Borgar sjálfbærni sig?
Er samspil milli markmiðssetningar Norðurlandanna um grænan hagvöxt og þess að vilja tryggja sjálfbæra þróun? Eða er grænt eingöngu ætlað til að fegra hugmyndafræðina um að viðhalda hagvexti? Í Analys Norden er fjallað um hin grænu dagskrármál á Norðurlöndum og spurt hvort við höfum efni á því að stuðla að sjálfbærni og vexti, eða hvort við höfum efni á öðru?
Finnland
Hrein tækni og ný þekking á náttúruauðlindum
Í Finnlandi líta menn nýjum augum á þær auðlindir sem alþjóðavæðingin getur ekki tekið frá þeim eftir að glýjan sem fylgdi hringiðunni um Nokia er runnin af þeim. Framvegis verða Finnar að tryggja velferðina í landinu gegnum hreina tækni - með lífrænu eldsneyti frá skógunum, þekkingu á vatni og málmum. Með því að samtvinna þessa þætti, er áformað leggja grunn að sjálfbæru efnahagskerfi og grænum hagvexti.
Svíþjóð
Svíar deila um grænan hagvöxt
Håkan Juholt, nýr flokksformaður sænskra jafnaðarmanna, hélt rómaða stefnuræðu á flokksþingi á dögunum. Hann er skemmtilegur og með yfirskegg og hann dró í ræðu sinni upp nær óbærilega bjarta framtíðarsýn.
Noregur
Allt norskt er umhverfisvænt
Umræðan um grænan vöxt og sjálfbærni einkennist af skorti á hugtökum, óvissri tölfræði og breytilegum sjónarmiðum. Á stundum lítur út fyrir að allt sem byggist á upplýsingatækni eða keyrir á teinum sé umhverfisvænt og að starfsemi í Noregi sem í raun er skaðleg loftslagi og umhverfi sé sjálfbær þar sem sama starfsemi væri mun skaðlegri umhverfinu ef hún færi fram í öðrum löndum. Svolítið sjálfumglatt kannski en það gæti leynst í þessu sannleikskorn.
Danmörk
Danir stefna að grænum vexti
Norðurlandabúar hafa árum saman gengið út frá að vöxtur og sjálfbærni væru andstæður. Tvær nýjar afgerandi skýrslur í Danmörku gera ráð fyrir að Danir verði algerlega óháðir jarðefnaeldsneyti og að stefnt verði að grænum vexti.
Ísland
Neysluglöð þjóð í viðkvæmri náttúru
Um fjórðungur Íslands var líklega skógi vaxinn við landnám. Á stuttum tíma tókst landnemunum að eyða skóginum. Ísland er frægt fyrir óspillta náttúru, víðáttur, öræfi og eyðisanda, en staðreyndin er sú að mikið af þessu hefur orðið til vegna gróðureyðingar og uppblásturs. Íslendingar verða að huga að umgengni sinni við náttúruna.
Færeyjar
Hænuskref Færeyja í rétta átt til sjálfbærni
Brýn nauðsyn er að fækkað verði í færeyska fiskiskipaflotanum ef menn vilja tryggja að sjávarútvegurinn verði líffræðilega, efnahagslega og þjóðfélagslega sjálfbær. Hingað til hefur aðgerðaleysi í sjálfum atvinnuveginum og pólitísk fælni við að taka á málinu komið í veg fyrir að dregið hafi verið úr flotanum.
Nordic countries are greening their economy more than ever
While ‘green economy’ is quickly becoming the catchphrase of governments across the world, the Nordic countries are taking their green economy further than ever.
