Norðurlönd og heimurinn – samkeppnishæfni og samskipti við alþjóðasamfélagið
Noregur
Opna utangarðslandið
Noregur er eitt af opnustu efnahagskerfum heimsins en efnahagsniðursveifla heimsins hefur haft mjög takmörkuð áhrif á Noreg. Við höfum hafnað aðild að Evrópusambandinu oftar en einu sinni, en þrátt fyrir það hefur Noregur aðlagað sig betur að ESB en mörg aðildarríkjanna. Laun í fyrirtækjum hækka sennilega meira í Noregi í ár en í mikilvægustu samkeppnislöndum okkar. En það kvartar varla nokkur maður yfir því að samkeppnisstaða landsins sé að versna af þeirri ástæðu. Það er ekki auðvelt að skilja norsku leiðina.
Finnland
Utanríkisráðherra lætur af störfum eftir smáskilaboðahneyksli
Að kvöldi mánudagsins 31. mars héldu utanríkisráðherrar Finnlands, Svíþjóðar og Noregs sameiginlegan blaðamannafund í Helsinki. Salurinn fylltist af fjölmiðlafólki. Carl Bildt og Jonas Gahr Støre fylgdust vandræðalegir með þegar Kanerva utanríkisráðherra Finna staðhæfði að hann hygðist ekki láta af störfum.
Svíþjóð
Velferðin mælist meiri, en blikur eru á lofi
Í lok síðasta árs tóku Svíar stórt stökk upp á við í samkeppnishæfni, þeir fóru úr níunda sætinu í það fjórða á þessum afrekalista fremstu þjóða heims. En nú eru blikur á lofti. Samkeppnishæfni hefur minnkað í kjölfar þess að gengi dollars hefur lækkað. Og öllum að óvörum hefur Anders Borg fjármálaráðherra kynnt nýjar hagvaxtartölur sem eru mun lægri en hann hafði áður spáð fyrir um.
Danmörk
Norræna sigurliðið tekst á við nýjar áskoranir
Jafnvel þótt Norðurlöndin vinni hvert fyrir sig markvisst að því að rækja alþjóðatengsl er það af hinu góða að hittast – eins og til stendur á Riksgränsen í Svíþjóð 8.-9. apríl 2008 – til að ræða kostina í hnattvæddum heimi. Þó kunna ráðherrarnir að þurfa að horfast í augu við að lönd þeirra, sem hafa notið svo mikillar velgengni, verði framvegis undir þrýstingi vegna hagsveiflu í alþjóðlegum efnahagsmálum.
Ísland
Ísland- best í heimi!
Í sjónvarpsauglýsingum fyrir íslenskan bjór sitja tveir íslenskir náungar við barborð og monta sig við erlendan ferðamann. Þeir hafa af nógu að taka. Hér á landi eru sterkustu karlar heims og fegurstu konurnar, við vorum fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Litháen og við lögðum Breta að velli í Þorskastríðinu svokallaða þegar við færðum landhelgina út.
