Atvinnuleysi eða skortur á vinnukrafti?
Danmörk
Skortur á hug og hönd til starfa
Eftir því sem hættan vex á að atvinnuleysi aukist verður æ erfiðara fyrir stjórnmálamenn sem aðhyllast umbótastefnu að sannfæra Dani um að þeir skuli vinna meira. Sem stendur er útlit fyrir efnahagskreppan og niðursveifla valdi því að erfiðara reynist að leysa eitt brýnusta verkefni framtíðarinnar – að útvega nóg vinnuafl þegar fjölmennir árgangar aldraðra setjast í helgan stein.
Ísland
Útlendingar fara og atvinnuleysi kemur
Á sama tíma og íslenskir námsmenn velta fyrir sér hvort hrun krónunnar hafi í för með sér að þeir verði að hverfa frá námi erlendis og koma sér heim til Íslands að nýju er straumur útlendinga burt frá landinu. Heima á Íslandi reyna líka allir að losna við flugmiðana sem áttu að flytja þá í frí á sólarströnd um jólin eða skíðaferð í Ölpununum. Hver hefur efni á slíku eftir að í ljós kom að gjaldmiðillinn er handónýtur?
Finnland
Ungir menn með myrka huga
Það verða sveitastjórnarkosningar í Finnlandi þann 27. október. Allir væntu þess að öldrun þjóðarinnar og öldrunarþjónustan yrðu aðalmálefni kosningabaráttunnar en alls ekki aðstæður unglinga. Harmleikurinn í Kauhajoki breytti andrúmsloftinu fyrir kosningarnar. Fólk í Finnlandi fylltist sársaukafullri örvæntingu yfir öðru fjöldamorðinu í almennum skóla og sálarástand unglinganna varð mikilvægasta umfjöllunarefnið í landinu.
Svíþjóð
Atvinnuleysi eða skortur á vinnuafli - það er efinn
Eftir tvo mánuði taka gildi ný lög í Svíþjóð sem heimila fólki frá löndum utan Evrópu að koma til landsins í atvinnuleit. Væntingar eru um að þetta innstreymi á vinnuafli muni koma til móts við þarfir sænska vinnumarkaðarins til framtíðar, því sænska þjóðin verður sífellt eldri og unga fólkið hlutfallslega færra. En það sem gerist nú í kjölfar alþjóðlegrar fjármálakreppu er að sífellt fleiri eru að missa vinnuna.
Noregur
Þörf fyrir sífellt fleiri hendur þrátt fyrir metatvinnuþátttöku
Efnahagsleg uppsveifla síðustu ára hefur leitt til metatvinnuþátttöku fólks í Noregi. Á fyrri hluta ársins stunduðu þrír af hverjum fjórum Norðmanna á vinnufærum aldri launaða vinnu. Á næstu áratugum munu enn fleiri okkar vinna þar sem við verðum að geta veitt sístækkandi hópi aldraðra góða umönnun – það er ef alþjóðavæðingin og nýir þjóðflutningar gera ekki Noreg að enn fjölmennara ríki en það er í dag. Tilhneigingin er til staðar: Í fyrra fjölgaði íbúum Noregs sem aldrei fyrr.
