Document Actions

Framtíð norræns orkusamstarfs

Svíþjóð, Danmörk, Noregur og Finnland hafa náið samstarf í orkumálum, en Ísland hefur nokkra sérstöðu. Hvernig er samstarfið að þróast, og hversu langt vilja löndin ganga? Analys Norden varpar ljósi á umræðu um orkumál á Norðurlöndum.

Ísland

Hinar langvinnu deilur um orkuauðlindirnar

Lykillinn að velferð Íslands er orkan. Um það virðast allir sammála. Menn sjá í hillingum framtíð Íslands sem orkulands. En þar endar samstaðan. Um fátt hafa geisað hatrammari deilur á Íslandi síðustu ár en einmitt orkuna. Þær náðu hámarki á árunum 2003-2007 þegar deilt var um risavirkjunina á Kárahnjúkum sem framleiðir rafmagn fyrir hið tröllaukna álver í Reyðarfirði.

Lesa meira

Noregur

Noregur vill verða rafgeymir Evrópu

Það er keppikefli ríkisstjórnar Noregs að fjölga raflínum til meginlands Evrópu og Bretlands þannig að Noregur geti orðið rafgeymir Evrópu. Þegar sæmilegur vindur er í Danmörku og á Doggerbank úti fyrir ströndum Bretlands eigum við að flytja inn raforku. Þegar það er logn eigum við að hleypa vatni úr miðlunarlónum okkar og flytja raforku úr landi. Spurningin er hvort norsku þjóðinni þyki hugmyndin eins góð og ríkisstjórninni. Kjósendur eru ekki hrifnir af nýjum raflínum og mjög breytilegu raforkuverði.

Lesa meira

Danmörk

Á leið til umhverfisvænnar framtíðar

Danskir stjórnmálamenn úr öllum flokkum eru sammála um að gagngert skuli stefnt að því að hætta allri notkun á mengandi kolum, gasi og olíu í landinu. En umbreytingin yfir í umhverfisvæna orku verður gríðarlega erfitt verkefni að kljást við.

Lesa meira

Svíþjóð

Háu rafmagnsverði mótmælt

Rafmagnsreikningurinn í janúar sló Svía algerlega út af laginu. Á flestum heimilum hækkaði rafmagnsreikningurinn um rúman helming og í kjölfarið reis alda mótmæla um allt land. Mörg hundruð þúsund manns hafa sýnt óánægju sína í verki með því að skrifa undir mótmælalista og í fjölmiðlum er talað við fólk sem greiðir nú mörg þúsund krónum hærra mánaðargjald fyrir rafmagnið en áður.

Lesa meira

Finnland

Nyrsta kjarnorkuver á Norðurlöndum

Simo er friðsælt, fámennt bæjarfélag við Austurbotn, um það bil 100 kílómetra norðan Uleå. Pyhäjoki er annar syfjulegur lítill bær sem er í svipaðri fjarlægð fá Uleå nema bara í suðurátt. Í báðum bæjum bíða íbúarnir sumarsins með eftirvæntingu, en sumir eru þó slegnir ótta. Annar hvor bærinn– Simo eller Pyhäjoki – verður meginvettvangur fyrir stefnu Finna í orkumálum, sem að mestu byggir á kjarnorku. Innan skamms verður tekin ákvörðun um í hvoru sveitarfélaginu nyrsta kjarnorkuver á Norðurlöndunum verður byggt.

Lesa meira

Belgía

EU looking north to diversify its energy sources

As tensions are flaring up in EU's southern neighbourhood and the dealings with eastern petro-states are politically embarassing, the 27-strong bloc is looking for inspiration in the Scandinavian energy market and considering a north-south gas corridor.

Lesa meira

Nordic energy – more different than similar

As European Union leaders agreed this month to complete the bloc's internal energy market in 2014 in order to cut dependency on foreign oil and gas, the Nordic countries are facing important political decisions on how to plan for the future of their national energy supplies.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:
Download PDF

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)