Document Actions

Varnarmál/Atlantshafsbandalagið

Vefritið Analys Norden fjallar um þróun og hræringar í norrænum stjórnmálum. Í hverjum mánuði birtast greinar eftir sex sérvalda stjórnmálaskýrendur. Viðfangsefni okkar í vor eru Norðurlönd sem forystusveit á alþjóðavettvangi. Að þessu sinni fjalla greinarhöfundarnir um varnarmál, kosningarnar í Finnlandi og val á nýjum formanni sænskra jafnaðarmanna.

Finnland

Sögulegt fylgistap vinstrimanna

Því hafði verið spáð að þingkosningarnar í Finnlandi yrðu atkvæðalitlar og myndu ekki valda neinum breytingum. En sá spádómur rættist ekki. Fylgi jafnaðarmanna hrapaði og náði sögulegu lágmarki og að öllum líkindum verður næsta ríkisstjórn borgarleg. Í kosningabaráttunni var aðeins litið með öðru auganu á umheiminn og engar nýjar lausnir komu fram. Í þessum kosningum beindu Finnar sjónum inn á við.

Lesa meira

Svíþjóð

Móna á að hleypa nýju blóði í jafnaðarmannaflokkinn

Aukalandsfundur sænskra jafnaðarmanna í þessum mánuði varð sögulegur. Í fyrsta sinn í 118 ára sögu flokksins var kona kjörin til formennsku. Fagnaðarlátunum ætlaði ekki að linna þegar Mona Sahlin tók við formannskeflinu af Göran Persson. Miklar væntingar eru gerðar til Sahlin þar sem hennar bíður að koma jafnaðarmönnum í ríkisstjórn í næstu kosningum. Mistakist henni það gæti orðið skjótur endir á formennsku hennar.

Lesa meira

Noregur

NATÓ og talibanar gætu fellt ríkisstjórnina

Stofnendur Sósíalíska vinstriflokksins (SV) á sínum tíma var fólk sem fylgdi Verkamannaflokknum að málum en var mótfallið aðild Noregs að NATÓ. Nú er SV aðili að ríkisstjórn sem með beinum hætti styður stríðsþátttöku NATÓ í Afganistan. En SV styður ekki stríðsþátttökuna heils hugar. Flokkurinn hefur fengið hina ríkisstjórnarflokkana tvo til að samþykkja málamiðlunartillögu um það hvernig beita skuli norskum hermönnum í Afganistan. Málamiðlunin er svo brothætt að bæði NATÓ og talibanar geta grafið undan henni og valdið stjórnarkreppu í Noregi.

Lesa meira

Danmörk

Aðgerðastefna Danmerkur í utanríkispólitík á krossgötum

Ákvörðun Anders Fogh Rasmussens um að kveðja danska heraflann heim frá Írak hratt af stað mikilli umræðu um utanríkispólitík: Er tímabil aðgerðastefnu í utanríkispólitík á enda runnið? Snýr Danmörk heim til Evrópu eftir daðrið við Bandaríkin og Bush-stjórnina?

Lesa meira

Ísland

Norrænt öryggissamstarf á Norður-Atlantshafi

Íslendingar hafa orðið að hugsa öryggis- og varnarmál landsins upp á nýtt á skömmum tíma eftir að Bandaríkin lokuðu varnarstöðinni í Keflavík á síðasta ári. Aukið samstarf við Noreg og Danmörku er lykilþáttur í viðleitni ríkisstjórnarinnar til að fylla upp í öryggistómarúmið, sem Bandaríkin skildu eftir.

Lesa meira


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur:

Leit í Analys Norden

Áskrift
Skráðu þig á póstlistann
(Required)