Document Actions

Heilsa og umönnun

Við erum orðin vön því að heilbrigðismál séu í fréttum og slegið upp í stórum fyrirsögnum í norrænum fjölmiðlum. Í Svíþjóð eru langir biðlistar og verið að einkavæða í heilbrigðisþjónustu. Lífstíll Dana býður heim hættu á offitu ogfólk lifir að meðaltagi skemur. í Noregi hefur verið hætt við að reisa nýtt sjúkrahótel, enda þótt framkvæmdir við það hafi þegar kostað svimandi upphæðir. Áfengið veldur of mörgum dauðsföllum í Finnlandi og Íslendinga deila um útgjöld til heilbrigðisþjónustu. Í vefritinu Analys Norden í þessum mánuði er fjallað um heilbrigðis og umönnun.

Noregur

Vonlaus stjórn spítalanna

Í vor munu byggingaverkamenn taka niður vinnupalla og krana í kringum beinagrind þeirrar byggingar sem verða átti nýtt sjúkrahótel við Ríkisspítalann í Osló. Hálfbyggð byggingin mun standa óhreyfð, minnismerki sóunar og lélegrar stjórnunar ríkissjúkrahúsanna. Helsta von ríkisstjórnarinnar og háttsettra embættismanna er að hin ófullgerða „hrábygging“, sem kostað hefur á bilinu 450 til 550 milljónir íslenskra króna, muni hafa forvarnargildi og hræða alla stjórnendur stórra og smárra sjúkrahúsa til hlýðni sem hingað til hafa ekki látið að stjórn.

Lesa meira

Svíþjóð

Ágreiningur vex um velferðarmálin

Tekist verður á um velferðarþjónustu fram að næstu kosningum í Svíþjóð, ekki síst um heilbrigðis- og félagsmálin. Deilurnar eru þegar hafnar. Langir biðlistar eru á flestum sjúkrahúsum. Jafnaðarmenn saka hægristjórnina um að reka pólitík sem leiði til mismununar, þeir sem eigi peninga fái betri þjónustu en aðrir. Ráðamenn svara gagnrýninni með því að einkavæðing létti undir hjá hinu opinbera í rekstri heilbrigðiskerfisins.

Lesa meira

Finnland

Áfengi deyðir, öldrun er kostnaðarsöm

Þegar heilsu Finna ber á góma er óhjákvæmilegt að tvo þætti ber hæst: áfengi og aldraða. Áfengisneysla er án efa langstærsta heilbrigðisvandamál Finna. Að íbúarnir eldast hefur hinsvegar í för með sér ótal áskoranir fyrir finnskt samfélag, áskoranir sem allir hafa átt von á en ekki undirbúið sig neitt sérstaklega undir. Báðir þessir þættir eru samtvinnaðir allri pólitískri umræðu.

Lesa meira

Danmörk

Danir lifa of feitt – og það kostar ríkissjóð sitt

Í Danmörku hefur ríkisstjórnin mótað víðtæka stefnu í heilbrigðismálum: Það á að byggja ofursjúkrahús, efla forvarnir og veita hinum fjölmörgu langveiku sjúklingum meiri aðstoð. Markmiðið er að lengja meðalævi Dana – og koma í veg fyrir ískyggilega útbreiðslu lífsstílssjúkdóma sem eiga eftir að kosta heilbrigðiskerfið gríðarleg fjárútlát.

Lesa meira

Ísland

Lækningar á heilbrigðiskerfi

Um fátt annað er meira rifist í pólitíkinni á Íslandi þessa dagana en heilbrigðismál – líklega að efnahagsmálunum einum undanskildum. Stærsta sjúkrahús landsins, Landspítali-Háskólasjúkrahús (LSH), hefur átt í endalausu basli undanfarin ár. Peningar virðast alltaf af skornum skammti og þykir leikmönnum oft furðu sæta þegar loka þarf deildum tímabundið af því að nokkra tugi milljóna króna vantar í reksturinn og það hjá spítala sem hefur yfir þrjátíu milljarða króna til ráðstöfunar á ári hverju.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)