NATO og Norðurlönd
Danmörk
NATÓ er hornsteinninn
Danskir stjórnmálamenn verða að ákveða hvernig málum skuli skipað í varnar- og öryggismálum í Danmörku nú þegar nýjar og margvíslegar ógnir steðja að í heiminum. Hornsteinninn verður áframhaldandi aðild að NATÓ en Danir sinna æ hættulegri hernaðaraðgerðum fyrir bandalagið – ekki síst í Afganistan.
Ísland
Nýliðar eftir 60 ár í NATÓ
Íslendingar eru enn að fóta sig í varnarmálum eftir brotthvarf bandaríska hersins frá Íslandi árið 2006. Þótt landið færi vissulega með fullt forræði á utanríkismálum sínum var reyndin sú, að stjórnvöld treystu mjög á leiðsögn Bandaríkjamanna, sem ráku hér herstöð um 55 ára skeið. Þegar rætt var um hver þörfin væri á loftrýmiseftirliti við Ísland lá mat Bandaríkjamanna til grundvallar fremur en sjálfstætt mat Íslendinga.
Norrænt samstarf um öryggis- og utanríkisstjórnmál?
Hinn 9. febrúar 2009 getur orðið merkisdagur í sögu norræns samstarfs. Þá afhenti Thorvald Stoltenberg norrænu utanríkisráðherrunum fimm skýrslu sína um norrænt utanríkis- og varnarmálasamstarf.
Can the Nordic countries have their own NATO?
As the Nordic countries are increasingly facing common security challenges arising from the melting ice cap and the race for natural resources, the five governments are pondering on ways to pool resources and increase their collective security.
Noregur
NATÓ er og verður burðarvirkið
Það skiptir engu máli þó að það sé faðir norska forsætisráðherrans sem hefur viðrað hugmyndina: Ríkisstjórnin mun ekki leyfa norræna varnarsamstarfinu að þróast svo mikið að úr verði norrænt varnarbandalag. Það kæmi aðeins til ef NATÓ og Bandaríkin færu skýlaust fram á það við Noreg að þróa svæðisbundinn varnarsáttmála sem yrði viðbót við varnartrygginguna sem felst í NATÓ-samstarfinu.
Svíþjóð
Aðild að NATO ekki á dagskrá
Allar götur frá því að Berlínarmúrinn féll hefur samstarf Svía og Atlantshafsbandalagsins orðið meira og nánara. Svíar taka þátt í tug NATO-æfinga á ári hverju. Aðild þeirra að NATO er þó ekki í augsýn. Sænski þjóðarflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem er fylgjandi fullri aðild að bandalaginu.
Finnland
Lítil sátt um aðildarviðræður í Finnlandi
Um þessar mundir fara fram stöðugar umræður í Finnlandi um hvað mæli með og á móti aðild Finna að Norður-Atlantshafsbandalaginu. Fram til þessa hefur aðild eiginlega þótt fjarstæðukennd. Næstu þingkosningar, að tveimur árum liðnum, geta hinsvegar haft afgerandi áhrif á samband Finna við Norður-Atlantshafsbandalagið. Þeir sem styðja aðild hugsa til 2012 sem ársins þegar hægt verður að komast að niðurstöðu í málinu.
