Document Actions

Jafnrétti á Norðurlöndum

Norðurlöndin hafa átt með sér samstarf um jafnrétti í meira en 30 ár. Mörgum markmiðum er náð, en önnur standa enn óleyst. Konur fá enn þann dag í dag mun lægri laun en karlar, karlar gegna í flestum tilfellum stjórnunarstöðum í stórfyrirtækjum og kynbundið ofbeldi er viðvarandi vandamál í flestum norrænu löndunum. En með framtaki eins og jafnréttisnefndinni í Noregi og íslenska fæðingarorlofslíkaninu sem „þvingar” feður til þess að vera heima, getur verið að framtíð norrænna karla og kvenna bjóði upp á meira jafnrétti.

Noregur

Enn er kynbundinn launamunur

Fjórir af tíu stjórnarmönnum norskra stórfyrirtækja eru konur og Noregur er brautryðjendaland í heiminum. Í daglegu tali er rætt um jafnréttisferðaþjónustu, við tökum á móti sérfræðingum, stjórnmálamönnum og blaðamönnum frá öllum heiminum til að kenna þeim hvernig hægt er slá öll met í atvinnuþátttöku kvenna, vel að merkja án þess að fæðingum fækki. Það sem við hins vegar sýnum ekki jafnréttistúristunum er að kynbundinn launamunur hefur verið óbreyttur í 25 ár

Lesa meira

Færeyjar

Hindranir á hliðarspori

Í Færeyjum er hlutfall kvenna í atvinnulífinu lágt þegar litið er til einkageirans en þær eru áhrifameiri í menningarlífinu. Menningarlegar og félagshagfræðilegar ástæður eiga sinn þátt í að hamla þátttöku kvenna í efsta lagi samfélagsins. Hlutfall kvenkyns stjórnmálamanna á Lögþinginu hefur aukist og stúlkur eru í meirihluta í menntaskólum.

Lesa meira

Danmörk

Naiset taistelevat tasa-arvosta sekä huipulla että pohjalla

Tanskassa keskustellaan kiihkeästi samapalkkaisuudesta ja tasa-arvosta. Naiset vaativat yhdenvertaisuutta sekä työmarkkinoiden ylä- että alatasolla. Kevään sopimusneuvottelut takasivat matalapalkkaisille lähihoitajille ennennäkemättömän suuret palkankorotukset. Seuraava tavoite on samapalkkaisuuskomitea. Samalla kiinnitetään entistä enemmän huomiota siihen, ettei naisilla ole Tanskassa asiaa yhtiöiden hallituksiin.

Lesa meira

Ísland

Ekki jafnt, en miðar í áttina

Norðurlandaþjóðirnar vita alveg hvað klukkan slær í jafnréttismálum. Þær standa þar einna fremstar allra þjóða í heiminum, eins og allir vita. Ísland er þar engin undantekning og reglulega fáum við fréttir af hinum og þessum verkefnum, sem eiga að tryggja jafnrétti í raun. Þekking okkar er útflutningsvara. Þannig hafa Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin unnið saman að jafnréttismálum undanfarinn áratug og það samstarf hefur tekist svo vel að því verður haldið áfram. Með sérstakri áherslu á að taka á mansali. Íslenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið vekur athygli hjá öðrum Evrópuþjóðum.

Lesa meira

Svíþjóð

Jafnréttispólitík í dvala

Feður í Svíþjóð voru þeir fyrstu í heiminum sem öðluðust lagalegan rétt til þess að fá greitt fyrir að vera heima með ungum börnum sínum. En nú, 34 árum eftir að foreldraorlofið var innleitt, eru það sem fyrr konurnar sem nýta sér 80% af orlofinu. Að auki fá karlar enn hærri laun en konur fyrir sambærileg störf. Og konur eru einungis 18 prósent stjórnarmanna í skráðum fyrirtækjum í sænsku kauphöllinni.

Lesa meira

Finnland

Ofbeldi gegn konum ennþá vandamál

Ríkisstjórn Finnlands birti nýja jafnréttisáætlun sína í júlímánuði síðastliðnum. Eitt mikilvægasta atriðið í áætluninni er baráttan gegn kynbundnu ofbeldi, vandamál sem lengi hefur verið viðvarandi í Finnlandi. Nefnd Sameinuðu þjóðanna um mismunun kvenna fékk leyfi til þess að gefa út eftirfarandi mat í New York í júlí á þessu ári: Ofbeldi gegn konum er algengt í Finnlandi þrátt fyrir að í landinu sé yfirleitt ríkjandi jafnrétti.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)