Document Actions

Fjárlagakreppan á Norðurlöndum

Mesta kreppa um áratugaskeið ríkir á alþjóðamarkaði. Norðurlöndin fara ekki varhluta af kreppunni og horfa fram til nýs árs með mikilli óvissu í efnahagsmálum. Ìsland hefur orðið sérlega illa úti og þar er hætta á efnahagslegu kerfishruni. Í þessum mánuði er fjallað um fjárlagakreppuna frá norrænu sjónarhorni í Analys Norden og litið til þeirra óvissutíma sem eru fram undan.

Danmörk

Fjármálakreppa frystir danskt efnahagslíf

Fyrir fáum mánuðum skorti vinnuafl og ótti við efnahagslega ofhitnun var aðalmálið í stjórnmálaumræðunni um efnahagsmál. Allt er breytt vegna fjármálakreppunnar: Ríkisstjórnin hefur orðið að skerast í leikinn með björgunaraðgerðum í fjármálageiranum og verður nú að örva efnahagslífið. Erfið ár eru framundan.

Lesa meira

Ísland

Erfið ár framundan

Enginn skilur hvernig þetta gat gerst svona undraskjótt. Allt í einu eru allar forsendur fyrir fjárhagsáætlunum fjölda fólks brostnar. Lánið, sem svo auðvelt var að greiða af fyrir örfáum mánuðum, hefur núna vaxið gríðarlega, enda eru lán á Íslandi verðtryggð og stíga því í takt við verðbólgu. Þegar verðbólgan nálgast 20% er engin furða að lánin hækki svo um munar og það gildir jafnt um húsnæðislán, námslán og önnur langtímalán. Og þá hefur ekki verið minnst á alla sem féllu í þá gryfju að taka lán í erlendum gjaldmiðli. Þau virtust ágæt hugmynd á meðan krónan var sterk. En svo hrundi hún. Þriggja milljóna króna bíllinn, sem keyptur var á slíku láni, er nú óseljanlegur, enda kaupir enginn bíl lengur. Á honum hvílir lán, sem núna er sex milljónir króna. Að ekki sé minnst á íbúðir unga fólksins, sem tók slík húsnæðislán.

Lesa meira

Finnland

Finnar héldu að þeir myndu sleppa auðveldlega

Fréttir af fækkun starfsmanna hafa, eins og á öðrum Norðurlöndum, verið daglegt brauð nú á haustdögum í Finnlandi. Fyrirtækin fresta fjárfestingum eða hætta algerlega við þær, útflutningur dregst saman og óvissan eykst í takti við fyrirsjáanlegt vaxandi atvinnuleysi. Þrátt fyrir allt telur almenningur í Finnlandi að þjóðin muni komast í gegnum fjármálakreppuna með færri skakkaföllum en flestar aðrar þjóðir.

Lesa meira

Svíþjóð

Milljarðapakki ríkisins á að bjarga markaðshagkerfinu

Viðvörunum rignir yfir Svía í kjölfar fjármálakreppunnar. Á þremur mánuðum hafa nær 50. 000 launþegar fengið viðvörun um uppsögn. Þjóðarstoltið, bílaverksmiðjur Volvo og Saab, riða til falls. Kröfur eru uppi um að ríkið taki yfir bílaframleiðsluna. Því hafnar ríkisstjórn hægrimanna og hefur þess í stað lagt fram aðgerðaáætlun þar sem gert er ráð fyrir að jafnvirði 28 milljarða sænskra króna verði varið til að afstýra því að störf flytjist úr landi.

Lesa meira

Álandseyjar

Logn á undan stormi á Álandseyjum

Í vísindagamanmyndinni Men in Black, eða Svartklæddir karlar, sem gerð var fyrir nokkrum árum, leynist heill heimur í kristalkúlu sem hangir um hálsinn á gömlum ketti í stórborginni New York. Nú, þegar gerningaveður fjármálakreppunnar geysar í heiminum, virðast Álandseyjar eins og þessi sjálfstæða veröld, hluti af heiminum, en innilokaðar í sinni litlu sápukúlu.

Lesa meira

Noregur

Noregur þrífst í kreppunni

Enginn ábyrgur stjórnmálamaður er ánægður með efnahagskreppuna, en Jens Stoltenberg tilheyrir þó þeim hópi sem stendur einna minnst ógn henni, hvort heldur persónulega eða vegna landsins. Þó að olíuverðið hafi fallið um meira en helming, olíusjóður landsins minnkað og stöðugt fleiri missi vinnuna lítur út fyrir að Noregi takist að komast nokkuð óskaddað frá kreppunni. Og flokkur forsætisráðherrans á möguleika á að vinna kosningarnar næsta haust.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)