Document Actions

Þrýstingur á velferðarríkið

Verðmætasta djásn norræna þjóðfélagslíkansins er að mati margra velferðarþjóðfélagið sem ríkin hafa byggt upp síðan á fjórða áratug síðustu aldar. Nú er þetta líkan í hættu, bæði til styttri og lengri tíma litið, annars vegar vegna efnahagskreppunnar og hins vegar vegna þess meðalaldur íbúa Norðurlandanna fer hækkandi. Hvað gera löndin til þess að leysa þennan Gordíonshnút? Þetta er þema Analys Norden í október/nóvember 2009.

Danmörk

Erfitt verður að borga fyrir velferðina

Vegna versnandi efnahagsástands verður erfiðara að fjármagna velferðina í framtíðinni. Í Danmörku vita stjórnmálamenn hvað til þeirra friðar heyrir. Og þeir vita nokkurn veginn hvaða meðöl gagnast. En þeir þora ekki að fylgja læknisráðunum út í ystu æsar af ótta við að fæla frá kjósendur.

Lesa meira

Ísland

Eru Norðurlöndin útlönd?

Fulltrúar á svokölluðum Þjóðfundi, sem haldinn var á Íslandi í nóvember, vilja lýðræðislegt samfélag góðra lífskjara þar sem velferð er í heiðri höfð, jafnrétti og mannréttindi virt, hugað er að umhverfismálum, lögð áhersla á menntun, nýsköpun og menningu og tryggt að allir njóti aðgangs að heilbrigðiskerfinu. Ísland á jafnframt að vera virkur þátttakandi í samfélagi annarra þjóða.

Lesa meira

Efnahagskreppa og útskúfun í atvinnulífi Norðurlanda

Alþjóðlega fjármála- og efnahagskreppan hefur leitt til aukins atvinnuleysis á Norðurlöndum. Staðið er fyrir aðgerðum bæði í gegnum efnahagspólitíkina og vinnumarkaðspólitíkina til að mæta efnahagsniðursveiflunni. En hvað með þá sem nú þegar eru í útjaðri atvinnulífsins? Hvað er gert til að fá þá inn á vinnumarkaðinn? Hvaða árangri hafa Norðurlönd náð á þessu sviði? Hvað geta norrænu löndin lært hvert af öðru á þessu sviði og hvað geta önnur lönd lært af Norðurlöndum?

Lesa meira

Noregur

Aukin velferð og lægri skattar – er það raunhæft?

Kosningabaráttan sem fór fram í haust sýndi enn og aftur fram á þær innbyggðu andstæður sem eru í stjórnmálum. Flokkarnir keppast við að lofa sífellt aukinni og betri velferðarþjónustu en keppast við það á sama tíma að lofa sem mestri lækkun skatta, eða að minnsta kosti að hækka þá ekki. Olíuauðurinn gerir norskum stjórnmálamönnum það mögulegt upp að vissu marki að samræma mótsagnirnar en til langs tíma komast þeir ekki hjá því að velja á milli lægri skatta og aukinnar velferðar.

Lesa meira

Svíþjóð

Skattar ásteytingarsteinn fyrir kosningar á næsta ári

Skattastefna verður helsta deilumálið í kosningabaráttunni í Svíþjóð á næsta ári. Á þriggja ára valdatíma hefur samsteypustjórn hægriflokkanna lækkað skatta um rúma 80 milljarða sænskra króna. Og nýjar skattalækkanir, sem nema tíu milljörðum til viðbótar, eru á döfinni.

Lesa meira

Finnland

Atvinnuleysi eykst, skuldir vaxa og skattar hækka

Þrátt fyrir að velferðarkerfinu í Finnlandi standi ekki ógn af efnahagskreppunni, hefur óöryggi gripið um sig, meðal ríkisstjórnarinnar, sveitarstjórnarmanna og einstaklinga, um að endar nái ekki saman. Og þrátt fyrir að umræður um peningamál í Finnlandi hafi verið býsna fjörugar upp á síðkastið þá hafa þær snúist um allt önnur mál. Uppákomur um fjármögnun kosningasjóða stjórnmálamanna hafa grafið alvarlega undan trausti Finna á stjórnmálaflokkum.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)