Menning og skapandi atvinnugreinar
Finnland
Sorg í Finnlandi eftir fjöldamorð í skóla
Ef það er eitthvað sem Finnar hafa getað sett traust sitt á, þá eru það skólar og sjúkrahús. En í byrjun nóvember breyttist nemandi í skóla nokkrum í kaldrifjaðan morðingja og tólf þúsund hjúkrunarfræðingar voru reiðubúnir til þess að segja upp störfum. Andrúmsloftið í landinu endurspeglar hryssingslegt nóvemberveðrið, það er drungalegt og niðurdrepandi. Það er langt síðan reynt hefur jafn rækilega á grundvallaröryggi þjóðarinnar.
Svíþjóð
Siðferðisbrestir veikja sænsku stjórnina
Það rúma ár sem liðið er síðan stjórn borgaraflokkanna í Svíþjóð tók við völdum hefur verið ein löng martröð fyrir hófsama hægrimenn og Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra. Þrír ráðherrar flokksins hafa hrakist úr embætti og nú neyðist Reinfeldt til að reka aðstoðarmann sinn og nánasta samstarfsmann vegna hneykslis sem hófst með kossaflensi á krá. Að auki hefur æðsti embættismaður forsætisráðuneytisins orðið uppvís að því að kaupa svarta vinnu. Þetta grefur undan trausti almennings á Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra.
Noregur
Menningin og afþreyingariðnaðurinn
Í Noregi hefur verið komið á einokun ríkisins á peningaspilum. Þar með hefur menningarmálaráðherrann bætt við sig ábyrgð á enn einum ráðherradómnum sem menningar-, afþreyingar- og skemmtiráðherra. Hann hefur fengið meira fé til umráða á síðustu árum, en væntingarnar til menningarstefnu hins opinbera, sem verður sífellt samlagaðri almennri stjórnmálastefnu, vaxa enn hraðar en fjárstreymið.
Danmörk
Ný bandalög í dönskum stjórnmálum
Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur tókst að vinna þriðja ríkisstjórnarkjörtímabilið í röð og pólitískur meirihluti hans frá árinu 2001, sem byggður er á Vinstriflokknum, Íhaldsflokknum og Danska þjóðarflokknum, heldur velli eftir kosningarnar 13. nóvember. Samt sem áður ætlar Fogh nú að vinna að því að ná sáttum víðar yfir miðjuna í dönskum stjórnmálum. Lesið um þverstæðukenndar afleiðingar kosninganna í Danmörku.
Ísland
Viðskipti fella borgarstjórn og rugla RÚV
Borgarstjórn Reykjavíkur hrökklaðist frá völdum á haustdögum í kjölfar fádæma klúðurs, þar sem enginn virtist vita hvernig eigum borgarbúa hefði verið ráðstafað og til hve langs tíma. Menn höfðu uppi mörg orð um hversu erfitt væri að samræma opinberan rekstur þeim kröfum sem gerðar væru í einkarekstri, þar sem allt þarf að ganga svo hratt fyrir sig og arðsemi er æðsta boðorð.
