Norðurlönd og Rússland
Rússland Danmörk
Björninn vekur óróa
Rússland verður sífellt sjálfsöruggara og árásargjarnara og það veldur dönskum stjórnmálamönnum vaxandi áhyggjum. Þeir hafa fylgst áhyggjufullir með innrásinni í Georgíu og eins og áður hefur sýnt sig eru Rússar tilbúnir að nota mikla hlutdeild sína í orkusölu til Evrópu sem þvingunar- og valdatæki.
Ísland
Rússarnir koma – aftur!
Rússneskar herflugvélar eru farnar að sveima í kringum Ísland að nýju. Þær hafa verið sjaldséðar við landið í seinni tíð, til dæmis komu aðeins tvær inn í lofthelgina árið 2003 og þar áður sáust þær síðast árið 1999. En nú vilja Rússar aftur láta taka mark á sér sem hernaðarveldi og einn liður í því er að endurvekja æfinga- og eftirlitsflug.
Finnland Rússland
Timburtollar eitt helsta vandamálið í samskiptum við Rússland
Viðburðirnir í Georgíu hafa vakið heitar umræður í Finnlandi um hvert stefni í þróun Rússlands en þeir virðast ekki hafa haft nein afgerandi áhrif á tvíhliða samskipti þjóðanna. Brýnustu spurningarnar varða hagkerfið. Hækkaðir tollar á timbur hafa nú þegar valdið því að þúsund störf í timburiðnaði tapast og hin ógnar þunga umferð flutningabíla við landamærin í austri teppist stundum og myndar langar raðir.
Svíþjóð
Rússar setja varnarstefnu Svía í uppnám
Stríðið milli Georgíu og Rússlands hefur valdið uppnámi í sænsku ríkisstjórninni. Innrás Rússa mun draga dilk á eftir sér í stefnu Svía í varnarmálum. Að mati sænsku stjórnarinnar þarf að kanna enn betur stefnumið í öryggismálum í kjölfar átakanna í Georgíu. Það gæti leitt til þess að öryggis- og varnarmálastefnan verði endurskoðuð.
Rússland Noregur
Á tánum gagnvart Rússlandi
Fleiri rússneskar orrustuþotur flugu fyrir ströndum Noregs í fyrra en samtals í 16 ár þar á undan. Rússar héldu síðan í ár flotaæfingu svo nálægt olíuborpöllunum að norsk yfirvöld sáu sig nauðbeygð til að mótmæla. Það er fremur leiðinlegt að margir Norðmenn veltu því fyrir sér síðsumars hvort kalda stríðið væri skollið á að nýju þegar Rússland beitti hernaðarmætti sínum í Kákasus.
