Rannsóknir, nýsköpun og útflutningur
Finnland
Nýr og stór nýsköpunarháskóli
Áætlanir eru uppi um að sameina þrjá háskóla í Helsinki í einn nýsköpunarháskóla og eru bæði ríkisstjórnin og atvinnulífið eru reiðubúin til þess að leggja fjármagn til. Markmiðið er að skapa nýtt lærdómssetur á heimsvísu og samtímis efla finnskar rannsóknir. Lykilorðin í allri umræðu í samfélaginu og háskólunum eru „nýsköpun“ og „framúrskarandi frammistaða“ og það einmitt það sem allir stefna að.
Svíþjóð
Vísindamenn gagnrýna veika stöðu Svía
Rannsóknir eru mikið hitamál í Svíþjóð um þessar mundir. Ríkisstjórninni hefur borist óvenjulegt bréf frá öllum helstu fulltrúum sænska rannsóknageirans þar sem rýrar fjárveitingar til almennra rannsókna eru gagnrýndar harðlega. Að mati bréfritara stendur tiltölulegra sterkri stöðu Svía á þessu sviði ógn af breytingum sem fylgja í kjölfar hnattvæðingarinnar. Því setja helstu rannsóknarstofnanir og háskólar Svíþjóðar, með Björn von Sydow formann vísindaráðs og fyrrum forseta sænska þingsins í broddi fylkingar, fram kröfu um að ríkisstjórnin standi við heit sem gefin voru í hita kosningabaráttunnar um að heill hundraðshluti af vergri þjóðarframleiðslu verði látinn renna til almennra rannsókna.
Noregur
Veljum frekar velferð en menntun
yrir þremur árum voru norskir stjórnmálamenn sammála: Áður en áratugurinn er allur ber Noregi að nota þrjú prósent af heildarverðmætisaukningu sinni í rannsóknir. Það var talið bráðnauðsynlegt til að tryggja getu og nýsköpun atvinnulífsins sem síðan ætti að tryggja verðmætaaukningu í framtíðinni. Markmiðið næst ekki. Stjórnmálamennirnir nota féð í velferð dagsins í dag í staðinn.
Ísland
Útflutningur þekkingar – innflutningur nemenda
Íslenskir fjárfestar hafa víða náð fótfestu á erlendum mörkuðum og nú er svo komið að stór hluti viðskipta íslenskra banka og fjárfestingarfélaga á rætur að rekja til umsvifa erlendis. Bankar og fyrirtæki svipast í sífellu um eftir nýjum tækifærum og enginn vafi leikur á að orkugeirinn á hug þeirra allan um þessar mundir. Þar sjá menn færi á að nýta áratuga reynslu og víðfeðma þekkingu íslenskra vísindamanna til landvinninga.
Danmörk
Frá samkeppnishæfni til yfirboðs
Danska ríkisstjórnin leggur jafnvægi dansks efnahagslífs að veði með því að ætla sér í senn að lækka skatta og auka opinbera neyslu svo um munar. Það fullyrða ráðandi hagfræðingar sem harma að pólitísk dagskipan í Danmörku skuli hafa tekið algerum stakkaskiptum á aðeins einu ári. Samkeppnishæfni á alþjóðavísu var efst á baugi en nú eru velferðarmálin í brennidepli.
