Norðurlönd og loftslagsvandinn
Svíþjóð
Taugatitringur fyrir Kaupmannahafnar-fundinn
Sá árangur sem næst á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn (COP15) í desember verður mælikvarði á velgengni Svía sem formennskuþjóðar í Evrópusambandinu. Það er Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra kappsmál að vel takist til á formennskutímanum og hann er staðráðinn í því að landa nýjum alþjóðlegum loftslagssáttmála í Kaupmannahöfn. En á sama tíma slær hann varnagla og hefur áhyggjur af því að of hægt gangi í samningaferlinu.
Danmörk
Norræn sókn í loftslagsmálum
Vegna stöðu sinnar gegna Danmörk og Svíþjóð hvort um sig mikilvægu hlutverki í þeirri viðleitni að fá þjóðir heims til að komast að metnaðarfullu samkomulagi á leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn. Það var ekki með ráðum gert, en fyrir sögulega tilviljun eru Danmörk og Svíþjóð í sérstöku aðalhlutverki við að fá þjóðir heims til að gera með sér allsherjarsamkomulag um loftslagsmál á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember.
Noregur
Tapte miljøpartiene valget?
Høstens stortingsvalg forbauser ekspertene. Nær historie og erfaringene fra andre land skulle tilsi at regjeringspartiene tapte oppslutning, men de fikk fornyet tillit. Arbeiderpartiet kan være på vei mot gamle høyder.
Ísland
Vonin felst í votlendinu
Umhverfismál ættu að vera ofarlega á baugi á Íslandi, þar sem nú sitja í ríkisstjórn þeir tveir flokkar, sem löngum hafa viljað tengjast slíkum málum umfram aðra.
Bugðóttur og torfær vegur til Kaupmannahafnar
„Enn og aftur hefur Evrópa tekið forystuna í krafti aðgerða, ekki orða – með því að verða fyrsta svæðið í heiminum sem tekur í gildi svo víðtæk, lagalega bindandi loftlags- og orkumarkmið." Þetta sagði Jose Manuel Barroso forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í vor og óskaði þar með sjálfum sér og öðrum ESB-leiðtogum til hamingju stuttu eftir að þeir höfðu formlega samþykkt loftlags- og orkumálapakkann sem markar tímamót.
Saman erum við klókari: Norrænt samstarf um þróun orku
Við ættum að vinna saman og við hefðum átt að byrja í gær. Þetta var einn aðalboðskapurinn í líflegri pallborðsumræðu á ráðstefnunni Norrænar loftlagslausnir (Nordic Climate Solution) sem haldin var í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Í umræðunum var meðal annars tekið á málefni sem hefur úrslitaáhrif á áform um að hrinda í framkvæmd markmiðum okkar varðandi endurnýjanlega orku og útstreymi gróðurhúsalofttegunda – hugmyndinni um „Smartnet“ (Smart Grid).
Finnland
Finnar stefna að því að minnka losun um 80 prósent
Finnar hafa, í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn, sett sér umtalsvert háleitari markmið um losun en þeir hafa gert fram til þessa. Markmið ríkisstjórnarinnar er að leggja fram tillögur í október að því hvernig hægt verði að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 80 prósent fram til ársins 2050. Fram til þessa hefur stefna Finna fyrst og fremst beinst að því að aðlaga sína stefnu að ákvörðunum Evrópusambandsins.
