Kynslóð án atvinnu?
Svíþjóð
Pólitík fyrir McDonalds
Þær raddir heyrast sem staðhæfa að skyndibitakeðjan McDonalds hafi grætt mest á þeim aðgerðum sænskra stjórnvalda sem áttu að stemma stigu við atvinnuleysi ungs fólks. Í byrjun júlí fyrir röskum þremur árum lækkaði ríkisstjórnin launatengd gjöld atvinnurekenda vegna starfsfólks undir 25 ára aldri. Atvinnuleysi æskufólks hafði náð áður óþekktum stærðum og margir atvinnurekendur veigruðu sér við að ráða óreynd ungmenni til starfa. Stjórnvöld ákváðu að auðvelda þeim leikinn, einfaldlega með því að gera ungt fólk að ódýrari starfskrafti.
Grænland
Atvinnuleysi ungs fólks lítill gaumur gefinn í Grænlandi
Langflestir fyrrverandi nemendur mínir ganga í gegnum lífið sem skuggar. Þeir verða ekki veiðimenn eða sjómenn og þeir fá ekki vinnu. Fyrr en varir eru þeir orðnir miðaldra, þeir lifa á mjög fátæklegum ellilífeyri foreldra sinna. Þannig lýsti mjög vonsvikinn kennari árið 2004 hræðilegu atvinnuástandi á afskekktum svæðum Grænlands á ráðstefnu.
Danmörk
Ungt fólk má ekki standa á hliðarlínunni
Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra hyggst koma í veg fyrir að ungt fólk í Danmörku lendi úti á jaðri þjóðfélagsins með því að gera nákvæma athugun á danska grunnskólanum og breyta reglum um örorkulífeyri. Markmiðið er að ungt fólk öðlist nauðsynlega þekkingu í skólanum til að afla sér frekari menntunar og atvinnu. Jafnframt verði minna um að ungmenni endi sem örorkulífeyrisþegar.
Finnland
Sprengjan sem ekki sprakk
Í vor áætlaði fjármálaráðuneytið í Finnlandi að atvinnuleysi ungs fólks myndi á árinu aukast og verða að minnsta kosti 24 prósent. Síðan hefur ekkert gerst. Þvert á allar væntingar höfðu tölur um atvinnuleysi í lok sumars lækkað, einnig um atvinnuleysi unga fólksins. Þrátt fyrir það er atvinnusköpun fyrir ungt fólk viðvarandi vandamál.
Europe's quest to get youngsters out of unemployment
Faced with recession, high social expenditures and low revenues, as well as external pressure to reduce budget deficits, European countries are struggling to get their youngsters - the most flexible part of the workforce - back into the labour market.
Noregur
Barátta gegn atvinnuleysi háð í leikskóla
Mikill meirihluti norskra stjórnmálamanna og sérfræðinga telur að í baráttunni gegn atvinnuleysi meðal ungs fólks sé nauðsynlegt að beina sjónum að skólakerfinu.
Ísland
Tveimur árum eftir hrunið á Íslandi: Hættan á að unga fólkið flytji burt
Raunveruleikinn á Íslandi er allur annar nú en var fyrir fáum árum. Þá vantaði vinnuafl. Erlent fólk fluttist til landsins í stórum stíl. Á ótrúlega stuttum tíma fjölgaði erlendum borgurum á Íslandi. Það var talin þörf á þessu fólki til að vinna störf á tíma efnahagsþenslunnar þegar atvinnuleysi var tæplega mælanlegt. Eftir hrunið snerist þetta allt við.
Generation no-job - English resume of Analys Norden, October 2010
A new study of youth unemployment in the Nordic countries shows that unemployment among young people has increased as a consequence of the worldwide economic recession. The extent of the problem is varied in the different countries, as is the degree of the measures taken to combat youth unemployment. How can the Nordic governments help the young generation face the future?
