Document Actions

Sósíaldemókratar – í kreppu eða endurfæddir

Vinstri flokkanir hafa styrkt stöðu sína sums staðar á Norðurlöndum. Er það vegna sósíaldómkrata eða þrátt fyrir þá? Analys Norden lítur að þessu sinni á stöðuna í stjórnmálum á Norðurlöndum.

Ísland

Ísland horfir til Norðurlandanna

Á Íslandi situr ríkisstjórn sem beinlínis kallar sig „norræna velferðarstjórn“. Það var nafnið sem hún gaf sjálfri sér þegar hún tók við vorið 2009. Skilaboðin voru þau að nú væri kominn nýr tími eftir frjálshyggjuvæðingu undangenginna áratuga. Þetta er hreinræktaðasta vinstri stjórn í sögu Íslands – að minnsta kosti lítur hún þannig út á pappírum – mynduð af sósíaldemókrataflokknum Samfylkingunni og Vinstri grænum en það er flokkur sem getur rakið sögu sína aftur til Sósíalistaflokks Íslands og þaðan reyndar til Kommúnistaflokksins.

Lesa meira

Danmörk

Eitrað skattamál með áhrifamiklum afleiðingum.

Sósíaldemókrataflokkurinn með Helle Thorning-Schmidt í broddi fylkingar átti fastlega von á því fyrir sumarleyfi að komast að völdum í ríkisstjórn. Síðan hefur eitrað skattamál laskað mjög traust á flokksformanninum og gefið ríkisstjórninni undir forystu Lars Løkke Rasmussen færi á að halda völdum.

Lesa meira

Noregur

Jafnaðarmenn vilja stjórna

Í 30 ár hefur því verið spáð með jöfnu millibili að blómaskeiði Verkamannaflokksins sé lokið en aldrei hefur spádómurinn ræst. Þrátt fyrir að nú í sumar hafi litið út fyrir að Hægriflokkurinn tæki stöðu Verkamannaflokksins sem stærsti flokkur landsins samkvæmt skoðanakönnunum þá telur varla nokkur maður að um sé að ræða varanlegt ástand. Verkamannaflokkurinn er ennþá eini flokkurinn sem er treyst til að stýra landinu einn.

Lesa meira

Finnland

Afdrifarík ákvörðun um stjórnarsetu

Næstu þingkosningar í Finnlandi sem fara eiga fram næsta vor verða afdrifaríkar fyrir Jafnaðarmannaflokkinn sem nú er í stjórnarandstöðu. Haldi flokkurinn áfram að tapa fylgi, á þessi fyrrum áhrifamikli stjórnmálaflokkur á hættu að verða utanveltu um langan tíma. Meginvandi flokksins (SDP) felst einkum í tvennu: almennum óvinsældum vinstrimanna og tilkomu nýrrar tegundar af lýðskrumi.

Lesa meira

Svíþjóð

Þrautaganga sænskra jafnaðarmanna

Engu máli skiptir hverjir fara með sigur af hólmi í kosningunum í Svíþjóð í september, hægriflokkarnir eða þeir á vinstrivængnum. Jafnaðarmenn munu gjalda afhroð hvernig sem fer - jafnvel fá minnsta kjörfylgi frá upphafi.

Lesa meira

The strange death of social democratic Europe

Social democracy is not merely going through a rough patch: it has seen a steady decline in support over the last three decades. It is unlikely to see any revival in its fortunes until it rediscovers its foundational principles, and throws off the restrictions to its 'radical horizon of the imagination'. If it does not, it is not just a tragedy for the parties themselves, but for all of Europe, as dark forces to the right of mainstream conservatism wait in the wings to fill the vacuum its absence creates.

Lesa meira

Samantekt á ensku

Norrænir jafnaðarmannaflokkar eru að missa söguleg völd sín

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)