Document Actions

Nordisk Udviklingsfond (NDF)

Stuðningur við aðgerðir í loftlagsmálum í lágtekjulöndum

Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) breytti áherslum vorið 2009 þannig að horfið var frá því að veita víkjandi lán til félagslegrar og efnahagslegrar þróunar til að veita styrki til aðgerða í loftlagsmálum. Í haust hefur NDF samþykkt framlög til fjárfestinga, sem tengjast loftlagsmálum í lágtekjulöndum, að upphæð meira en 14 milljónir evra.

17/12 2009

Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) breytti áherslum vorið 2009 þannig að horfið var frá því að veita víkjandi lán til félagslegrar og efnahagslegrar þróunar til að veita styrki til aðgerða í loftlagsmálum. Í haust hefur NDF samþykkt framlög til fjárfestinga, sem tengjast loftlagsmálum í lágtekjulöndum, að upphæð meira en 14 milljónir evra.

Í tengslum við loftlagsleiðtogafund Sameinuðu þjóðanna hefur Norræna ráðherranefndin tekið viðtöl við ýmsa stjórnendur undirstofnana sinna á Norðurlöndum. Í viðtalinu sem hér fer á eftir segir Norræni þróunarsjóðurinn frá nýju framtaki sínu sem ætlað er að stuðla að auknum fjárfestingum tengdum loftlagsmálum í þróunarlöndum.

– Það er ánægjulegt að geta byrjað að vinna að fjárfestingum tengdum loftlagsbreytingum í fátækustu löndum heims með því að fjármagna fjölda mikilvægra verkefna. Loftlagsbreytingunum fylgja veruleg vandamál fyrir þessi lönd. NDF getur í ljósi reynslu sinnar og samstarfs við aðra fjármögnunaraðila stutt þróunarlöndin við að takast á við loftlagsvandamálin, segir Helge Semb framkvæmdastjóri NDF.

NDF fékk nýjar heimildir árið 2009. Hvert er markmiðið með aðgerðum NDF og hvers konar verkefni styrkir NDF um þessar mundir?

– Markmiðið með aðgerðum NDF er að auðvelda fjárfestingar tengdum loftlagsbreytingum í lágtekjulöndum. NDF styður að dregið verði úr loftlagsbreytingum og styður einnig aðlögun að þeim með því að veita fjárstyrk til tækniaðstoðar, efnisöflunar og vinnuafls í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda, auk uppbyggingar innviða og afkastagetu í fátækustu löndum heims.

Hvaða lágtekjulönd eiga rétt á fjármögnun frá NDF?

– NDF getur veitt 27 fátækustu ríkjum heims í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku fjárstuðning. Fyrir utan að vera skilgreind sem lágtekjulönd verða þau jafnframt að hafa þegið styrk áður frá NDF. Í september árið 2009 samþykkti stjórn NDF að veita styrki til verkefna á neðra Mekong-svæðinu (Kambódíu, Laos og Víetnam), Rúanda og Úganda. Þar fyrir utan hefur NDF lagt 4 milljónir evra í nýja fjármögnunarleið sem gengur undir heitinu Nordic Climat Facility (NCF) sem eflir tækni- og verkþekkingarsamvinnu á loftlagssviðinu milli Norðurlanda og styrkhæfra lágtekjulanda. NDF mun nú í desember íhuga að samþykkja fjármögnun fjögurra eða fimm verkefna í viðbót.

Nordic Climate Facility byggist á samstarfi milli NDF og Norrænu umhverfisfjármögnunarstofnunarinnar (NEFCO). Hvaða væntingar hefur þú til samstarfsins?

– Markmið NCF er að stuðla að eflingu samstarfs milli stofnana, yfirvalda, samtaka og fyrirtækja á Norðurlöndunum fimm (Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð) og samstarfsaðilum þeirra í styrkhæfum lágtekjulöndum. Einu sinni á ári verður send út hvatning til að senda inn nýsköpunartillögur tengdar loftlagsbreytingum og munu bestu tillögurnar hljóta styrki. Fyrsta hvatningin var send út í október í ár og að þessu sinni var lögð árhersla á framtak sem snertir vatnsauðlindir og orkuafköst. Það sem gerir hina nýju NDF/NEFCO-stofnun einstaka er að norrænir sérfræðingar í þróunarsamvinnu og umhverfissérfræðingar eru sameinaðir undir einu þaki þar sem þessar stofnanir deila húsakynnum í Helsinki í Finnlandi.

