Alþjóðlegt starf Norðurlanda
Danmörk
Orrustan um Afganistan
Eitt mál stendur upp úr varðandi utanríkis- og öryggismálastefnu Dana: Hversu lengi ætla Danir að halda áfram að styðja hernaðarþátttöku Danmerkur í Afganistan? Hingað til hafa kjósendur stutt þátttökuna og pólitísk samstaða hefur ríkt um málið. En það hriktir í samstöðunni.
Ísland
Eru Norðurlöndin útlönd?
Fulltrúar á svokölluðum Þjóðfundi, sem haldinn var á Íslandi í nóvember, vilja lýðræðislegt samfélag góðra lífskjara þar sem velferð er í heiðri höfð, jafnrétti og mannréttindi virt, hugað er að umhverfismálum, lögð áhersla á menntun, nýsköpun og menningu og tryggt að allir njóti aðgangs að heilbrigðiskerfinu. Ísland á jafnframt að vera virkur þátttakandi í samfélagi annarra þjóða.
Finnland
Erfitt að uppfylla markmið Sameinuðu þjóðanna um þróunaraðstoð
Urho Kekkonen forseti Finnlands var viðstaddur þegar ríku iðnvæddu þjóðirnar, lofuðu á þingi Sameinuðu þjóðanna árið 1970, að auka framlög sín til þróunaraðstoðar í 0,7 prósent af vergri landframleiðslu. Kekkonen hét því einnig að Finnar myndu leggja sig fram við að ná þessu markmiði.
Svíþjóð
Þróunaraðstoð sundrar Svíum
Tvö lönd; Sambía og Afganistan endurspegla deilur Svía um þróunaraðstoð. Hægristjórnin er sundruð í afstöðu sinni til þróunarhjálpar í Sambíu á meðan stjórnarandstaðan deilir um veru sænskra hermanna í Afganistan. Þannig vill enginn flokkur ræða þróunaraðstoð og varnarmál.
Noregur
Stórveldi þegar að mannúðarmálum kemur?
Noregur tekur þátt í friðarumleitunum um allan heim, veitir rausnanlegan stuðning við lýðræðis- og mannréttindaverkefni og lætur meira fé af hendi rakna til þróunaraðstoðar miðað við höfðatölu en nokkurt annað land. Sagt er að við séum mannúðarstórveldi. Eða væri kannski réttara að segja að hið opinbera hafi tekið yfir starf sem mörg norsku kristniboðsfélögin sinntu á síðustu öld? Notaðir eru olíupeningar til að flytja út manngæsku eins og góðir Norðmenn skilgreina hana.
Stuðningur við aðgerðir í loftlagsmálum í lágtekjulöndum
Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) breytti áherslum vorið 2009 þannig að horfið var frá því að veita víkjandi lán til félagslegrar og efnahagslegrar þróunar til að veita styrki til aðgerða í loftlagsmálum. Í haust hefur NDF samþykkt framlög til fjárfestinga, sem tengjast loftlagsmálum í lágtekjulöndum, að upphæð meira en 14 milljónir evra.
