar – að útvega nóg vinnuafl þegar fjölmennir árgangar aldraðra setjast í helgan stein.
- Björninn vekur óróa
- Thomas Larsen
- 18/09 2008
- Rússland verður sífellt sjálfsöruggara og árásargjarnara og það veldur dönskum stjórnmálamönnum vaxandi áhyggjum. Þeir hafa fylgst áhyggjufullir með innrásinni í Georgíu og eins og áður hefur sýnt sig eru Rússar tilbúnir að nota mikla hlutdeild sína í orkusölu til Evrópu sem þvingunar- og valdatæki.
- Naiset taistelevat tasa-arvosta sekä huipulla että pohjalla
- Thomas Larsen
- 29/08 2008
- Tanskassa keskustellaan kiihkeästi samapalkkaisuudesta ja tasa-arvosta. Naiset vaativat yhdenvertaisuutta sekä työmarkkinoiden ylä- että alatasolla. Kevään sopimusneuvottelut takasivat matalapalkkaisille lähihoitajille ennennäkemättömän suuret palkankorotukset. Seuraava tavoite on samapalkkaisuuskomitea. Samalla kiinnitetään entistä enemmän huomiota siihen, ettei naisilla ole Tanskassa asiaa yhtiöiden hallituksiin.
- Dreymir um loftslagssáttmála á leiðtogafundi SÞ í Kaupmannahöfn
- Thomas Larsen
- 12/06 2008
- Danska ríkisstjórnin vinnur að því af fullum krafti að skapa grundvöll fyrir alþjóðlegan loftslagssáttmála á leiðtogafundi SÞ í Kaupmannahöfn árið 2009. En vafi leikur á því hvort áhrifamiklir aðilar vilji taka þátt. Samhliða leggja forkólfar í dönsku atvinnulífi áherslu á að nýta loftslagsráðstefnuna sem sýningarglugga fyrir danska umhverfistækni.
