Document Actions

Nordjobb

Viltu starfa í öðru norrænu landi í sumarfríinu? Þá er Nordjobb eitthvað fyrir þig. Ef þú býrð á Norðurlöndum, ert á aldrinum 18 til 28 ára og talar dönsku, norsku eða sænsku, skaltu lesa áfram.

Nordjobb er áætlun sem býður sumarstörf fyrir ungt fólk á Norðurlöndunum. Það eru Norræna ráðherranefndin, Norrænu félögin og atvinnurekendur sem fjármagna áætlunina.

Nordjobb býður sumarstörf í Danmörku, Finnlandi, á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, á Grænlandi og Álandseyjum. Jafnframt aðstoðar Nordjobb við að finna húsnæði og býður upp á áhugavert tómstundastarf.

Kröfur sem gerðar eru

  • Þú verður að vera ríkisborgari í einu af Norðurlöndunum eða Evrópusambandslöndunum.
  • Þú verður að vera á aldrinum 18 til 28 ára.
  • Þú verður að geta tjáð þig á dönsku, norsku eða sænsku.
  • Þú verður að geta starfað í einn mánuð hið minnsta á tímabilinu maí til september.

Hvaða störf eru í boði?

Fyrst og fremst hefur Nordjobb milligöngu um hefðbundin sumarstörf eins og störf í landbúnaði, á hótelum eða farfuglaheimilum, við þjónustu, í verksmiðjum eða á lager og störf sem tengjast aðhlynningu og störf á barnaheimilum.

Ekki er hægt að fá starf í eigin heimalandi, með þeirri undantekningu þó að Finnar geta fengið störf á Álandseyjum. Laun eru greidd samkvæmt samningum og greiddur er skattur í því landi sem starfið er. Nordjobb hefur milligöngu um bæði húsnæði og starf, en þú verður sjálf/ur að greiða ferðakostnað og húsaleigu. Atvinnurekendur velja hverja þeir vilja ráða í störfin.

Nánar um Nordjobb og hvernig sótt er um starf á vef Nordjobbs.