Velferð og vinnumarkaður
Finnland
Finnar flytja inn erlent vinnuafl
Staðan á finnskum vinnumarkaði þar sem atvinnuleysi hefur verið mikið og viðvarandi hefur snúist við og nú stefnir allt í skort á vinnuafli. Það eru alveg nýjar kringumstæður fyrir Finna. Fram til þessa hefur innflutningur á vinnuafli verið hverfandi og fátíður en nú eru horfurnar aðrar.
Svíþjóð
Atvinnumálin ráða úrslitum í næstu kosningum
Ár er liðið síðan sænskir kjósendur kusu yfir sig fyrstu hægristjórnina í 12 ár. En fylgi stjórnarinnar minnkar stöðugt og pólitískir andstæðingar saka hana um að hafa knúið fram kerfisbreytingu á sænska velferðarkerfinu. Gagnrýnin er ekki síst til komin vegna þess að atvinnuleysisbætur hafa verið lækkaðar og til stendur að skera niður í sjúkratryggingarkerfinu. En stjórnin, undir forystu hófsamra hægrimanna, boðar líka niðurskurð í varnarmálum, sem varð tilefni þess að Mikael Odenberg varnarmálaráðherra sagði af sér í mótmælaskyni.
Noregur
Öfugsnúin innflytjendaaumræða
Innflytjendamál urðu ekki að stóru kosningamáli í norsku sveitarstjórnarkosningunum þrátt fyrir að aldrei hafi fleiri flutt til landsins og innflytjendum fari sífellt fjölgandi. Alþekktar deilur um innflytjendamál og aðlögun útlendinga féllu í skuggann af því að nú virðast allir vilja aukinn innflutning vinnuafls svo hægt sé að viðhalda hagvextinum. Það er auðveldara að ná í vinnuafl til Póllands en að tryggja það sem ríkisstjórnin hefur skilgreint sem allra mikilvægasta verkefni sitt: Að fá fleiri þeirra sem hafa verið í veikindaforföllum í lengri tíma, eldri borgara og fólk með skerta starfsgetu út á vinnumarkaðinn.
Álandseyjar
Brýn þörf fyrir fólk á Álandseyjum
Fleira fólk. Miklu fleira fólk. Rúmlega 27.000 manns búa nú á Álandseyjum. Jafnvel í norrænu samhengi eru Álandseyjar smáríki, en hafa samt sem áður náð nokkrum árangri. Þrátt fyrir staðsetningu eyjanna eru þær eftirsóttar af innflytjendum, atvinnuleysið er í kring um 2% og svæðið skilar hærra hlutfalli af skatttekjum en þeim 4,5% sem gert er ráð fyrir samkvæmt reiknilíkani.
Danmörk
Vantar þig vinnu? Komdu þá til Danmerkur
Vinnumarkaðurinn er rauðglóandi í Danmörku. Bæði opinber og einkarekin fyrirtæki kalla eftir fólki til starfa. Á fáum árum hefur pólitíkin snúist frá því að finna leiðir til að berjast gegn atvinnuleysi yfir í að útvega nógan starfskraft! Danskir stjórnmálamenn munu meðal annars beina athyglinni að fjölgun innflytjenda sem koma til starfa og umbótum til að lækka launaskatt.
Ísland
Útlendingar njóta verri kjara
Íslensk stjórnvöld ætla loks að láta til skarar skríða og taka af festu á málum fyrirtækja, sem nýta sér erlenda starfsmenn. Núna er öllum orðið ljóst, að skráningu slíkra fyrirtækja er oft verulega ábótavant og mörg dæmi eru um að brotið sé á réttindum starfsfólks, skattalögum og fleiri reglum sem gilda eiga um vinnumarkaðinn.
