Document Actions

Að flytja til eða milli Norðurlandanna

Upplýsingar fyrir þá sem hyggjast flytja til Norðurlandanna eða á milli norrænu ríkjanna.

Þeir sem ætla að flytja á milli Norðurlandanna til að stunda atvinnu þurfa að huga að ýmsum málum.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Norrænu ráðherranefndinni, Norðurlandaráði, Norræna menningarsjóðnum eða hjá einni af þeim fjölda norrænna stofnanna sem við rekum, geta bæði fengið fjárhagslega og aðra aðstoð við flutninginn. Oft vakna samt spurningar vegna flutningana, til að mynda þegar fjölskyldan er flutt með.

Ýmsar nytsamlegar upplýsingar fyrir þá sem hyggjast flytja milli norrænu ríkjanna eru á Norðurlönd fyrir þig á www.norden.org.

Upplýsingar eru þar flokkaðar í fjóra flokka:

  • Flutningar
  • Atvinna
  • Nám
  • Ferðalög

Einnig er hægt að senda spurningar, sem ekki finnast svör við á vefsíðunni beint til Halló Norðurlanda.

Svör við spurningum sem tengjast skattamálum í norrænu ríkjunum má fá á vefsíðunni www.nordisketax.net

Þá má einnig nefna norrænu almannatryggingagáttina en á henni eru upplýsingar um hvaða landslög og reglur gilda við ólíkar aðstæður.

Á upplýsingasíðunni Öresund Direkt eru upplýsingar fyrir þá sem hyggjast flytja eða ferðast til vinnu á Eyrarsundssvæðinu.

Tengt efni
  • Nám á Norðurlöndum

    Upplýsingar fyrir þá sem ætla að stunda nám á Norðurlöndum, eða stunda þegar nám við norrænan háskóla utan heimalands. Hverju þarf að huga að, hver eru réttindi námsmanna og hvaða stjórnvöld þarf að hafa samband við? Jafnframt upplýsingar um norræna styrki vegna náms og rannsókna og norrænar stofnanir sem sjá um menntun og rannsóknir.

  • Flytja innan eða til Norðurlanda

    Upplýsinar fyrir þá sem ætla að flytja eða hafa þegar flutt til Norðurlanda. Hverju þarf að huga að, og hvaða stjórnvöld þarf að hafa samband við?

  • Vinna á Norðurlöndum

    Gagnsamar upplýsingar fyrir þá sem sækja um eða eru þegar í starfi í öðru norrænu ríki en heimalandi. Hverju þarf að huga að, hver eru réttindi þín og hvaða stjórnvöld þarf að hafa samband við? Ef upplýsingar sem á þarf að halda eru ekki á vefsíðu okkar, er öllum velkomið að senda spurningar til upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.