Þeim sem vilja starfa í norrænu samstarfi, bjóðast mörg tækifæri. Við bjóðum áhugaverð störf þar sem Norðurlöndin eru í brennidepli. Verkefnin eru áhugaverð og tengjast því sem efst er á baugi hverju sinni. Miklir möguleikar eru á því að mynda alþjóðleg tengslanet og öðlast góða faglega reynslu.
Unnið er að norrænu samstarfi bæði á skrifstofunum í Kaupmannahöfn og hjá hinum ýmsu norrænum stofnunum. Þetta þýðir að mörg og ólík störf eru í boði, alls staðar á Norðurlöndunum. Í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á Íslandi og auk þess á sjálfstjórnarsvæðunum Grænlandi, Álandseyjum og í Færeyjum.
Öll laus störf innan norræna samstarfsins eru auglýst á www.norden.org.
Skilyrði er að umsækjendur séu frá Norðurlöndunum, eða sjálfstjórnarsvæðunum. Vinnutungumál okkar eru danska, norska eða sænska og er gerð krafa um að starfsmenn tali og skrifi eitt af þessum tungumálum fullkomlega. Undantekningar eru gefnar frá þessum kröfum, ef störfin eru hjá Upplýsingaskrifstofum Norrænu ráðherranefndarinnari í Eystrasaltsríkjunum eða Rússlandi. Þar fara samskipti fram á ensku eða á tungumáli viðkomandi lands. Auk þess er gerð krafa um að starfsmenn okkar:
Það er styrkur, en ekki krafa, hafi starfsmaður starfað í opinberri stjórnsýslu eða hjá alþjóðastofnun. Ef margir umsækjendur eru jafnhæfir, setjum við fjölbreytni hvað varðar kyn og þjóðerni í forgang. Auk þess leggjum við áherslu á að starfsmenn séu frá öllum Norðurlöndunum. Þannig varðveitum við norrænu gildin í öllum samtökum og stofnunum. ÍKaupmannahöfn eru þrjár stofnanir Nordisk Råd, Nordisk Ministerråd og Norræni menningarsjóðurinn. Skrifstofur þessara þriggja stofnana eru á sama stað og starfsskilyrði starfsmanna þeirra eru þau sömu.
Undir Norrænu ráðherranefndina heyra fleiri samstarfsstofnanir sem hafa aðsetur á öllum Norðurlöndunum. Til að mynda Nordforsk. Framkvæmdastjórar norrænu stofnananna eru ráðnir af Norrænu ráðherranefndinni, en aðrir starfsmenn eru ráðnir samkvæmt samningum viðkomandi lands. Norrænar upplýsingaskrifstofur eru í Eislandi, Lettlandi og Litháen og einnig í Norðvestur-Rússlandi, í Kalíníngrad og .
Með hverri ráðherranefnd starfa vinnuhópar um ýmis málefni, sem oft eru styrktir af Norrænu ráðherranefndinni. Þeir sem starfa í þessum vinnuhópum eru þó starfsmenn ráðuneyta eða stofnana og koma frá öllum norrænu ríkjunum. Að auki tengjast ýmsar norrænar samstarfsstofnanir norræna samstarfinu, til að mynda Norrænu félögin.
Auk skrifstofu Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn eru reknar fimm skrifstofur sendinefnda Norðurlandaráðs í þingum norrænu ríkjanna. Fjórir flokkahópar starfa innan sendinefndanna og með hverjum þeirra starfar flokksritari.