Snúum okkur að öðrum verkefnum sem NDF hefur samþykkt í haust. Út á hvað ganga þau?

– Framlög NDF eru venjulega á bilinu 500.000 evrur til 4 milljóna evra. Í september ákvað stjórn NDF að styrkja sólarorku í Úganda um 3 milljónir evra. Takmarkið er að útvega sólarorku fyrir 81 heilsugæslustöðvar og fjögur vatnsdælukerfi í dreifbýlishéruðum. Í Rúanda styrkir NDF sömuleiðis sólarorku og orkusparnað. NDF mun veita styrk upp á fjórar milljónir evra með það að markmiði að skapa og byggja upp staðbundinn markað fyrir vatnshitara sem byggjast á sólarorku. NDF veitir fjárstyrk að upphæð 415.000 evrur til forkönnunar þar sem kannaður er möguleikinn á því að aðstoða samfélagið í Pakse í Laos við að aðlaga sig loftlagsbreytingum ásamt því að sporna gegn þeim. Í Kambódíu, Laos og Víetnam fjármagnar NDF áætlun sem ætlað er að bæta aðganginn að nútímalegri orku og þjónustugreinum sem grundvallast á orku og draga úr losun á gróðurhúsalofttegundum. Fjárstuðningurinn frá NDF er að upphæð 3 milljónir evra.

Hvernig ákveðið þið hvaða verkefni á að fjármagna?

– NDF veitir framlag í tengslum við samfjármögnun og er í öflugu samstarfi við Alþjóðabankann, Asíska þróunarbankann, Ameríska þróunarbankann, Afríska þróunarbankann og norræn tvíhliða þróunarsamtök. Yfirleitt er komið auga á verkefni og þau valin í gegnum þessa samvinnuaðila. NDF hefur það jafnframt að markmiði að útvega upplýsingar um verkefni og hugmyndir í gegnum norræn fyrirtæki, samtök og tengslanet. Allar ákvarðanir varðandi fjármögnun eru teknar af stjórn NDF en í henni sitja fulltrúar allra Norðurlanda. Starfsemi NDF er ætlað að endurspegla áherslur Norðurlandanna í málefnum loftlagsbreytinga og í baráttunni gegn fátækt.

Fyrir nokkrum árum var nokkur umræða um að leggja niður NDF. Af hverju hefur NDF breytt um áherslu?

– NDF er sameiginleg þróunarfjármögnunarstofnun Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Frá því að hún var stofnuð árið 1989 hefur NDF fjármagnað 190 hagstæð lán til þróunaraðstoðar að upphæð 1 milljarður evra. Árið 2005 lögðu norrænir ráðherrar, sem fara með málefni þróunarsamstarfs, til að NDF yrði lögð niður þar sem löndunum sem að stofnuninni standa tókst ekki að verða á eitt sátt um endurnýjuð skilyrði fyrir sjóðinn. Frekari greiningar og samningaviðræður milli landanna sýndu þó fram á að það er rík ástæða til að NDF haldi áfram starfsemi sinni þar sem nú yrði lögð áhersla á fjárstuðning til íhlutunar í loftlagsmálum í lágtekjulöndum. Fjárstuðningurinn er meðal annars fjármagnaður með endurheimtum af því sem er í útlánum en á næstu 35 árum er um að ræða 1 milljarð evra. Þökk sé áhuga og þátttöku NDF á síðustu 20 árum að okkur hefur tekist að tileinka okkur töluverða reynslu í fjármögnun verkefna í þróunarlöndum – ekki síst á sviði umhverfismála.

Höfundurinn ber sjálfur ábyrgð á innihaldi greinarinnar


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)