Document Actions

Loftslagsmál – nýr loftslagssamningur í bígerð

Loftslagsumræðan fyllir óteljandi dálksentímetra í dagblöðum um allan heim. Nýjar rannsóknir og pólitísk átaksverkefni miða stöðugt að því að vekja umræðu um loftslagsvandann. Norðurlöndin eru engin undantekning, og þar er öllu tjaldað til vegna loftslagsráðstefnu SÞ sem fer fram í Kaupmannahöfn í desember 2009. Í næstu viku hittast forsætisráðherrar Norðurlanda á fundi við Gøta skurðinn. Erfitt er sjá fyrir sér slíkan fund án þess að loftslagsmál beri á góma. Forsætisráðherrarnir fá gullið tækifæri til að sameina krafta sína og samræma aðgerðir til að ná sem bestum árangri á loftslagsráðstefnunni sem haldin verður á næsta ári. Hér má lesa stjórnmálagreinningar fréttaskýrenda frá Norðurlöndunum öllum. Í þessu tölublaði er einnig greining á stjórnmálaástandinu á Grænlandi.

Noregur

Erfitt að gera hugmynd að veruleika

Það er kominn tími til framkvæmda í loftslagsmálum, og þá reynir á almenning, stjórnmálamenn og kenningar. Miklar verðhækkanir sem orðið hafa á eldsneyti á síðust mánuðum hafa leitt í ljós að sömu aðilar og hvöttu stjórnmálamenn til að vera umhverfisvænni í fyrra hafa nú mestar áhyggjur af eigin buddu. Jafnframt eru nú uppi efasemdir um að allar tækni- og markaðslausnirnar sem áttu að gera okkur kleift að bjarga loftslaginu án þess að breyta um lífsstíl.

Lesa meira

Grænland

Grænland skortir loftslagsstefnu

Dagblöð á Grænlandi hafa undanfarið lýst eftir stefnu í loftslagsmálum. Því á meðan fræðimenn á sviði loftslagsmála og stjórnmálamenn hvaðanæva að úr heiminum ferðast til Grænlands, hefur grænlenska heimastjórnin ekki mótað neina loftslagsstefnu. Þessu heldur grænlenska stjórnarandstaðan fram. Heimastjórnin svarar gagnrýninni með því að verið sé að móta stefnuna og að til standi að stofna alþjóðlega miðstöð loftslagsrannsókna á Grænlandi. Grænlendingar hafa skuldbundið sig til að standa við alþjóðasamþykktir um að draga, fyrir árið 2012, úr losun koltvísýrings um 8 prósent. Á hinn bóginn eru þeir með áform um að reisa fyrsta álver landsins í Maniitsoq á næsta ári sem mun tvöfalda árlega losun koltvísýrings í landinu, en hún er nú þegar um 700.000 tonn.

Lesa meira

Ísland

Rétt að rumska af mengunarblundinum

Þótt stjórnmálamenn hafi á undanförnum árum talað oft og mikið um loftslagsmál og ýmis náttúruverndarsamtök gert slíkt hið sama, þá lét íslenskur almenningur sér lengst af fátt um finnast. Fínt ef það hlýnar aðeins, sagði fólk gjarnan í hálfkæringi. Svo kreppti að, olíuverð rauk upp úr öllu valdi og þá fór þessi þjóð, sem helst vill risavaxna jeppa, að svipast um eftir eyðslugrennri bílum. Margir voru farnir að snúast á sveif með umhverfisverndarsinnum og afneita stóriðju, sem áður hafði verið lausnarorðið mikla. Risavaxin Kárahnjúkavirkjun og álverið sem nýtir orku hennar gengu fram af fólki. Núna sveiflast viðhorfið enn í hina áttina: Verðum við ekki að byggja fleiri álver svo hjól atvinnulífsins fari að snúast af sama, gamla kraftinum á ný? Eða reisa gríðarlega olíuhreinsistöð? Skuldbindingar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda? Hvað er nú það?

Lesa meira

Danmörk

Dreymir um loftslagssáttmála á leiðtogafundi SÞ í Kaupmannahöfn

Danska ríkisstjórnin vinnur að því af fullum krafti að skapa grundvöll fyrir alþjóðlegan loftslagssáttmála á leiðtogafundi SÞ í Kaupmannahöfn árið 2009. En vafi leikur á því hvort áhrifamiklir aðilar vilji taka þátt. Samhliða leggja forkólfar í dönsku atvinnulífi áherslu á að nýta loftslagsráðstefnuna sem sýningarglugga fyrir danska umhverfistækni.

Lesa meira

Finnland

Framlög í kosningasjóð valda hneyksli og varða loftslagsmál

Um mánaðamótin maí, júní var það eitt málefni fremur öðrum sem sætti tíðindum í finnskri stjórnmálaumræðu: Óvissan sem er ríkjandi um fjárhagsstuðning við kosningasjóði stjórnmálamanna. Hvað varðar forsætisráðherrann, Matti Vanhanen snertu umræðurnar einnig stefnuna í loftslagsmálum og hvernig standa beri að byggingum í finnsku samfélagi.

Lesa meira

Svíþjóð

Reinfeldt ætlar að landa alþjóðlegum loftslagssáttmála

Samstarfsstjórn hægriflokkanna í Svíþjóð, með Fredrik Reinfeld í broddi fylkingar, hefur gert umhverfis- og loftslagsmál að sínu helsta ímyndarmáli. Svíar munu fara með formennsku í Evrópusambandinu á næsta ári, á sama tíma og stefnt er að því að nýr alþjóðasáttmáli um aðgerðir í loftslagsmálum verði undirritaður á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Stjórnin er með metnaðarfull áform og stefnir að því að Svíar, sem formennskuþjóð, knýi fram samkomulag á fundinum.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)