Document Actions

Norðurlöndin og ESB – samstarf með framtíð?

Svíþjóð tekur við formennsku í ESB 1. júlí n.k. og mun stýra sambandinu í gegnum erfiða tíma bæði efnahagslega og pólitíska. Ríkisstjórnirnar takast nú á við fjármálakreppuna og óskýr staða hvað varðar Lissabon samkomulagið skekur grundvöll samstarfsins milli ríkja ESB. Jafnframt hefur pólitíska Evrópukortið nú tekið breytingum í eftir kosningarnar til Evrópuþingsins. Hvers konar ESB er það sem Svíþjóð tekur nú við formennsku í? Þennan mánuð verður fjallað um þetta mál og sambandið á milli ESB og Norðurlandanna í Analys Norden.

Finnland

Finnar telja að allar Norðurlandaþjóðirnar eigi að vera í ESB

Í apríl 2009 gerði finnska ríkisstjórnin þinginu grein fyrir stefnu sinni í málefnum ESB. Í þeim hluta skýrslunnar sem fjallaði um stækkun ESB var stefnu Finna lýst á eftirfarandi hátt: „Öll Norðurlöndin auk allra ríkjanna á Balkanskaganum og Tyrklands verða aðilar að ESB þegar þau uppfylla skilyrðin fyrir aðild.“

Lesa meira

Finnland

Formennska prófsteinn á leiðtogahæfileika Reinfeldts

Miklar væntingar eru gerðar til Fredrik Reinfeldts forsætisráðherra þegar Svíar taka við formennsku í Evrópusambandinu af Tékkum þann 1 júli. Ekki síst vegna þess að hann á að landa nýjum alþjóðlegum loftslagssáttmála þrátt fyrir fjármálakreppuna. Sjálfur varar hann við of miklum væntingum og segir mjög hafa dregið úr áhuga manna á loftslagmálum

Lesa meira

Danmörk

Danir draga lappirnar

Erfiðlega gengur fyrir Lars Løkke forsætisráðherra að koma fram metnaðarfullum áformum um að losna við dönsku fyrirvarana gagnvart ESB. Eftir kosningarnar til Evrópuþingsins er komið á hreint að Danir vilja að vera í Evrópusambandinu. En það á að vera Evrópusamband sem ekki tekur sér of mikil völd.

Lesa meira

Noregur

Mun ákvörðun Íslands toga í Noreg?

Það eru alltaf einhver önnur lönd sem fá Norðmenn til að ræða aðild að Evrópusambandinu (ESB). Á sjöunda áratug síðustu aldar voru það Bretar, í byrjun tíunda áratugarins voru það Svíar. Ekki er hægt að útiloka að það verði Íslendingar sem komi af stað þriðju ESB-umræðunni í Noregi. En það er langur vegur milli þess að hefja umræðuna og til þess að Norðmenn samþykki ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fátt bendir til þess að Noregur muni fylgja Íslandi inn í ESB.

Lesa meira

Ísland

„Okkar bestu vinir“

forsætisráðherrarnir hittust á fundi á Íslandi um miðjan júní brann heitast á íslenska forsætisráðherranum að ræða hugsanlega aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Og Jóhönnu Sigurðardóttur var ágætlega tekið. Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svía, sagði að hann myndi leggja sitt af mörkum til að greiða götu Íslendinga og koma aðildarumsókninni á dagskrá eins fljótt og auðið væri. Kollegar hans frá Danmörku og Finnlandi tóku í svipaðan streng. „Það væri fínt ef umsóknarferlið gæti hafist í formennskutíð Svía í lok þessa árs og mín vegna má það gjarnan enda með inntöku Íslands 2012, þegar Danir hafa tekið við formennskunni,“ sagði danski forsætisráðherrann Lars Løkke Rasmussen við íslenska fjölmiðla.

Lesa meira

Belgía Svíþjóð

Formennska Svía séð frá Brussel

Sendierindrekar í Brussel hlakka til 1. júlí en þá tekur Svíþjóð við formennsku í Evrópusambandinu af Tékklandi. Undanfarnir mánuðir hafa einkennst af því að svo virðist sem rótleysi hafi ríkt í ESB þar sem Tékkum hefur mistekist að sýna myndugleik sinn innan sambandsins vegna ósamkomulags innanlands og því hafi aðildarríkin tekist á opinberlega um það hvernig bregðast eigi við þeim hrikalegu efnahagserfiðleikum sem nú ríkja.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)