- Info
Þema
-
Norræna líkanið undir þrýstingi
-
Sú samfélagsgerð sem norrænu ríkin hafa þróað undanfarin eitt hundrað ár er undir þrýstingi. Efnahagskreppan ógnar velferðinni og alþjóðleg samkeppni eykst. En er hið svonefnda norræna líkan hluti af lausninni eða vandamálinu? Og hvað þýðir eiginlega „The Nordic Way“? Þessi málefni eru til umfjöllunar í síðasta tölublaði Analys Norden. Í blaðinu voru dregin saman nokkur af umfjöllunarefnum fyrri tölublaða, í greiningu á kjarnanum í „hinu norræna“.
-
Loftslagsvandinn úti í kuldanum?
-
COP15 í Kaupmannahöfn er í fersku minni og framundan er COP17 í Suður-Afríku. Hinn hnattræni loftslagsvandi er langt frá því að vera leystur, en svo virðist sem fjölmiðlar hafi gleymt honum. Hvar standa norrænu ríkin í aðdraganda COP17 og hvaða aðgerða hafa menn gripið til frá lokum COP15. Um þetta verður fjallað í síðasta tölublaði Analys Norden á þessu ári.
-
Pólitískar öfgar á Norðurlöndum
-
Við erum vön því að verða vitni að pólitísku ofbeldi úr fjarlægð, sem birtingarmynd samskiptahátta sem eru ólíkir norrænum hefðum. En undanfarin ár hafa pólitískar öfgar í auknum mæli orðið áberandi, einnig á Norðurlöndum. Nýjasta og versta dæmið er harmleikurinn í Noregi sumarið 2011. Í þessu tölublaði Analys Norden er fjallað um þessa þróun og hvaða afleiðingar hún getur haft fyrir hin opnu norrænu samfélög.
-
Stefna í samgöngumálum á Norðurlöndum: Opin landamæri eða lokuð tengslanet?
-
Norræna ráðherranefndin um samgöngumál var lögð niður fyrir nokkrum árum, en flutningar og umferð þvert á landamæri hafa aldrei verið meiri. Hvað skiptir mestu máli í stefnumörkun landanna um samgöngumál? Eru staðbundnir hagsmunir í fyrirrúmi eða er hugað að hagsmunum þvert á landamæri og megum við vænta stórra verkefna sem munu tengja Norðurlöndin enn frekar saman? Analys Norden fjallar um stefnu í samgöngumálum á Norðurlöndum.
-
Baráttan um Norðurskautssvæðið
-
Ísinn bráðnar og skipaumferð eykst. Loftslagið breytist og nýting náttúruauðlinda eykst. En hvert stefnir Norðurskautssvæðið og hvaða hlutverki gegna norrænu ríkin í kapphlaupinu um stað í miðnætursólinni? Fjallað er um málið í júní útgáfu Analys Norden.
-
Borgar sjálfbærni sig?
-
Er samspil milli markmiðssetningar Norðurlandanna um grænan hagvöxt og þess að vilja tryggja sjálfbæra þróun? Eða er grænt eingöngu ætlað til að fegra hugmyndafræðina um að viðhalda hagvexti? Í Analys Norden er fjallað um hin grænu dagskrármál á Norðurlöndum og spurt hvort við höfum efni á því að stuðla að sjálfbærni og vexti, eða hvort við höfum efni á öðru?
-
Framtíð norræns orkusamstarfs
-
Svíþjóð, Danmörk, Noregur og Finnland hafa náið samstarf í orkumálum, en Ísland hefur nokkra sérstöðu. Hvernig er samstarfið að þróast, og hversu langt vilja löndin ganga? Analys Norden varpar ljósi á umræðu um orkumál á Norðurlöndum.
