Sveitarstjórnarmál
Finnland
Haparanda Torneå – undraverð þróun fyrir norðan.
Það þarf ekki að koma neinum á óvart að mestu framfarirnar í Finnlandi eigi sér stað á hinu ört vaxandi svæði í kring um Helsinki. En það kemur hins vegar á óvart að tvö framfarasvæði á alþjóða vísu skuli vera í norðlægum hlutum landsins. Annað þeirra er tækniundrið Oulu . Hina framfarasöguna er einmitt verið að skrifa um þessar mundir á landamærum Finnlands og Svíþjóðar og hún fjallar um einn ótrúlegasta árangur sem orðið hefur af norrænu samstarfi.
Svíþjóð
Hveitibrauðsdagarnir liðnir hjá nýrri ríkisstjórn í Svíþjóð
Ríkisstjórn hægriflokkanna í Svíþjóð hefur nú verið 100 daga við völd. Hún fékk rífandi byr í byrjun, en ekki úr þeirri átt sem nýir valdhafar höfðu gert sér vonir um. Hvert hneykslismálið af öðru hefur dunið yfir, uppljóstranir um verðbréfabrask, ráðherrar hafa sagt af sér og efnt hefur verið til fjölmennra mótmæla gegn stefnu stjórnarinnar að lækka atvinnuleysisbætur og hækka greiðslur í atvinnuleysistryggingasjóði.
Noregur
Ótti stjórnmálamanna við þjóðina
Þrátt fyrir að einungis búi 209 manns í minnsta sveitarfélagi Noregs þá er ætlast til þess að það sjái alfarið um leikskóla, skóla og þjónustu við aldraða. Flestir landsmálapólitíkusar og næstum allir háttsettir embættismenn hjá ríkinu telja óskynsamlegt að svo smá sveitarfélög beri svo mikla ábyrgð. En það skiptir varla máli meðan íbúarnir eru ánægðir! Sérhverja breytingu á landamerkjum í sveitarfélaga- og landshlutakerfinu verða stjórnmálamenn á landsvísu að þrýsta í gegn og þeir hafa ekki mikinn áhuga á því.
Danmörk
Nýtt Danmerkurkort verður til
Þegar Danir vöknuðu á nýársmorgun birtist þeim nýtt Danmerkurkort. Búið var að fækka sveitarfélögunum 270 niður í 98 stór sveitarfélög og á herðar þeirra er lögð sú ábyrgð að leysa úr flestum velferðarmálum og jafnframt eiga þau að veita borgurunum aðgang að hinu opinbera. Fimm landhlutar eiga framvegis – samkvæmt því sem ríkisstjórnin sér fyrir sér – að tryggja heilbrigðiskerfi á heimsmælikvarða.
Ísland
Sjálfstætt fólk, lítil sveitarfélög
Ríkisstjórn Íslands gerir nú enn eina ofurvarfærna tilraun til að fá pínulítil sveitarfélög með innan við þúsund íbúa til að sameinast öðrum, þannig að hægt verði að færa valdið nær fólkinu og auka þjónustu sveitarfélaganna. Sagan sýnir að ekki er sennilegt að íbúunum finnist það góð hugmynd.
